Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
19.12.2008 | 22:40
Það var og.
Var að skoða allar bloggfærslur sem ég hef gert á þessu ári vegna annálanna sem ég mun gera eftir áramót og svo sannarlega var ýmislegt spaugilegt þar á ferð.
Það sem hefur verið gegnumgangandi í færslum gegnum árið er að ég hef hótað að loka síðunni svona 10 sinnum og borið við tímaleysi og mun ég ekki hóta því meir en svona eftir á að þá voru ástæður algerlega út í hött og skiljanlegt að bloggvinir hafi látið mig heyra það á árinu sökum þess.
En ég mun reyna að vera ekki með svona hótanir á næsta ári.
En það sem ég er að vinna að er að koma liðnum"Fréttir vikunnar" í gang aftur auk þess sem kjarnyrtir pistlar verða aftur á ferðinni eftir langt hlé og mun ég líklega verða hvassari í skoðunum.
Síðla árs kom ég með hugmynd að textasíðu sem tengill yrði á og er verið að vinna að þessu máli og er meira kunnáttufólk á tölvur en ég að hjálpa mér í því..
Ljóst er að margt gerðist á arinu og verða annálar því mjög ítarlegir ´æði fréttaannállin og sportannállinn.
Ég mæli með bloggvinahitting eftir áramótin.
Bloggar | Breytt 20.12.2008 kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2008 | 04:31
Hugmynd.
Hef verið að velta því fyrir mér í nokkurn tíma hvort ekki sé möguleiki á bloggvinahitting eftir áramót svona til að við bloggvinirnir getum nú kynnst almennilega.
T.D væri hægt að hittast hjá einhverjum og fara svo á skemmtistað á eftir,einnig mætti hittast á kaffihúsi og gera eitthvað eftir það.
Ég kynntist Ásdísi,Lindu,Ragnhildi ofl fyrir um ári þegar Fjöryrkjar hittu Jóhönnu Sigurðardóttur í Félagsmálaráðuneytinu.
Ég er allavega búinn að velta boltanum af stað og nú er spurningin hvort bloggvinir grípi boltann og barni hugmyndina eins og kallað er.
Það eru bloggvinir bæði á suðurnesjum og fyrir austan fjall auk borgarbúa sem mig langar að kynnast betur.
Er þetta heimsk hugmynd?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.12.2008 | 01:16
Jólin.
Jólasveinar ganga um gólf,
með með gildann staf í hendi.
Móðir þeirra sópar gólf,
og flengir þá með vendi.
Upp á hól,
stend ég og kanna.
Níu nóttum fyrir jól,
þá kem ég til manna.
Þetta er réttur texti við þetta vinsæla jólalag en þetta
Upp á stól,
stendur mín kanna er að margra mati bara bull og þvæla.
Njótið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.12.2008 | 22:19
Ekki er allt sem sýnist í aðdraganda jóla.
Núna liggur það ljóst fyrir að um 2000 heimili munu þurfa á matar og fatagjöfum frá Rauðakrossinum og Mæðrastyrksnefnd þetta árið og hefur aukist um nokkur hundruð í kjölfar kreppunnar en margir hafa misst vinnuna í kjölfar bankahrunsins.
Þetta er skelfileg staðreynd en árlega hafa örorku og ellilífeyrisþegar auk annara sem minna mega sín þegið matargjafir hjá þessum samtökum sem í ár hafa ákveðið að sameinast í þessum gjöfum til þess að sem flestir fái eitthvað og hef ég lesið að fyrir marga þá sem misstu nýverið vinnuna hafi þetta verið þung spor og er ég ekkert hissa á því.
Að mínu mati þarf að gera fólki kleift að lifa hér í þessu landi en margir eru í fúlustu alvöru að spá í að fara úr landi en það er staðreynd sem ekki verður á móti´mælt að það er fátækt á landi hér og var það löngu áður en kreppan skall á.
Ég vona innilega að sem flestir geti haldið jól á íslandi hvort sem það er með fjölskyldunni,Hjálpræðishernum eða annarsstaðar þetta er jú hátíð ljóss og friðar ekki satt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.12.2008 | 11:04
Er allur að koma til.
Já,ég er allur að hressast af veikindunum og eftir að ég fékk íbúfenið þá minkaði kvefið töluvert,höfuðverkurinn,hitinn og hósturinn líka en ég fer ekkert út fyrr en ég verð orðinn endanlega góður að flensunni.
Aðeins af þessari sápuóperu með Reyni Traustason að þá á manngreyið að segja starfi sínu lausu því hann er búinn að gera upp á bak í formi lyga og annara afglapa.
Kem með sprengju í dag eða kvöld þar sem ég mun fjalla um aðventuna frá neikvæðum hliðum því miður-MISSIÐ EKKI AF ÞVÍ.
Þið sem eigið eftir að kjósa í ABBA könnuninni-KJÓSIÐ.
Bless í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.12.2008 | 22:16
Orðið frekar þreytandi.
Æ mig aumann,ég er enn hóstandi og er að verða frekar leiður á því en konan ætlar að fá fyrir mig íbúfen 400 og sé hverju það skilar mér svo fyrir utan það að drekka næg te(en vantar sárgrætilega hunang).
Núna rétt í þessu var konan að koma með íbúfemið og nú skal þetta ganga.
Læt þetta duga í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2008 | 01:25
Sama ástand.
Bara að láta vita að mér líður ekkert betur núna þegar þetta er skrifað heldur en í morgunn,ég er með allann pakkann sem samanstendur af höfuðverk,hita,kvefi og hálsbólgu auk stöku hósta.
Það eina sem ég get gert er að liggja og sofa sem mest og reyna að koma einhverju ofan í mig þess á milli en erfitt var að borða í dag en hinsvegar voru áætlunarferðir á klósett til að kasta af sér vatni tíðar og verður svo væntanlega næstu daga.
Ég vil þakka bloggvinum fyrir góðar bataóskir í minn garð og kann ég að meta þetta og reyni að fara vel með mig.
Sem betur fer kom þetta yfir þegar öllu var lokið þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur að tónleikum eða kaupum á jólagjöfum því hvorttveggja er liðið og get því einbeitt mér að því að fá mig góðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.12.2008 | 00:36
AAAAAAARRRRRRRGGGGGGGHHHHHHH.
Nú fer ég að verða leiður á þessum pestum sem hér ganga
Ég er semsagt orðinn einu sinni enn en ég hef verið hnerrandi og með nefrennsli síðan seinni partinn í dag en ætla þó samt að mæta til vinnu og sjá hvern ig það gengur,nú ef ekki þá fer ég bara heim og beint í rúmið en vonandi er þetta ekki langvinnur djöfull en ég virðist ótrúlega naskur í að næla mér í allskyns pestir því þetta er sú 3/5 svo að fólk getur gert sér í hugarlund að maður sé ekki búinn að fá yfir sig nóg af þessu,það hef ég allavega.
Og nú hefur hálsbólgudjöfull bæst í hópinn og var það nú ekki á það bætandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
14.12.2008 | 08:50
Er það málið?
Hef verið að velta fyrir mér ásamt fleirum svona í aðdraganda jóla hvort það gæti verið að Jesús hafi verið brúnn en ekki hvítur.
Þessu kasta ég hér fram því að menn hafa verið að tala um þetta nokkrum sinnum og sérstaklega vegna þess að í ísrael er fólk ekki beint hvítt heldur svona brúnleitir en að hann hafi verið gerður hvítur til að sýna yfirburði hvíta mannsins.
Ég vil meina að í rauninni hafi Jesus Kristur verið brúnn en ekki hvítur og það skyldi þó aldrei vera?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.12.2008 | 13:51
Flottur dagur.
Það var góður dagur í gær enda í nógu að snúast eins og venjulega þegar ég á í hlut enda aldrei lognmolla í kringum mig eins og bloggvinir vita.
Þetta byrjaði allt klukkan 1 í kringlunni en þar hitti ég Ottó og fengum við okkur að borða en vá hvað það var mikið af fólki þarna,ég hélt að það væru fáir á Stjörnutorgi á þessum tíma en svona er þetta bara.
Klukkan 2 hittum við Aileen en Ottó og hún keyptu jólagjafir í Skífunni sem við skiptumst á um næstu helgi og þar hitti ég Ólöfu Jónsdóttur bloggvinkonu og mikið lítur hún vel út og töluðum við saman í smátíma en það var gaman að hitta hana þarna,en fólksfjöldinn var slíkur að halda hefði mátt að það væri Þorláksmessa en ekki 12 desember,ótrúlegt en jæja,hvað um það?Áfram með smjörið,klukkan 15´30 var ég sóttur og farið með mig í sturtu og þaðan var haldið í Grensáskirkju á jólatónleika Fjölmenntar sem gengu mjög vel og mér frábærlega en þarna voru möprg góð atriði á ferðinni og enduðum á því að allir sungu saman Bjart er yfir Betlehem en breytt var um lag á síðustu stundu en upphaflega átti að syngja Sjá himins opnast hlið en það lag kunna fáir utanbókar og því var þetta góð skipting.
Eftir tónleikana var haldið í vinnugleði þar sem jólagjafir voru afhentar og þar sem ég hélt áfram að syngja og skemmti ég mér konunglega með vinnufélögunum og var kominn heim um miðnætti gjörsamlega búinn á því og er þegar þessi færsla er skrifuð enn dauðuppgefinn.
En eigið góða helgi og farið vel með ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- annakr
- agustolafur
- brjann
- eddaagn
- ellasprella
- georg
- ipanama
- gudruntora
- zeriaph
- gudnim
- harhar33
- heidathord
- helgadora
- krummasnill
- holmdish
- hogni
- inaval
- jensgud
- jonhalldor
- nonniblogg
- jorunn
- katlaa
- katja
- kolbrunb
- lillagud
- lindalinnet
- birtabeib
- margretsverris
- olofk
- omarragnarsson
- ragjo
- rannveigh
- rosaadalsteinsdottir
- ruth777
- marzibil
- amman
- ollasak
- stebbifr
- fugla
- saedishaf
- stormsker
- skinogskurir
- lady
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM: