Sæl öll.

Komið þið sæl öll bæði bloggvinir og aðrir lesendur,þá er komið að því að segja hvað á daga mína hefur drifið síðasta hálfa mánuðinn og rúmlega það.

Þann 8 ágúst hittumst við nokkrir vinir m ínir í Yrsufelli 5 og pökkuðum hlutum í kassa og bárum í bíla ásamt ógrynni af pokum en þetta var gert til að þungafluttningarnir gætu farið fram á sunnudeginum sem gekk eftir og gengu vel og var nánast allt dótið komið hér á Írabakkann á sunnudeginum en þó voru nokkrir hlutir eftir í svefnherberginu og notaði ég mánudag og þriðjudag(afmælisdaginn minn)eða part af þeim til að koma því í poka en fimmtudaginn 16 ágúst komu vinir mínir aftur á 2 bílum og kláruðum við að flytja og það sem var enn betra,þrifum íbúðina og á þriðjudeginum var lyklunum skilað í Félagsbústaði.

Síðan höfum við hist hér og reynt að koma hlutum fyrir og gengur það bara fínt,það tekur ca hálfan mánuð að koma öllu fyrir eins og ég vil hafa það en þeir sem hafa hjálpað mér að flytja hafa sumir hverjir verið búnir á því sérstaklega líkamlega enda margir vina minna í þéttari kantinum þó ég sé þéttastur en grínlaust,án allra vina minna hefði þetta aldrei gengið upp og færi ég þeim mínar bestu þakkir fyrir.

Ég fór á afmælistónleika Kaupþings á laugardalsvelli og voru þeir hreint út sagt frábærir nema hvað mér þóttu Stuðmenn helst til daprir í þetta skiptið en þeir voru með tilraunastarfsemi sem gekk einfaldlega ekki upp en þeir gera mistök eins og aðrir en er fyrirgefið enda frábær hljómsveit á ferðinni.

Sá flugeldasýninguna á menningarnótt og þvílík hörmung ekki orð um það meir.

En nóg komið í bili,meira síðar.

                            KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gott að heyra að flutningarnir eru afstaðnir og það skemmtilegasta eftir þ.e. að koma sér fyrir.  Sá tónleikana í sjómnvarpinu og sammála þér um Stuðmenn, sakna líka Röggu Gísla úr þeim.  Nennti ekki að horfa á flugeldasýninguna þar sem ég var að horfa á enda á spennandi bíómynd.  Gangi þér allt í haginn.

Vilborg Traustadóttir, 27.8.2007 kl. 18:17

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingju með flutningana. Heyrðu ferðu í tónlistarskólann í vetur?

Síðbúnar afmæliskveðjur.  

Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.8.2007 kl. 12:17

3 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Til hamingju með íbúðina og að vera fluttur , já og til haminjgu með afmælið þó seins sé hihi betra seint en ekki neitt .

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 28.8.2007 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

242 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband