Glæsilegur sigur.

29-25

Núna rétt í þessu var að ljúka í Wroclaw í póllandi hreinum úrslitaleik íslendinga og svía um laust sæti í handknattleikskeppni ólympíuleikanna í Peking í ágúst og lauk honum með frábærum íslenskum sigri 29-25 í einum besta leik sem íslenskt landslið hefur spilað lengi.

Besti maður íslands var Hreiðar Leví Guðmundson sem varði eins og berserkur allann leikinn eða um 16 skot,þar af mörg úr dauðafærum, einnig var Arnór Atlason góður svo og Sigfús Sigurðson en annars var það liðsheildin sem skóp þennann glæsta sigur og það er sko ekki leiðinlegt að sigra svía sem í gegnum tíðina hafa leikið okkur grátt en í dag var svo sannarlega komið að skuldardögum.

Svíarnir voru gersamlega meðvitundarlausir og engu líkara en þeir héldu að þetta kæmi af sjálfu sér,bestu menn þeirra voru markverðirnir(Thomas Svenson og Peter Genzel) en menn eins og Kim Anderson voru gersamlega búnir á því og gat ekki baun í bala.

Næsta verkefni strákanna eru viðureignir heima og heiman gegn Makedóníu og verður fyrri leikurinn í Skopje næsta sunnudag klukkan 18´15 en sá seinni í höllinni 15 jún kl 4, og hef ég engar áhyggjur eftir þennann leik.

                               ÁFRAM ÍSLAND

                                  KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Virkilega góður sigur og svo er bara að mylja makedóna og svo peking.

Virkilega góð færsla Magnús.

Stoltur íslendingur. (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Og nú ætla Svíar að kæra, þvílík della. Vona að það sé ekki hægt.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2008 kl. 20:15

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ég var rétt í þessu að lesa á mbl.is að svíar ætla ekki að kæra en ætla að kvarta við EHF(Alþjóða handknattleikssambandsins, Svíar hefðu aldei fengið neitt útúr kærunni.

Magnús Paul Korntop, 1.6.2008 kl. 20:54

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég sá það í fréttunum hér í Svíþjóð að þeir ætluðu að kæra... ég skammast mín. 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.6.2008 kl. 20:58

5 identicon

Ég er jafnmikill íslendingur og svíi og það var sætt að horfa samt á íslendinga vinna svia.sVO er bara að taka makedóniu i bakariið og senda þá heim með skottið á milli fótana.áfram island

aileen soffia (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 22:03

6 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Gunnar: Samkvæmt mbl.is munu svíar ekki kæra leikinn heldur senda kvörtun til EHF.

Magnús Paul Korntop, 1.6.2008 kl. 22:14

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég veit ekkert hvað er í gangi, fylgist ekki með íþróttum af neinu tagi en segi bara Áfram Ísland!! Veiiii

Rúna Guðfinnsdóttir, 1.6.2008 kl. 22:29

8 Smámynd: Ragnheiður

Þetta var gríðarlega flott hjá þeim, alveg snilldin ein

Ragnheiður , 1.6.2008 kl. 22:36

9 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Þetta var frábær leikur

Svanhildur Karlsdóttir, 1.6.2008 kl. 22:54

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég horfði með öðru auganu, hef ekki taugar í meira Áfram Ísland

Sigrún Jónsdóttir, 1.6.2008 kl. 23:28

11 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Magnús.

Þetta var sætur sigur.

Guð veri með þér.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.6.2008 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 205234

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

224 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband