14.2.2008 | 18:29
Tilkynning um ákvörðun.
Dagurinn í dag hefur verið viðburðaríkur í meira lagi svo ekki sé nú meira sagt,fyrst ræddi ég við aðilann sem kom mér í starfskynninguna í BYKO um áhyggjur mínar af þeim hlutum sem ég nefndi í færslunni í gær og sagði hann að þær væru eðlilegar,ég sagði honum að ég hefði bloggað um þær og hvaða viðbrögð ég hefði fengið frá ykkur elskurnar.
síðan hélt ég áfram að vinna og kom hann svo aftur kl 3 og bað mig að koma upp sem ég gerði auðvitað og þar var fyrir forstjóri fyrirtækisins sem útskýrði fyrir mér eitt og annað sem ég hafði haft áhyggjur afen þær áhyggjur voru með öllu óþarfar.
En þarna bauð hann mér að gerast fullgildur starfsmaður á samningi til 3 gja mánaða og meta stöðuna eftir það og í ljósi þess sem útskýrt hafði verið fyrir mér þá ákvað ég að fara að ráðum þeim sem þið bloggvinir og lesendur góðir gáfuð mér í commentum í gærkvöldi og í dag og þiggja þetta starf,það hjálpaði mér mikið að sjá stuðninginn frá ykkur og það létti ákvörðunina mjög og fæ ég aldrei fullþakkað ykkur hjálpina við þessa erfiðu ákvörðun sem var á borðinu,takk fyrir þetta gott fólk,þið eruð yndisleg.
En semsagt:Ég er orðinn fastráðinn starfsmaður BYKO til næstu 3gja mánaða en ég verð þarna nokkuð lengur en það geri ég ráð fyrir nema til komi fellibylur,en nú er bara að standa sig og vera í liðinu.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
13.2.2008 | 23:44
Hvað á ég að gera?
Starfskynningin í BYKO gekk svona lala í dag,átti að vinna til kl 5 en var algjörlega búinn á því kl 4 svo ég yfirgaf svæðið og fór að fá mér að borða á BK,það sem ég er að velta fyrir mér núna er hvort ég eigi að taka þessa vinnu eða ekki,ekki það að þessi vinna sé eitthvað leiðinleg eða erfið,þvert á móti þá er þetta skemmtilegt starf en vinnuúthald lítið enda ekki unnið síðan á Reykjalundi´93 og sumarvinnu í skógrækt nær árlega frá ´83-´97 auk þess sem ég er hræddur við að lenda í tvísköttun oþh fyrir utan að hrapa í tekjum en ég ætla að ráðfæra mig við þann sem kom þessu í kring auk þess sem ég ræddi þetta við konuna mína áðan og hvatti hún mig til að taka þetta starf í 3 mánuði og sjá svo til og það getur alveg eins orðið lendingin að taka þessa vinnu en eitthvað þarna er að plaga mig því ég hef áhyggjur af að hlutirnir sem ég þarf að semja um klúðrist og í því vil ég ekki lenda.
Kæru bloggvinir og aðrir lesendur,hvað finnst ykkur að ég eigi að gera?ég hef ekkert vinnuúthald,er hræddur um að lenda utangarðs í hópnum(ég er félagsvera að eðlisfari)og ég er hræddur um að þetta reynist mér ofviða.eru þetta óþarfa áhyggjur og á ég þar með að kýla á þetta eða á ég að bakka út og hætta við,verið svo væn að hjálpa mér í þessu.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
13.2.2008 | 02:31
Er það ekki bara?
Þetta blogg er algert meistaraverk sem sýnir svo ekki verður um villst að eigandinn er alger snillingur í bloggsíðugerð og mættu aðrir af honum læra í efnisvali og uppbyggingu,stöku kvartanir um commentsleysi er kanski líka merki um að vekja athygli á síðunni og þó að "hótanir" um að loka síðunni vegna þess hve fáir commenta komi stundum upp á yfirborðið þá er ekkert mark á þeim "hótunum"takandi því ekki loka ég síðunni hvað sem gerist og ekki hætti ég að blogga því þá er eitt af áhugamálum mínum farið.
En það er alveg á kristaltæru að efnisval á þessari frábæru síðu er betra en hjá hjá mörgum öfgafemínistanum sem tjáir sig um allann fjandann án þess að vita haus né sporð á efninu en blaðra bara tómt rugl og þvælu og eru sumir þeirra ofarlega á vinsældarlista bloggara hér á mbl og ekki skil ég af hverju því það eru mun betri blogg sem eru hér en fá ekki hljómgrunn og eins er sumt blogg þessara öfgafemínista mjög einhæf og lítt brúkleg en svo eru aðrir femínistar hér sem eru málefnanlegir og er gaman að lesa en ég nefni engin nöfn því þetta er mín skoðun og fólk má vera mér ósammála,til þess er leikurinn gerður ekki satt?
Ég vil meina að þetta blogg fjalli um allt á milli himins og jarðar og víða stigið niður fæti enda topppenni á ferðinni,það eina sem kanski er að er að eigandinn mætti vera hvassari í skoðunum en hann hefur það í heiðri að gæta orðalags og særa ekki blygðunarsemi nokkurar manneskju.
En semsagt:Eigandi síðunnar er snillingur og gerir allt til að vekja athygli á síðunni og sjálfum sér,athyglisþörf hans er mikil og sterk og mun hann halda því áfram meðan þessi síða er við lýði,skoðanir hans munu birtast hér eftir sem hingað til og ekkert skafið af því.það er á hreinu því ef þessi síða hættir þá deyr sterk rödd og því þarf þessi snilldarbloggsíða að lifa áfram um ókomna tíð mér og ykkur til skemmtunnar kæru bloggvinir og aðrir lesendur.
En nú er ég búinn að upphefja sjálfann mig og búinn að losa smá um og líður mér betur á eftir, vonandi fenguð þið ekki klígju við lesturinn en þá er bara að drekka vatn en hafið það gott elskurnar og megi GUÐ blessa bæði snillinginn mig og ykkur.
KV:Korntop
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
12.2.2008 | 20:27
Hvað næst gerist veit nú enginn.
Er ekki að nenna þessu,er á báðum áttum hvort ég
eigi að halda þessu áfram eða ekki,vil helst að þeir
sem koma hingað inn skilji eftir sig annaðhvort
comment eða skrifi í gestabók og kjósi í
skoðanakönnunum sem ég kem með og ég hef
ákveðið af ef fólk sem sjaldan commentar sýni
sig ekki þá hendi ég þeim út eða loka hreinlega
síðunni,svo einfalt er það bara einu sinni.
KV:Korntop
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
11.2.2008 | 22:35
Kvöldblogg.
Fyrsti dagur starfskynningar var í dag og gekk vel og held ég að þetta sé vinna sem gaman er að vinna,í dag var ég að raða í kassa,setja miða sem sýnir að varan sé hættuleg,skrifa svo niður vörunúmer og loka svo kassanum með límbandi.
Einnig var farið með mig í tölvuna til að sýna mér hvernig vörunúmer er fundið og þarf að skanna allt inn og gekk það líka vel,semsagt góður dagur í starfskynningunni en enn eru 4 dagar eftir og margt sem ég á eftir að reyna örugglega.
Eini gallinn við þessa vinnu er að það er allt of mikið labb og er ég að spá í að taka Ferðaþjónustuna ef ég fæ vinnuna en það kemur í ljós síðar.
Mikið er ég óhress með hversu fáir commenta á bloggin mín og ef það heldur áfram þá neyðist ég til að henda þeim sem aldrei commenta á síðuna burt,ok,ég ræð engu um það hverjir commenta en ég vil biðja þá sem finnst íþyngjandi að vera bloggvinir mínir að eyða mér út af síðum sínum og þetta endar bara með því að ég legg niður laupana hér á mbl og hætti og færi annað,er það málið?Nei ég bara spyr,eins er staðan varðandi skoðanakannanir,en það eru líka sumir hér sem commenta reglulega og er ég ánægður með það en ef heldur fram sem horfir þá ýtir það bara undir að ég loki síðunni.
Að endingu smá um atburði dagsins:Vilhjálmur Þ Vilhjálmson ætlar að sitja áfram sem borgarfulltrúi og viðhalda þessum skrípaleik,er ekki kominn tími á að manngarmurinn segi af sér og annar taki við,maðurinn er svo rúiinn trausti að engu lagi er líkt,gefa þarf sjálfstæðismönnum frí frá völdum því þau hafa þeir haft OF LENGI.
Bless í bili.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
11.2.2008 | 10:27
Örblogg.
Sæl verið þið,í dag byrjar starfskynningin í BYKO og líst mér svona sæmilega á hana,ekkert meira en það en ég tel 50/50 líkur á að ég standist þetta því þessu fylgja fínar hreyfingar í höndunum eins og t.d með límband sem ég á bara afar erfitt með en auðvitað legg ég mig fram en ef ég fæ ekki þessa vinnu þá verður bara fundin önnur vinna fyrir mig annarsstaðar en að sjálfsögðu mun ég leggja mig 100% fram og gera mitt besta,meira er ekki hægt að fara fram á en starfskynningin stendur í eina viku frá 13-15.
Eftir starfskynninguna ætla ég í Mjóddina að sækja nýja debetkortið mitt og svo fer ég beint á BK að borða eitthvað og er bara haldið heim eða kanski bara hangið í bænum,hver veit.?
Annars er þetta nú meiri dellan í borginni og ætti Vilhjálmur Þ Vilhjálmson að sjá sóma sinn og segja af sér og mun ég blogga um það hér síðar í dag eða kvöld.
En nú er nóg komið í bili.
KV:Korntop
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.2.2008 | 18:56
Sunnudagur.
Dagurinn í dag hefur bara verið góður,fór með konunni og vini okkar í afmæli í Víkurásinn og var það mjög gott afmæli og mikið rætt og spjallað,síðan var bara farið heim og slappað af enda byrjar starfskynningin hjá BYKO á morgunn og stendur alla vikuna frá 13-15 og svo eftir vikuna kemur í ljós hvort ég fái vinnuna eður ei og er ég pínu stressaður fyrir þessa starfskynningu en ekki þýðir annað en að gera sitt besta og betur verður víst ekki gert.
Eftir starfskynninguna á morgunn þá ætla ég á BK að borða og svo fer ég í Austurbergið að aðstoða við leik ÍR og Selfoss sem frestað var s.l föstudag vegna veðursins sem gekk yfir landið og olli miklu tjóni þannig að nóg verður að gera á morgunn og alla næstu viku.
Hef lúmskt gaman af að sjá fólk commenta og velta sér uppúr því hvort ég hætti að blogga eða ekki og m.a.s. kom einhver sem kallar sig Fröken M og saði"Nei Korntop,þú mátt ekki hætta að blogga"og svo vill umrædd ekki neina bloggvini en mér þætti vænt um að fá að vita hverjir eru að commenta hjá mér en það er bara mitt próses,en svo að það er á hreinu þá er staðan hvort ég hætti að blogga eftirfarandi: EF ÉG HÆTTI AÐ BLOGGA ÞÁ VERÐUR LÁTIÐ VITA AF ÞVÍ EN ÉG ER ENN AÐ VELTA ÞESSU FYRIR MÉR OG ÁKVÖRÐUN LIGGUR EKKI FYRIR FYRR EN MEÐ HAUSTINU,en bloggið mitt hlýtur að vera gott fyrst ókunnugt fólk sem ekki eru bloggvinir vilja ekki að ég hætti að blogga,en einnig er inni í myndinni að ég fari yfir á vísis bloggið en ég er með síðu þar en mér finnst þessar auglýsingar hérna á mbl blogginu algerlega ótækar og eyðileggja síðurnar að mínu mati og ég er greinilega ekki einn um þá skoðun.
En nóg í bili,heyrumst síðar.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.2.2008 | 14:10
Hitt og þetta.
Fór í gær á kaffi Mílanó að hitta manninn sem sér um mín mál hjá AMS(Atvinna með stuðningi)og fengum okkur kaffi og ræddum aðeins saman um allt á milli himins og jarðar,og fórum svo þaðan í lagerdeild BYKO og hittum verkstjórana sem verða yfir mér ef allt gengur upp í starfskynningunni,þeir útskýrðu fyrir mér það sem ég ætti að gera og leist mér bara vel á það en smá tölvukunnáttu er krafist sem snýr að því að búa til strikamerki og miða sem sýnir að efnið sé hættulegt en hvort tveggja er ákveðið ferli en er ekkert svo flókið,eins kemur fólk úr hæfingarstöðinni Dalvegi og verð ég með ábyrggð gagnvart þeim líka að allt sé klárað fái ég vinnuna en eins og ég sagði þeim í gær þá geri ég mitt besta og betur get ég ekki gert gagnvart þeim,allavega hlakka ég mikið til að byrja í starfskynningunni á mánudaginn,það er alveg á kristaltæru.
Í gær gekk mikið óveður yfir landið með öllu því brambolti sem því fylgdi en Samhæfingarstöðin Skógarhlíð var virkjuð frá kl 4-miðnættis og voru um 400 útköll skilst mér þegar upp var staðið en þessu er víst ekki lokið þegar þetta er skrifað því að það á víst eftir að koma annar hvellur með rigningu í nótt og fyrramálið en mikið er ég orðinn þreyttur á þessu óveðri sýnkt og heilagt og svo gæti farið að svona verði þetta út mars(ÚÚÚFFFFFFFFFF)þannig að ekki mun sjá fyrir endann á þessu veðri á næstunni því eftir einn hvellinn þá kemur bara annar en þetta var víst dýpsta lægð vetrarins og þær verða víst ekki dýpri þennann veturinn.
Aðeins vegna þess sem ég sagði í vísunni og áréttaði í færslunni í gær þá er ég að hugsa um að hætta þessu bloggeríi en það er langt í endanlega ákvörðun,ég myndi þá ekki hætta fyrr en í haust en samt veit maður aldrei,kanski hætti ég fyrr og kanski hætti ég ekki neitt en tíminn sker úr um það,gaman að sjá fólk vera að velta því fyrir sér hvort ég hætti eður ei,einn bloggvinur segir í commenti"það er alveg bannað að hætta að blogga"og annar stingur upp á að blogga einu sinni í viku til að fólk fái ekki fráhvarfseinkenni,gaman að þessu en þetta er að velkjast og gerjast í höfðinu á mér en bíðum og sjáum hvað setur.
En nóg í bili,skrifa meira seinna í dag kanski ef tími gefst en farið vel með ykkur í dag.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.2.2008 | 12:17
Föstudagur.
Sæl verið þið.
Ætla að byrja á að þakka viðbrögð við vísunni sem ég setti hér inn í gær en efni hennar var um það hvort ég myndi hætta að blogga eða ekki en sannleikurinn í því máli er að ég er að velta því alvarlega fyrir mér að hætta þessu en er langt því frá kominn á leiðarenda með það en endirinn á umræddri vísu gefur til kynna að ég haldi áfram og kanski verður það niðurstaðan,kanski hætti ég og kanski ekki en tíminn leiðir það í ljós,ég er allavega ennþá hér á blogginu.
Nú er enn einn óveðursdagurinn í aðsigi og nú er rigning í spilunum semsagt:slabb slabb veður og örugglega erfitt að ganga en það þarf ALVÖRU RIGNINGU til að losna við þennann snjó en ætli flestir séu nú ekki orðnir hundleiðir á þessari ófremdartíð sem hefur herjað á okkur meira og minna í vetur?
Ég fyrir mitt leyti er kominn með upp í kok af þessu helv.... veðri og er örugglega ekki einn um það,er á leiðinni á kaffihús til að ræða hvernig þetta verður með starfskynninguna sem hefst á mánudaginn.
Í kvöld er fyrirhugaður handboltaleikur milli ÍR og Selfoss í Austurbergi og það get ég sagt að við ÍR-ingar ætlum okkur sigur á heimavelli og ekkert annað,sorry bloggvinir mínir á og frá selfossi(Ásdís,Heiða,Valgeir)en menn halda með sínu liði en ég mun skrifa um hann hér í kvöld ef hann verður því ekki er víst að selfyssingar komist yfir Hellisheiði eða Þrengsli sökum ófærðar og veðurs,vonum samt að þeir komist.
Að lokum vil ég minnast á einn hlut,hvaða skrípaleikur er þetta eiginlega?hversvegna er sett auglýsing á bloggsíðurnar án þess að láta vita af því fyrirfram?Þær skyggja á hluta af síðunum og t.d sjást ekki skoðanakannanir né annað fyrir auglýsingunni og ég hvet stjórnendur mbl bloggsins eindreigið til að fjarlægja þessar auglýsingar héðan burt áður en skaði hlýst af.
En nóg komið í bili,farið varlega í þessu veðri og verið heima við ef nokkur kostur er og ekki fara út að nauðsynjalausu.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.2.2008 | 22:14
Útleið?
Ákvörðun nú vanda skal,
verður skaðinn bættur?
kanski á ég ekkert val,
Er korntoppurinn hættur?
Ekki er það vitað enn,
fólk um það má veðja.
Ég segi það við konur og menn,
kanski mun ég kveðja.
Bloggið bjargar degi oft,
og fyrir það vil ég þakka.
kanski úr mér er allt loft,
kanski er best að pakka.
Líklega ég þrauki enn,
og les áfram minn mogga.
En eins og aðrir bloggarar,
ég held áfram að blogga.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
100 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
-
annakr
-
agustolafur
-
brjann
-
eddaagn
-
ellasprella
-
georg
-
ipanama
-
gudruntora
-
zeriaph
-
gudnim
-
harhar33
-
heidathord
-
helgadora
-
krummasnill
-
holmdish
-
hogni
-
inaval
-
jensgud
-
jonhalldor
-
nonniblogg
-
jorunn
-
katlaa
-
katja
-
kolbrunb
-
lillagud
-
lindalinnet
-
birtabeib
-
margretsverris
-
olofk
-
omarragnarsson
-
ragjo
-
rannveigh
-
rosaadalsteinsdottir
-
ruth777
-
marzibil
-
amman
-
ollasak
-
stebbifr
-
fugla
-
saedishaf
-
stormsker
-
skinogskurir
-
lady