Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Einfalt og gott.

Var að velta því fyrir mér um daginn hvernig það væri ef bílar gengju ekki lengur fyrir bensíni heldur einhverjum ódýrari orkugjafa sem skilaði samskonar gangverki í bílnum og komst að því að það eru nokkrir orkugjafar sem kosta ekkert því á tímum of hás bensín og olíuverðs þarf að grípa í taumana og það fljótt en skoðum möguleikana.

Loft: Með að láta bílinn ganga fyrir lofti spararðu þér allann þann pening sem fór í bensínið/olíuna því nú þarftu ekki annað en að sækja hjólapumpuna og pumpa inn um fyrrum bensíntankinn og svo seturðu bara ventilinn yfir,þægilegt ekki satt og kostar ekkert.

Vatn: Ef bíllinn gengi fyrir vatni þá er sami möguleiki uppi nema að nú færi ég bara með nokkrar 2 lítra flöskur og fyllti tankinn af nægu vatni og enn og aftur myndir þú spara þér stórpening en þá væri líka saga bensíns og olíu nánast öll.

Fleiri möguleikar eru t.d vetni,rafmagn ofl en þá þarf að nota bensín ekki rétt?hugleiðið þessa möguleika bloggvinir og lesendur góðir því einhvernveginn verður að stöðva þetta gengdarlausa bensínverð sem á endanum gengur af bílaeigendum dauðum.

                                       KV:Korntop


Aukum skambyssueign landsmanna.

Ég vil bara koma því hér að með skýrum hætti að mér er alvara með seinustu færslu þegar ég sagði að mér fyndist að skylda ætti alla 20 ára og eldri á íslandi til að eiga 3 skambyssur og búðareigendur ekki undir 4 byssum enda nauðsynlegt í baráttunni við búðarþjófa,en til að koma í veg fyrir algert stjórnleysi þá þurfa menn jú að hafa byssuleyf og afla sér þess áður en byssurnar eru keyptar og svo er hreint sakarvottorð líka gott mál

Við myndum vissulega ekki minka ofbeldið á íslandi nema síður væri,auk þess er mér nokk sama hvað Birni Bjarnasyni finnst um það en hann er alltaf að tala um að koma upp her á íslandi kallinn sá svo hversvegna ekki að bjóða alla 20 ára og eldri með skambyssur í sinni eigu velkomna í þennann her?Spyr sá sem ekki veit.

Með aukinni byssueign gætum við búið til "mini"Vilta vestrið þar sem lögreglumenn væru að elta allskyns þjófagengi og glæpamenn borgarbúum til skemmtunnar,Breiðholt,Árbær og grafarvogur yrðu þá svona badly neighbourhood.

Ég myndi persónulega nota mínar byssur í að drita niður þessa bölvuðu máva sem fljúga um öllum til hrellingar og stela öllu steini léttara auk þess sem þeir eyðileggja allt fuglalíf á tjörninni og víðar, mikið yrði það nú gott að vera laus við þessa máva í eitt skipti fyrir öll.

En semsagt án þess að útskýra málið frekar þá segi ég: SKYLDUM ALLA 20 ÁRA OG ELDRI TIL AÐ EIGA MINNST 3 SKAMBYSSUR TIL AÐ GERA LÍFIÐ LÉTTARA OG SKEMMTILEGRA.

                                             KV:Korntop


Ýmislegt.

Í dag byrjaði ég að vinna frá 12-5 en mér hefur alltaf fundist ég geta unnið lengur en 4 klst á dag frá því ég byrjaði að vinna í BYKO og eina leiðin til fá úr því skorið er að láta reyna á það ég get þá alltaf bakkað aftur,allavega í kvöld er ég pínu þreyttur sem er eðlilegt.

það sem fer mest í mig þessa dagana er þessi bölvaði hiti sem verður þess valdandi að maður dottar í vinnunni og virðist maður ekkert fá við það ráðið,frekar óhugnanleg tilfining.

Heyrði að ég hefði komið í mogganum á laugardaginn var en ræðu sem ég flutti á ráðstefnu um atvinnumál á Hótel sögu var breytt í viðtalsform en það er gott að koma í einum mest lesna fjölmiðli landsins endrum og sinnum enda er ég ofboðslega frægur.Hehehehe.

Í morgunn var ísbjörn skotinn á Þverárfjalli í Skagafirði eftir að hafa verið á ferli í einhvern tíma en einhver þoka var á svæðinu og því lítið annað hægt en að skjóta dýrið,því miður.

Ég hef komist að því að íslendingar ættu að vera skyldugir að eiga 3 skambyssur og búðareigendur 4 sama hvað "Hermanninum"og Dómsmálaráðherranum Birni Bjarnasyni finnst um það,með skyldueign á byssum gætum við búið til lítið "Vilta vestrið" en ég myndi nota mínar byssur t.d í að drita niður þessa bölvuðu máva sem sveima yfir öllum til hrellingar og skapraunar,eigandi byssu mætti ekki vera yngri en 20 ára svo það sé á hreinu.

Þá er bullinu lokið í bili-nú bíður bólið og svo vinna á morgunn,hafið það gott elskurnar og góða nótt.

                                               KV:Korntop


Halló.

Góðan daginn og blessaðann,í dag er það vinna milli klukkan11 og15´30,svo þarf  að borga nokkra reikninga sem skipta máli,eftir það BK kjúklingur og síðan liggur leiðin í vesturbæinn,nánar tiltekið á KR völlinn þar sem að KR tekur á móti FRAM en í seinustu 4 skiptin sem ég hef farið á KR völlinn hefur KR tapað og því verður forvitnilegt að komast að því hvort það haldi áfram,svo kemur Aileen konan mín þangað og sækir mig um 9 leytið og ætlum við að taka smá bíltúr,ekki langan þó því við verðum að vakna í fyrramálið.

Svona lítur dagurinn út hjá mér elskurnar mínar en ég verð aðeins að koma að tapsárum svíum sem sögðust í gærkvöldi ætla að kæra leikinn gegn okkur af því að ritaraborðið "gleymdi"að skrá löglegt mark en svo kom tilkynning frá svíunum um að leikurinn yrði ekki kærður heldur send inn kvörtun,ja þvílík della,sorrý svíar þið töpuðuð fyrir betra liði og enn og aftur,TIL HAMINGJU MEÐ ÓLYMPÍUSÆTIÐ STRÁKAR,ÞIÐ ÁTTUÐ ÞETTA SVO SANNARLEGA SKILIÐ.

                                                  KV:Korntop


Glæsilegur sigur.

29-25

Núna rétt í þessu var að ljúka í Wroclaw í póllandi hreinum úrslitaleik íslendinga og svía um laust sæti í handknattleikskeppni ólympíuleikanna í Peking í ágúst og lauk honum með frábærum íslenskum sigri 29-25 í einum besta leik sem íslenskt landslið hefur spilað lengi.

Besti maður íslands var Hreiðar Leví Guðmundson sem varði eins og berserkur allann leikinn eða um 16 skot,þar af mörg úr dauðafærum, einnig var Arnór Atlason góður svo og Sigfús Sigurðson en annars var það liðsheildin sem skóp þennann glæsta sigur og það er sko ekki leiðinlegt að sigra svía sem í gegnum tíðina hafa leikið okkur grátt en í dag var svo sannarlega komið að skuldardögum.

Svíarnir voru gersamlega meðvitundarlausir og engu líkara en þeir héldu að þetta kæmi af sjálfu sér,bestu menn þeirra voru markverðirnir(Thomas Svenson og Peter Genzel) en menn eins og Kim Anderson voru gersamlega búnir á því og gat ekki baun í bala.

Næsta verkefni strákanna eru viðureignir heima og heiman gegn Makedóníu og verður fyrri leikurinn í Skopje næsta sunnudag klukkan 18´15 en sá seinni í höllinni 15 jún kl 4, og hef ég engar áhyggjur eftir þennann leik.

                               ÁFRAM ÍSLAND

                                  KV:Korntop


Til hamingju.

Ég óska öllum sjómönnum og sjómannskonum  innilega til hamingju með sjómannadaginn,gangið samt hægt inn um gleðinnar dyr.


« Fyrri síða

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 205172

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

240 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband