Góð helgi.

Dagurinn í gær var afslappandi,fylgdist með úrslitaleiknum í enska bikarnum milli Man Utd -Chelsea og sigraði Chelsea með marki Didier Drogba en ekki verður sagt að annað liðið hafi átt þetta meira skilið en hitt,síðan var ég bara í tölvunni og hafði það næs,í nótt sá ég svo boxbardaga á milli Jermain Taylor og Corey Spinks og þó svo að Spinks hafi verið mikið betri að þá gáfu dómararnir Taylor sigurinn 2-1(Split decision) og ég fullyrði það hér og nú að það var algjör skandall enda voru þeir boxbræður Ómar og Bubbi hneykslaðir.

Í nótt las ég á bloggsíðu Jónu bloggvinkonu minnar að hundurinn hennar(Bósi)hefði týnst og ég var búinn að ákveða að setja link á hana en sem betur fer þarf ég þess ekki því Bósi fannat aftur og létti mér mikið við að lesa það því það er nú einu sinni þannig að dýrin eru eins og börnin manns,ég samgleðst Jónu því innilega.

Í dag heldur afslöppunin áfram en í kvöld ætla ég á Laigardalsvöll að sjá leik Fram og Víkings en ég er í stuðningsmannahópi Berserkja og vona é auðvitað að Víkingur vinni.

Á morgunn er það svo inntökuprófið hjá FÍH og er það áskorun að reyna við það ég mun allavega gera mitt besta.

Vona nú að þessi ríkisstjórn komist á koppinn en þetta er besta ríkisstjórn sem láglaunahópar gætu fengið og virðist þetta vera sú ríkisstjórn sem meiginþorri landsmanna vill sjá.

En nóg komið í bili,meira síðar,eigið góðan dag elskurnar og gerið allt sem ég myndi gera.
                                    KVKorntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já það var gott að bósi litli fannst ég setti  link á mína síðu .... Eigðu góða dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.5.2007 kl. 13:20

2 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Hvolfum koppi yfir Emil.

Hrólfur Guðmundsson, 20.5.2007 kl. 18:20

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gangi þér allt í haginn. (Hvað er FÍH?)

Rúna Guðfinnsdóttir, 20.5.2007 kl. 18:29

4 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Gangi þér vel í inntökuprófinu !

Eva Þorsteinsdóttir, 20.5.2007 kl. 20:42

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

FÍH=Félag íslenskra hljómlistarmanna.

Magnús Paul Korntop, 20.5.2007 kl. 22:23

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Auðvitað, þetta átti ég nú að vita. Brake a leg eins og þeir segja í útlandinu

Rúna Guðfinnsdóttir, 20.5.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

241 dagur til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband