Færsluflokkur: Bloggar

Bensínið búið.

í gær var árshátíð Fjölmenntar og lokahóf Listar án landamæra og gekk rosalega vel fyrir sig í alla staði eins og venjulega.

Björgvin FranZ Gíslason var veislustjóri og fór hamförum og best var nú þegar hann hermdi eftir nokkrum bestu söngvurum þjóðarinnar enda fékk fólk krampakast af hlátri en eins og ég hef sagt áður þá er þessi maður alveg stórhættulegur og þá í jákvæðri merkingu þess orðs.

Skemmtiatriði voru þarna og þeir sem tróðu upp voru leikhópurinn Perlan,Söngsveitin Langjökull frá Selfossi og Blikamdi stjörnur auk þess sem ég sagði nokkur orð vegna listar án landamæra,en minn þáttur á kvöldinu var bara rétt að byrja.

Eftir allt þetta hófst ballið og stigum við í Hraðakstur bannaður fyrst á svið og brilleraði ég algerlega en það gerðu hinir í bandinu líka og spiluðum í um 45 mín,eftir það kom plútó á svið og spilaði í um hálftíma en gat ekki klárað prógrammið sökum tímaskorts en einnig bilaði hljómborðið svo það var sjálfhætt,en frábær árshátíð og Fjölmennt til sóma.

Í gær kom einnig í ljós að sambandsslit okkar Dagbjartar eru endanleg og enn og aftur fæ ég engar skýringar á sambandsslitunum
og verð ég að segja að mér líður eins og hafi gert henni eitthvað.

Ég ákvað strax í gær að loka á hana sem sýndi sig í því að hún söng ekki með mér eins og venjulega,fólk má segja hvað sem það vill um þetta hér í commentum en ég ætla að láta hana blæða fyrir þetta og sýna henni að þetta er hennar missir,ekki minn.

Í dag ætla ég að slappa af og hafa það gott á þessum frídegi en nóg komið í bili,skrifa mera síðar,gerið allt sem ég myndi gera.
                                   KV:Korntop


Tónleikar.

Í kvöld verður mikið um að vera því þá streyma allir í Gullhamra(Grafarholti)því þar verður árshátíð Fjölmenntar og inn í hana rennur lokahátíð listar án landamæra sem hefur staðið yfir s.l 3 vikurSmile


Hinn stórhættulegi Björgvin Franz Gíslason verður veislustjóri og sér hann áreiðanlega um að halda gestum á tánum með allskonar gríni og töfrabrögðumLoL


Ýmis atriði verða þarna á milli rétta og svo kl 9  stígur hljómsveitin Hraðakstur bannaður á svið og Plútó í kjölfarið á því,á milli banda mun dúó Aileenar og Ágústu spila eitt lag,eitt er víst að ég ætla að mæta þarna í fantaformi og skemmta mérCool


Nóg komið í bili,eigið góðan dag elskurnar og gerið allt sem ég myndi gera.
                                    KV:Korntop


Blogg áfram.

Áfram verður bloggað á þessari síðu eins og áður.
Er fólk þá ánægt?segið nú ykkar skoðun hérna.


Pæling.

Er að spá í að hætta þessu bloggi hérna,velti því oft fyrir mér hvort einhver nenni að lesa þetta heimska blogg mitt,er nokkuð varið í þetta?held ekki,hef ekki tekist að gera þessa síðu eins vel úr garði og ég vildi,er að glíma við tímaskort sökum ýmissa mála sem tengjast sambandsslitunum við konuna,tónlistina ofl.
Hvað finnst ykkur lesendur góðir?á ég ekki bara að hætta þessu rugli og snúa mér að öðru?

 


Kosningar.

Jæja þá er þessum mest spennandi kosningum lokið og er ljóst að stjórnin hélt velli með minsta mun,kosningarnóttin var æsispennandi og komu lokatölur úr norðvestur kjördæmi ekki fyrr en upp hálf 9 en seinkun varð víst á kjörgögnum frá vestfjörðum.

Eins og ég sagði hélt ríkisstjórnin velli en mun hú sitja áfram?siðferðilega getur hún það en ekkert víst að hún sitji með svo tæpan meirihluta og ef það gerist að stjórnin fari að þá eru nokkrir möguleikar í stöðunni,vinstri stjórn er einn möguleikinn en hann er einna langsóttastur,persónulega vona ég að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi næstu stjórn,en úrslitin sýna að Framsóknarflokkurinn geldur afhroð og formaður flokksins komst ekki einu sinni á þing og að fólk vill breytingar.

Nú tekur við stjórnarmyndun og gæti það tekið fljótt af en undirrituðum hugnast best XD ogXS en það kemur allt í ljós.

Vil að endingu hvetja fólk til að commenta meira og taka þátt í skoðanakönnuninni,en nóg komið í bili,meira síðar,eigið góðan dag og erið allt sem ég myndi gera.
                               KV:Korntop


Kosningardagur.

Nú standa yfir kosningar til alþingis,þær tvísýnustu frá upphafi,fór ég áðan og kaus í Austurbergi og kaus auðvitað gegn ríkisstjórninni frekar fáir voru á kjörstað og var það bara fínt engin biðröð,svo er bara að bíða eftir einhverri mest spennandi kosningarnótt í sögunni og vona ég að ný stjórn verði mynduð en það kemur allt í ljós í nótt eða á morgunn,margir vina minna vilja sjá Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna saman í stjórn og það gæti nú bara verið allt í lagi stjórn,en einhvernveginn læðist að mér sá grunur að Frjálslyndir verði í oddaaðstöðu eftir kosningar en þetta kemur allt í ljós í nótt.

Kosningar.

Þá er bara 1 dagur í kosningar og er ljóst að þær eru þær tvísýnustu frá upphafi.

6 framboð bjóða fram hverju öðru ólíkara með sínar áherslur á pólitíkina,ég ætla að fara nokkrum orðum um hvert framboð fyrir sig í örfáum orðum en flokkarnir sem bjóða fram eru Framsóknarflokkurinn,Sjálfstæðisflokkurinn,Samfylkingin,Vinstri grænir,Frjálslyndi flokkurinn og Íslandshreyfingin.

Framsóknarflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn frá ´95 eða í 12 ár og hafa þeir klúðrað flestu sem hægt er að klúðra,nægir þar að nefna heilbrigðismálin en þar hafa biðlistar eftir sjúkrarýmum fyrir alraða aukist auk þess sem komugjöld á slysadeild hafa stórhækkað,einnig má telja virkjanaæði flokksins sem ríður ekki við einteyming svo ekki sé nú minnst á nýjasta skandalinn með Jónínu Bjartmarz og ríkisborgararéttur tengdadóttur hennar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn frá ´91 eða í 16 ár og þar hefur líka átt sér stað klúður sérstaklega í samgöngumálum en það þarf að bæta vegakerfið inn og út úr borginni svo ekki sé nú talað um í Reykjavík,einnig hefur kvótakerfið fest sig í sessi í tíð flokksins því miður,einnig hafa láglaunahópar eins og aldraðir og öryrkjar tapað tekjum vegna skattastefnu flokksins.

Samfylkingin virðist eiga erfitt uppdráttar með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann og hefur flokkurinn ekki náð því flugi sem stefnt var að,margt gott kemur frá Samfylkingunni eins og t.d umræðan um aðild íslands að Evrópusambandinu og ekki væri úr vegi að þeir kæmust að í næstu stjórn til að ganga úr skugga um að loforðin skuli efnd,þeir tala mikið um misskiptingu fjármagns og er það hárrétt hjá þeim.

Vinstri grænir er flokkur sem virðist vera á móti öllu en þeir hafa líkt og Samfylkingin bent mikið ranglæti á skiptingu tekna og hafa gagnrýnt stjórnarflokkana um aðgerðarleysi,verði úrslit kosningana þeim í hag hafa þeir tækifæri til að bæta úr því.

Frjálslyndi flokkurinn virðist vera 2 flokka flokkur þar sem kvótakerfið og aflagning þess er aðalmálið og er ég sammála flokknum í því að þetta kvótakerfi er handónýtt og ætti að henda því burt sem fyrst,hitt málið er innflytjendamálið en þar hefur mér flokkurinn hjafa farið offari og hefur mér þótt málfluttningurinn rasismalegur á köflum,en þó skal áréttað að ég er sammála því að kanna beri feril innflytjenda áður en þeir koma hingað til lands ef takmarka á innflytjendur þá þarf það að gerast á einhvern viturlegan hátt,en þetta mál er komið í umræðuna og er það vel.

Íslandshreyfingin er nýtt framboð og geldur kanski fyrir það að hafa komið of seint fram en þar eru náttúruverndarsjónarmiðin allsráðandi enda vill flokkurinn stöðva allt virkjanabrölt auk þess sem þeir hafa tillögur um hvernig að breyta hér ýmsu.

Eftir þessa upptalningu er málið ljóst fyrir mér,þessi ríkisstjórn er á villigötum og þörf á breytingum.
Í tíð hennar hafa þeir ríku orðið ríkari á kostnað þeirra fátæku,elli og örorkulífeyrisþegar eiga varla til hnífs og skeiðar og ljóst að góðærið hefur ekki komið til þeirra,ég gæti haldið áfram að segja frá neikvæðum verkum þessarar stjórnar en læt það vera í bili þið vitið allt um það.
Á morgunn er tækifæri til að breyta og gefa stjórnarflokkunum langþráð frí og hleypa öðrum að kjötkötlunum auk þess er það mín skoðun að enginn flokkur eða afl hefur gott af of langri stjórnarsetu.

Að lokum þetta:Á morgunn ert þú einn í kjörklefanum með kjörseðil kjósandi góður og enginn sem andar ofan í hálsmálið á þér þar getur þú haft áhrif með að kjósa EKKI stjórnarflokkana við skulum sameinast um það á morgunn að fella þessa ríkisstjórn misskiptingar og gefa öðrum tækifæri.
En nóg í bili,meira síðarKV:Korntop


Þannig fór það.

Þannig fór um sjóferð þá,íslenska lagið komst ekki upp úr forkeppninni sem 31,2% þáttakenda spáðu í skoðanakönnuninni hér á síðunni.

Mörg góð lög voru í boði og önnur lakari eins og gengur en ljóst er að A.Evrópuþjóðirnar í keppninni fíluðu ekki okkar framlag en mörg þeirra laga frá A.Evrópu voru reyndar þrælgóð en ég er ekki að fatta þetta tyrkneska lag en það er bara mitt skilningsleysi.

Eiríkur Haukson stóð sig vel eins og ég sagði í kvöld,og þegar farið var yfir lögin sem keppa á laugardaginn og komust beint í úrslit að þá fannst mér sænska og írska lagið best.

Hvað með Eurovision á næsta ári?
Mitt mat er það að það koma aðeins 2 kostir til greina,annað hvort að hætta alveg þátttöku í þessum skrípaleik eða hreinlega fara í menningu okkar,þ.e.a.s. að fara í gömlu góðu lopapeysurnar og gömlu torfbæina,fá menn og konur með orf og ljá og svo á að finna einhvern góðan til að fara með húslestur eða rímnarkveðskap því greinilegt er á öllu að framlög okkar hafa ekki hljómgrunn meða annara evrópubúa,

En Eiríkur stóð sig frábærlega og ekki við hann að sakast,hér á eftir kemur ný skoðanakönnun og hvet ég ykkur til að taka þátt í henni um leið og ég þakka fyrir þáttökuna í síðustu könnun.
En nóg komið í bili,meira síðar.

                            KV:Korntop


Flottur Eiríkur.

Núna rétt í þessu var Eiríkur haukson að syngja framlag okkar íslendinga í Eurovision í Helsinki og stóð hann sig frábærlega eins og hans er von og vísa og nú bara vonum við að Evrópa fíli þetta lag og við komumst í úrslitin á laugardaginn,kem með fréttir af því eftir um 2 klst.

                                        KV:Korntop


Frídagur.

Dagurinn í gær byrjaði á því að fara á stjórnarfund í List án landamæra,þaðan lá leiðin í Fjölmennt þar sem við Ari æfðum nokkur lög fyrir kvöldið,eftir það fór ég heim í smástund og tók svo strætó niður á Kaffi Hressó en þar var haldið Menningarkvöld Átaks,þar var kynntur nýr bæklingur,ljóð voru lesin og svo spiluðum við Ari nokkur lög við góðar undirtektir og hafi ég verið búinn á því í gær að þá er ég ógangfær í dagað mestu leyti og í beinu framhaldi af því þá ætla ég að sofa eins mikið og ég get og safna á tankinn,fer kanski í Mjóddina og borga reikning frá Fjölmennt svo ég komist þar inn næsta vetur.

Í kvöld er það svo Eurovision og vona ég að Eiríkur Haukson komist í úrslit og í framhaldi af því vil ég hvetja ykkur sem ekki hafa kosið í skoðanakönnuninni að gera það því henni verður breytt eftir kvöldið í kvöld.

Ekki verður þetta meira að sinni en eigið góðan dag og gerið allt sem ég myndi gera,meira síðar.
                                        KV:Korntop


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

102 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband