28.10.2007 | 13:26
Konur,bæði góðar og slæmar.
Þá er komið að hugleiðingum mínum um konur og eins og venjulega þá eru þetta mínar skoðanir á þeim og eru þær bæði góðar og slæmar og verður hér talað tæpitungulaust og notaður orðaforði sem mér er yfirleytt ekki tamt að nota,en hvað um það?Þá byrjum við.
Íslenskar konur eru margar illa gefnar,heimskar,frekar,stjórnsamar og fýlugjarnar svo maður tali nú ekki um grátköstin,alveg er þetta óþolandi,það má ekkert segja við þær þá er farið að væla og farið í fýlu og þið konur sem þetta lesið,ekki segja mér að þetta sé rangt.
Mér finnst kvenfólk skrýtnar verur sem ber að taka með varúð,fýlugjarnt,skapstyggt,frekt,stjórnsamt og vælugjarnt kvenfólk hefur verið hér frá því land byggðist og verður um ókomna tíð,við fáum ekki breytt því,svo einfalt er það.
En sem betur fer er ekki allt kvenfólk svona,sumar sem eru í vændi gera það af illri nauðsyn,þar er kanski um að ræða einstæða móður á lágum bótum og er að drýgja tekjur sínar með þessum hætti,það er skammarlegt að kona þurfi að selja líkama sinn með þessum hætti,
Ég á góða kærustu og margar vinkonur og bloggvinkonur sem eru lausar við þessa galla þó þær væli og kvarti stundum,en konur eru jafn misjafnar og þær eru margar,en sumt kvenfólk er bara óþolandi en kvenfólk hef ég ekki þolað í 26 ár og þannig er það nú einu sinni en ég verð bara að læra að lifa við það.
Margar konur elska mann sinn mikið og eru ástleitnar einnig eru velflestar konur farnar að skilja að í heimilishaldi skipta kynin verkum á milli sín og gamla fyrirkomulagið um heðbundin karl og kvenmannsverk,það er liðin tíð.
Niðurstaðan af öllu þessu er sú að hér eftir sem hingað til þurfum við karlmenn að lifa við fýlugjarnar,frekar,skapstyggar og rætnar konur en einnig eru til konur sem hægt er að tjónka við og eru skilningsríkar og sem betur fer eru flestar réttu megin við línuna,einnig er ljóst að í kvennmannshjörðinni eru margar svartar rollur sem skemma fyrir heildinni,ég gæti haldið áfram að hrósa eða rakka niður kvenfólk en læt staðar numið að sinni.
Eftir þessa færslu mun að sjálfsögðu koma samskonar blogg um karlmenn og eru margir hverjir okkur karlmönnum til skammar.
Farið varlega-Kanski meira síðar-KV:Korntop
Bloggar | Breytt 29.10.2007 kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.10.2007 | 18:23
Ég er að gefast upp.
Þetta blogg er líklega hætt,commentleysi varð þessari síðu að falli því fyrir utan lítinn kjarna sem commentaði þá var nánast ekkert um comment,það kæmi mér ekkert á óvart að það kæmi bunch af commentum við þessari færslu en ég mun halda áfram að fullgera nýju síðuna á vísi.is og er ég að setja tengla á suma bloggvini mína á henni þannig að þeir sem vilja fylgjast með mér geta farið á http://blogg.visir.is/korntop og svo er auðvitað söngsíðan sem ég hef endurvakið og mun gera hana enn betur úr garði og er slóðin á hana http://blog.central.is/songstrumpur
En semsagt eitt blogg er eftir allavega,bloggið um kvenfólk bæði kostir og gallar og svo sé ég til með framhaldið en ég er orðinn anskoti pirraður á þessu commentleysi en við sjáum hvað setur.
KV:pirraður Korntop
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.10.2007 | 14:39
Samtímingur.
Eins og lesendur tóku eftir í gær þá hef ég opnað síðu á Vísi.is og er að starta öðru bloggi þar og kanski fer ég þangað alfarið eftir áramótin ef ég gefst upp hér en eins og ég sagði í gær að þá er ég ekkert á leiðinni héðan í bráð en enginn veit hvað gerist á morgunn.
Einnig ákvað ég að gefa söngsíðunni minni líf að nýju og fara allar fréttir af hljómsveitum Fjölmenntar þar inn þ.e.a.s. ég segi kanski hvar við spiluðum hér á þessari síðu en allt ítarefni verður að finna á söngsíðunni,spaugileg atvik ofl og vona ég að þið farið á þá síðu til að lesa,en einnig er þar að finna linka á Papana,Bubba og Sálina svo eitthvað sé nefnt en auk þess er að finna þarna textasíður með hljómum til að spila,Viðtöl íð meðlimi hljómsveitanna verður hægt að finna hér og svo og við ófatlaða söngvara,ég hef einnig ákveðið að fá starfsmenn sem blogga á síðuna ef ég er fjarverandi eins og mun gerast á jólatónleikum Fjölmenntar því ég verð í bandaríkjunum þegar þeir eru og verð þar um jólin svo ekki veitir af góðum starfsmönnum til að leysa mig af.
Slóðin á söngsíðuna er: http://blogg.central.is/songstrumpur
Aðeins að helginni,veit ekki hvað ég geri um helgina,þegar maður horfir út og sér þetta veður sem er núna í augnablikinu þá langar manni bara upp í rúm aftur og í þessum töluðu orðum er byrjað snjóa en það er búið að bjóða mér í heimsókn í kvöld en ég veit ekki hvort ég fari,um helgina er ekkert nema sport og mun ég fylgjast með því eins og minn er vani,enski og spænski boltinn,ameríski fótboltinn(NFL),landsleikir í handbolta er það sem hæst ber að mínu mati
Þetta er það sem ég blogga um að sinni enda höfuð mitt þurrausið en líklega blogga ég meira síðar í dag en hafið það gott dúllurnar mínar.
Farið varlega í dag-Meira síðar-KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.10.2007 | 18:17
Ný síða.
Hef opnað nýja síðu á vísi.is og er slóðin eftirfarandi: http://blogg.visir.is/korntop en mun þó eftir sem áður halda áfram hér en er í raun með 3 aðrar síður opnar sem legið hafa í dvala og er ein þeirra söngsíða sem ekkert hefur verið bloggað á en en þar eru t.d tenglar á Bubba og Papana og einhver viðtöl gætu dottið þar inn auk þess sem fréttir af bandinu mínu færu þangað inn og er slóðin á hana http://blogg.central.is/songstrumpur einnig er gamla síðan mín sem er með tengla á Tr og fleira auk þess sem þið getið lesið gamalt blogg eftir mig og er slóðin á hana http://blogg.central.is/korntoppurinn
En semsagt:Ég er ekki að fara neitt heldur að bæta við mig.
KV:Korntop Fjöryrki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.10.2007 | 19:42
Kantskurður og fullnægingar.
Ætla að athuga hvað fólk gerir því fólk sagði í commentakerfinu hérna að það væri auðveldara að tala um ómeerkileg mál heldur en mál sem koma öllum við nú skulum við sjá hvort fólk hefur skoðun á þessu eða ekki ef það hefur það ekki þá er sú fullyrðing dauð.
um kantskurð kvenna og rakstur undir höndunum má segja margt og mikið og vekur margar spurningar sem ég ætla ekki að svara því ég er á móti slíku rugli.
Hvernig er það eiginlega?Raka konur sig að neðan til að karlinn þurfi ekki að finna hárbrúskinn?hver veit?
Finna þær betur fyrir gælunum með hárlaus sköp?
Finnst þeim betra að gera það með hárlaus sköp?
Kemur meiri æsandi lykt af sköpunum ef konur kantskera þau reglulega?
Svona gæti ég spurt endalaust en en fyrir mér er svarið alltaf það sama:
Kantskurður kvenna er vissulega varfærin aðgerð með rakvél væntanlega en er algert tískufyrirbæri og held ég að ég megi fullyrða að karlmönnum sé nokk sama hvort þær séu hárlausar eða ekki,allavega er mér nokk sama því ég afgreiði konuna mína hvort eð er og læt ekki ómerkilegt rugl eins og kantskurð stoppa það.
Um rakstur undir höndum er ekkert merkilegt að segja en ég trúi því nú varla að menn séu með nefið við handarkrika kvenna til að þefa að því,sviti myndast jú hvort sem hár er þar eða ekki og þá nota þær bara svitalyktareyði eins og karlmenn.
Raðfullnægingar er fyrirbæri sem þú færð með að kaupa víbrator og stillir eftir hentisemi hvers og eins og kosta himinháar upphæðir og er oft notað til "örva"kynhvöt kvenna,en ég sé bara ekki tilginn með því að nota hann,las á einni síðunmni að konur noti víbrann til að fá fullnæginu því kallinn er annaðhvort mikið á sjónum eða á pöbbnum að fylgjast með boltanum,en er það ekki bara þannig að konann hefur ekki frumkvæði að elskast með kallinum sínum og hafa það kósí?
Oft egar ég les svona þá dettur maður í hug femínisti sem er á móti kynlífi með aðila af gagnstæðu kyni og notar því víbrann óspart þegar hún er ein heima en það skal tekið fram að femínistar eru ekki allir á móti kynlífi en fyrir mér er raðfullnæging með víbrator ekki hin eina sanna fullnæging,hana færðu aðeins með því að stunda kynlíf með aðila af gagnstæðu kyni,samkynhneygðir eru undir sama hatti,raðfullnæging með víbrator er allavega ekki rétta leiðin að mínu mati.
Nóg í bili-Meira síðar-KV:Korntop Fjöryrki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.10.2007 | 01:17
Smá staðreyndir.
Ætla að skella hér inn nokkrum staðreyndum er varða mig og vona ég að fólk dæmi mig ekki of hart né verði með predikanir auk sem ég vona að bloggvinir flýji ekki umvörpum.
Ég er 42 ára gamall maður sem býr í Reykjavík og hefur sterkar skoðanir á hlutunum og ég bakka ekki með þær nema mér sé sýnt fram á annað sbr umræðuna um búsetumál fatlaðra og örorkubótarumræðuna sem dæmi,þar kom ég með mína sýn á ástandið og því voru nær allir sammála sem hér commentuðu enda málefni fatlaðra hrein spurning um mannréttindi,ekkert annað.
Ég hef átt skoðanaskipti við marga hér á blogginu og mörg þeirra ánægjuleg,fólk sem hefur rekist á síðuna hefur komið til mín og talað um hversu góður penni ég sé en ég segi alltaf að það sé ekki rétt enda er ég það ekki en þegar koma upp stórmál er tengjast málefnum fatlaðra hef ég alltaf haft skoðanir og þegar ég segi þær hér þá hef ég þurft að leita að orðum sem passa við hverju sinni en verð um leið að passa mig á því að reiðin nái ekki of miklum tökum á mér því slíkt getur eyðilagt góðan pistil.
En sem sagt:mér finnst ég arfalélegur bloggari og skil stundum ekkert í því hvernig fólk nennir að lesa þessa hundleiðinlegu síðu sem var stofnuð upp á grín og þess vegna hef ég oft verið að velta fyrir mér að loka þessari síðu og hætta þessu eingöngu vegna þess hversu lélegur bloggari ég er,ég er meðlimur í Átaki(Félag fólks með þroskahömlun) og er stoltur þroskahamlaður einstaklingur sem berst af grimmd fyrir bættum hag öryrkja og annara sem minna mega sín.
En svo eru aðrir sem vilja að ég haldi þessu áfram því að þá komast málefni fatlaðra á dagskrá en hvernig á svona ömurlegur bloggari eins og ég að geta haldið úti bloggsíðu þegar sjálfstraust mitt varðandi blogg er ekki meira en þetta?hvað er til ráða?
Einnig finnst mér fólk ekki commenta nægilega hérna og er það partur af þessu þó það verði að viðurkennast að ákveðinn kjarni hefur commentað vel og duglega undanfarið.
Ég er ekki að fara að loka síðunni strax en hef aldrei lagt í að segja ykkur þetta varðandi mig fyrr en nú,vonandi verð ég ekki jarðaður eftir þessa færslu.
KV:KorntopFjöryrki
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
23.10.2007 | 19:57
Hvenær ætlar fólk að læra?
Ekki hefur farið framhjá neinum að það fannst steralager í austurbæ Reykjavíkur sem innihélt 15 000 skammta af sterum í ýmsu formi og fannst hann undir sólpalli á heimili viðkomandi og sagðist hann ekki hafa haft hugmynd um að þessi efni væru þarna,ja þvílík fjarstæða.
Nú var umræddur maður tekinn í byrjun árs með 30000 skammta af sterum og því hefur viðkomandi verið tekinn með 45000 skammta á árinu.
Ég er algerlega á móti lyfjanotkun íþróttamanmna ef það er til að bæta árangur sinn og spyr hreinlega hvenær ætla menn að læra af reynslunni?Á þetta að viðgangast?Hvað finnst ykkur?
KV:Korntop Fjöryrki
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.10.2007 | 20:12
Smá stopp.
Það verður líklega 2-3 daga stopp vegna anna þessa vikuna við eitt og annað og get ekki lofað bloggi og þess vegna vil ég hafa varann á og sjáumst síðar,þessi síða er ekki að hætta en smá pása vegna anna,takk í bili sjáumst fljótlega.
Farið vel með ykkur elskurnar mínar-Meira síðar.
KV:Korntop Fjöryrki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.10.2007 | 12:03
DJ Korntop.
Á laugardagskvöldið var haldið ball á vegum Átaks í Sjónarhólshúsinu Háaleitisbraut 13(4 hæð) og var þetta fyrsta ballið sem Átak heldur og er ekki ofsögum sagt að hnútur hafi verið í maganum því ég sem var bæði forsprakki og er formaður skemmtinefndar hafði sagt að ef 25 manns mættu væri það fínt í byrjun en mætingin fór fram úr björtustu vonumþví um 50 manns mættu og skemmtu sér vel enda erum við sem stóðum að þessu alveg í skýjunum og alveg klárt mál að þetta verður reglulegt hér eftir,kanski ekki alltaf ball eingöngu því við í skemmtinefndinni höfum nóg af hugmyndum upp í erminni og munum skjóta þeim út þegar það á við,næst er það ball og bingó en aftur að ballinu.
Þarna mætti ég með útvarpið mitt og 4 brennda diska en skrifaði nöfnin á lögunum á blað svo auðveldara væri að sjá hvað ég var að spila,það átti að vera 80´s þema en ég var líka með nýjustu lögin eins og International með Páli Óskari og fengu þau að fljóta með öllum til ánægju enda var haft á orði að ég væri best geymdur í diskóbúrinu og er það líklega rétt hjá þeim sem það sögðu.
Skemmtinefnd var sett á laggirnar til að efla fjárhag félagsins því hann er vægast sagt bágborinn svo mér datt í hug á sínum tíma að stofna skemmtinefnd og fá með mér gott fólk til að vinna með og allur ágóðinn rennur til félagsins eðlilega og t.d varð hagnaður af ballinu um 30 þúsund svo að betra start var ekki hægt að fá.
Einnig var þarna sjoppa með gos og sælgæti,kaffi og kökur á hlægilegu verði og aðgangseyrir á ballið var ekki nema 500 krónur.
Hvað við gerum næst kemur í ljós en það er gaman að geta skemmt þeim sem minna mega sín því það er margsannað að fatlaðir eru ánægðir ef það er gert eitthvað fyrir þá og ég get ekki beðið eftir næsta balli.
En ekki meira í bilMeira síðar-KV:Korntop Fjöryrki.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.10.2007 | 03:39
Ég dáist að......
Sumum bloggvinkonum mínum hvernig þær nota bloggið til að deila lífreynslu sinni með okkur hinum hérna og er megnið af því bláókunnugt fólk eins og ég en það get ég sagt að lífsýn mín hefur gjörbreyst við að lesa þessar síður og ætla ég hér að fara á hundavaði yfir hverjar þetta eru og fyrir hvað þessar konur tákna í mínum augum.
Ragnheiður:
Hún þurfti skyndilega að berjast við sorgina og ganga nánast í gegnum helvíti eftir að sonur hennar(Hilmar)kvaddi þennann heim fyrir rúmlega 2 mánuðum síðan en allann þann tíma hefur bloggheimur fengið að fylgjast með baráttu hennar við kerfið og sorgina og dáist ég að henni fyrir það,þessi barátta mun halda áfram og á endanum mun hún sigra,um það hef ég bjargfasta trú.
Ekki þekkti ég son hennar en við lestur síðunnar þá var þetta strákur sem átti við sín vandamál að stríða en mátti ekkert aumt sjá en eins og ég sagði þá finnst mér alveg magnað hvernig Ragnheiður hefur leitt okkur í gegnum þetta ferli allt á bloggsíðu sinni nánast án þess að blikna,hún er blátt áfram og segir hlutina umbúðarlaust,haltu áfram að vera þú sjálf því þannig viljum við hafa þig,
Ragnheiður:Haltu áfram á sömu braut.
Áslaug Ósk:
Er með fárveikt barn sem þjáist af illvígri flogaveiki og hefur farið í gegnum margar aðgerðir þótt ung sé,þolinmæði Áslaugar er með eindæmum gott og veitir víst ekki af,ekki vitum við hvað framtíðin ber í skauti sér gagnvart þessari litlu stúlku en bloggsíða Áslaugar og hvernig hún veitir innsýn inn í þennann heim með hispurslausum skrifum um allt mótlætið og ánægjustundirnar sem koma hjá þeim inn á milli er alveg með ólíkindum.
Áslaug Ósk:Þakka þér fyrir að hleypa okkur inn í hugarheim langveiks barns og baráttu þess fyrir góðri heilsu.
Þórdís Tinna:
Berst við lungnakrabbameinkrabbamein á 4 stigi(Lokastig) og eins og við vitum er þessi sjúkdómur bæði illvígur og nánast ólæknandi og hefur þurft að fara í gegnum bæði geislameðferð og lyfjagjöf enda er það fylgifiskur krabbameins og ekki hefur Þórdís Tinna vílað fyrir sér að segja okkur söguna hér á blogginu,nú tók ég þátt í baráttu móður minnar fyrir rúmum 6 árum sem endaði eins og það endaði því veit ég hvað Þórdís Tinna er að ganga í gegnum og fyrir þá sem ekki þekkja baráttuna af eigin raun er síða hennar holl lesning því krabbamein er ekkert grín.
Þórdís Tinna:Gandi þér vel í baráttunni við þennann illvíga sjúkdóm sem engu eyrir.
Gíslína:
Greindist með gallvegskrabbamein eftir að hafa þjáðst af nokkrum öðrum kvillum á undan og eins og hjá Þórdísi Tinnu að ganga í gegnum sama ferlið og er lesning síðu hennar góður lestur því alltaf má af honum læra ég hef allavegana lært ýmislegt af lestri mínum varðandi þennann sjúkdóm.
Að berjast við þennann skaðræðisvald sem krabbameinið er tekur bæði á tsugarnar og úthaldið en að taka mótlætinu með bros á vör eins og þessar konur gera er þó stundum komi uppgjöf upp er eitt af því sem gerir fólk sterkara á endanum.
Ég dáist að því hvernig þið 4 kjarnakonur berjist við mótlætið og notið síður ykkar til að gefa öðrum kost á að fylgjast með er dirfska og það mikil dirfska og eigið heiður skilinn fyrir hirspurleysi og greinargóðar lýsingar,ég styð ykkur fyllilega í baráttunni og vona svo sannarlega að sigur hljótist á endanum,þetta eru sannar hetjur í mínum augum,séu rangfærslur biðst ég afsökunnar,vona að ég sé ekki væminn.
KV:Korntop Fjöryrki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
99 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
-
annakr
-
agustolafur
-
brjann
-
eddaagn
-
ellasprella
-
georg
-
ipanama
-
gudruntora
-
zeriaph
-
gudnim
-
harhar33
-
heidathord
-
helgadora
-
krummasnill
-
holmdish
-
hogni
-
inaval
-
jensgud
-
jonhalldor
-
nonniblogg
-
jorunn
-
katlaa
-
katja
-
kolbrunb
-
lillagud
-
lindalinnet
-
birtabeib
-
margretsverris
-
olofk
-
omarragnarsson
-
ragjo
-
rannveigh
-
rosaadalsteinsdottir
-
ruth777
-
marzibil
-
amman
-
ollasak
-
stebbifr
-
fugla
-
saedishaf
-
stormsker
-
skinogskurir
-
lady