Ég er höfuðveikur.

Ég er mjög höfuðverkjagjarn og því er ég á móti sólarveðri og fæ oft  mígreni enda var ég mígrenissjúklingur sem barn og get alveg fengið mígreni aftur en hef ekki mikinn áhuga á því takk fyrir,þannig að frekar kysi ég gjólu og smá vind með og góða rigningu stöku sinnum þannig að ég er eki að djóka eða grínast með sólarveðrið.

Þögul mótmæli við sólarveðri,of háu eldsneytisverði og fleiru.

Burt með sólina,burt með bensínverð og burt með helauma ríkisstjórn.

Tengja.

Fjólurnar fjúka og Finnbogi skiptir um gír,
verðbólgan æðir um hvera,dali og hnjúka,
Jón gamli í Tungu var búmaður mikill og dýr.

Er ekki kominn tími til að tengja?er ekki tími tilkominn að tengja?
tengja,tengja,tengja.

Bílar í bunu og bretarnir gengu á land,
Sindri á Fitjum er ástfanginn pínu í Unu,
allir á hættu við biðskyldumerkið og grand.

Er ekki kominn tími til að tengja............

sóló.

Er ekki kominn tími til að tengja..............

Að tolla tískutegundarmerkinu í,
fékk Dengsi í Felli 8 í frönskuóg þýsku?
féll ekki Jóhannes Sæmundson aftur og enn?

Er ekki tími tilkominn að tengja...............

                              Flytjandi:Skriðjöklar.

                Lag:Bjarni hafþór Helgason/ljóð Arnar Björnson.

                                  KV:Korntop

 

 


Hæhó.

Núna klukkan 11´30 sækir Ferðaþjónustan mig og keyrir mig í vinnuna og sækir mig aftur klukkan 5,eftir það er það skemmtinefndarfundur hjá Ínu og Sigurgeir en ég er formaður nefndarinnar en Átak/Félag fólks með þroskahömlun)er 15 ára þann 20 september og erum við að undirbúa húllumhæ um kvöldið auk þess sem við hjálpum undirbúningsnefndinni með ráðstefnu um daginn.

Annars er bara ekkert að gerast og þar af leiðandi lítið að blogga um þessa dagana nema þetta bölvaða hitaveður sem fer í mínar fínustu taugar en ég verð bara að lifa með því ekki satt?

Læt þessu lokið í bili en blogga meira síðar.

                                        KV:Korntop


Komið gott.

Ég mótmæli harðlega þessu sólarveðri sem verið hefur hér á landi undanfarið,ef fram heldur sem horfir þá eiga margir eftir að fá mígreniskast vegna þess að þeir þola ekki þennann gengdarlausa hita,því segi ég og bið um:RIGNINGU TAKK sem eftir er sumars hér í Reykjavík.

                              KV:Korntop


Til hamingju íslendingar.

Síðan óskar bloggvinum sínum,lesendum sínum svo og landsmönnum öllum gleðilegrar þjóðhátíðar.

                                 KV:Korntop


Úti er ævintýri.

Þa er það klárt,íslendingar komust ekki áfram þrátt fyrir 30-24 sigur á makedóníu en dettum út því liðið tapaði 26-34 fyrir viku en strákarnir reyndu virkilega og litlu munaði þannig að ekki verðum við með á HM í Króatíu í janúar næstkomandi,þannig að nú eru það bara ólympíuleikarnir í ágúst.

Velti því fyrir mér hvort dómararnir hafi fengið dómaraskírteinið í gegnum skafmiða,svo daprir voru þeir pólsku greyin.

En samt sem áður segi ég:Þið reynduð virkilega strákar og ekki heimsendir þó svona hafi farið nú.

                                              ÁFRAM ÍSLAND.

                                               KV:Korntop


Nú er að duga eða drepast.

Núna kl 16 í dag taka íslendingar á móti makedóníumönnum í seinni leik liðanna um laust sæti á HM í handbolta sem verður í Króatíu í janúar.

Nú verða allir að mæta í höllina og sýna stuðning enda þarf að vinnast 9 marka sigur eftir 26-34 afhroð í fyrri leiknum.

ÁFRAM ÍSLAND.

kv:kORNTOP


Smá skerping.

Það er alveg sama hvað fólk segir,ég er heimsins besti bloggari,ég á heimsins bestu bloggvini,ég er toppsöngvari,ér er á frábærum vinnustað,ég er sætastur,bestastur og klárastur enda ofboðslega frægur maður.

Er hæfileikaríkur á mörgum sviðum,á heimsins bestu kærustu,styð hluti eins og hvalveiðar,ESB aðild,er á móti hlutum eins og virkjanabrölti stjórnvalda og kvótakerfinu,en umfram allt þá er allt bjartara og jákvæðara ef maður er ÍR-ingur en ég lít á mig sem heimaræktaðan ÍR-ing.

Þetta sjálfhól er í boði sjálfs mín.

                                          KV:Korntop


Bara staðreynd.

Þá er það ljóst,ég er langbestur enda ofboðslega frægur og ekkert sem hægt er að gera við því enda er ég besti bloggarinn og topp söngvari og það stenst mér enginn snúning í neinu sem ég tek mér fyrir hendur og lykillinn að þessu er einfaldlega sá að ég er og verð alltaf ÍR-ingur.

                                                 KV:Korntop


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

102 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband