Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Óréttlæti á hæsta stigi.

Það var og,þetta er mesta óréttlæti sem ég veit um að fötluð ungmenni fái ekki nema part af því sem ófatlaðir jafnaldrar þeirra fá.
Er ekki kominn tími til að breyta þessu og greiða fötluðum ungmennum jafnhá laun til jafns við aðra?

Í þessu tilfelli sem hér er til umfjöllunnar munar þennann einstakling um 20 þúsund krónur sem er bara mjög mikill peningur,mér þykir þetta með lífsins ólíkindum að slík mismunun geti átt sér stað í nútímaþjóðfélagi en minnihlutahópar hafa víst þurft að berjast fyrir rétti sínum í gegnum tíðina og þessa svívirðu verður að stöðva og hugarfarsbreyting að eiga sér stað.

                KV:Korntop


mbl.is Fötluð ungmenni fá ekki full laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst?

Vonandi geta þessir þjófar beðið GUÐ um fyrirgefningu fyrir þetta.
mbl.is Stálu líkani af kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær lærir fólk?

Þetta fer nú að hætta að vera fyndið sko,nú keyrði enn einn ölvaður ökumaður á ljósastaur,hvað hafði aumingja ljósastaurinn gert manninum?ég bara spyr.

Hvað þarf til að ökumenn hætti að keyra undir áhrifum áfengis og vímuefna?Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Ók ölvaður á ljósastaur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pælingar um femínista.

Einn er sá hópur sem ég hef verið að velta mér uppúr seinustu 2-3 vikur en það eru femínistar,hefur þessi hópur komið mér fyrir sjónir sem hópur sem vill banna allt og vill konur í helstu embætti og berst með kjafti og klóm fyrir jafnrétti kynjana og kvenfrelsi og finnst mér það bara gott mál,en þarf femínista til?Spyr sá sem ekki veit.

Einnig hafa femínistar barist fyrir því að klámblöð verði tekin úr hillum bókaverslana og annað í þeim dúr svo eitthvað sé nefnt,einnig berjast þeir gegn ofbeldi,nauðgunum og þess háttar.

En það sem ég er aðallega að pæla í er hugmyndafræði femínista en ljóst er að skoðanir fólks (og þ.m.t. mín)er byggð á fáfræði enda hafa femínistar aldrei verið skilgreindir eða fyrir hvað þeir standa, hver er t.d hugmyndafræði og gildi femínista?hver eru helstu baráttumál þeirra?Ég átti bloggvini hér sem ég missti sökum þess að ég talaði illa um femínista og eins og venjulega að þá var sú umræða byggð á fáfræði,ég held að meginþorri íslendinga skilji ekki femínista og dæmi þá sem öfgahóp,það vil ég ekki gera því eins og ég hef sagt áður að þá er er þetta fólk sem vill vel,ég hef sjálfur dæmt femínista í raun án þess að vita eiginlega fyrir hvað þeir standa og því vil ég reyna að læra eitthvað um þennann hóp.

Þessi pistill er ekki skrifaður í illu heldur til að auka þekkingu mína og skilning á femínistum,ljóst er að fáfræði fólks er mikil þegar kemur að hópum eins og femínistum og úr því þarf að bæta.

Ég vil hér með biðja þá femínista sem sjá og lesa þessa síðu að reyna að útskýra fyrir mér,bloggvinum og lesendum þessarar síður fyrir hvað femínistar standa og þá sérstaklega hugmyndafræðina svo að ég ofl skiljum baráttuaðferðir þeirra tilgang og markmið,í von um skjót viðbrögð.

                                       KV:Korntop


Fréttir vikunnar.

Sæl öll,þá er komið að fréttapistli vikunnar og verður að segjast eins og er að ekki var nú mikið fréttnæmt að mínu áliti en ef ykkur finnst ég hafa gleymt einhverju þá endilega setjið það í comment en eins og síðast þá eru þetta þær fréttir sem ég taldi fréttnæmt í vikunni,verði ykkur að góðu elskurnar mínar.

Mál málanna var eins og áður vinur minn Emil Ólafsson en mál hans tóku á sig ýmsar myndir í vikunni,á þriðjudagskvöld var hann í viðtali í Ísland í dag vegna ásakanna sem á hann eru bornar á bloggsíðu Elíasar Halldórs Ágústsonar um dreifingu á barnaklámi við annann mann árið 1999 og neitaði hann sök og fannst mér hann koma vel út úr þessu viðtali og verð ég að segja að það var rétt ákvörðun hjá honum að fara í þetta viðtal en líklega eru einhverjir þarna úti mér ekki sammála og það er fínt því þá skapast umræður og þá er tilgangnum náð en hefði hann ekki farið í þetta viðtal þá hefði málið litið ansi illa út fyrir hann það eina sem mér fannst ekki við hæfi var bolurinn sem hann var í.

Daginn eftir var bloggsíðu hans lokað vegna ítrekaðra brota á skilmálum mbl og verð ég að segja það að það var rétt ákvörðun því skrifin voru ekki beint falleg,sérstaklega ekki þegar kom að femínistum og konum og jafnrétti þeirra og baráttu fyrir kvenfrelsi en mér finnst að fyrst þessari síðu var lokað að þá verði að halda áfram og klára verkið því nokkrar síðurnar á moggablogginu eru lítt skárri,en Emil opnaði bara nýtt blogg á nýjum server og má búast við honum í sama ham þar.

Í lok vikunnar fór Emil svo í felur vegna hótanna og er hann enn í felum þegar þetta er skrifað.

Annað mál sem fór hátt í vikunni var að 5 unglingspiltar á Akureyri á aldrinum 16-21 rændu hundi af sjaldgæfri hundategund(Chineese eitthvað)settu hann í tösku og spörkuðu henni á milli sín þar til hanjn lést,virkilega viðbjóðslegt enda létu viðbrögð almennings ekki á sér standa og fór mikil bylgja af stað þar sem ódæðið var fordæmt og mættu um 100 manns til "kertavöku"á Geirsnefi paradís hundaeigenda,það nýjasta í þessu er svo það að einum þessara manna hafa borist líflátshótanir og er það að mínu viti kanski fulllangt gengið en þessi hörmulegi verknaður er með þeim viðbjóðslegri sem ég hef lesið og heyrt um í mörg ár.

Enn og aftur voru bílstjórar að kítla pinnann of mikið og hafði lögregla vart undan að taka hraðskreiða ökuþóra fyrir glannaakstur, og ég held að fólk læri ekki fyrr en ökutæki verði gerð upptæk og hátt verð verði sett við að leysa þau út.

Einnig var í vikunni stórt fíkniefnamál þar sem "lítil"6 kg"af kókaíni fundust á Litháa sem var að koma frá Kaunas en þar virðist vera 
starfrækt kókaínrækt sem flytur allt þetta magn hingað en alveg er það merkilegt hvað Litháar eru lagnir við að lenda í klónum á íslenskum toll og lögreglumönnum.

Í vikunni lét Tony Blair formaður breska verkamannaflokksins af embætti forsætisráðherra breta eftir 10 ár og 2 mánuði í starfi og við tók Gordon Brown og byrjaði hann á því að hreinsa ærlega til í ráðherraliðinu því þegar fyrsta stjórn hans var kynnt höfðu 11 ráðherrar fengið að fjúka og aðrir höfðu verið færðir til.

Að endingu má geta þess að KR-ingar unnu sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni er þeir sigruðu FRAM í 8 umferð 2-1 en í þessum leik börðust bræður en Teitur Þórðarson þjálfar KR og Ólafur Þórðarson þjálfar FRAM,í sömu umferð kjöldrógu Valsmenn FH-inga 4-1 og við það helst spennan í deildinni.

Fleira er ekki í fréttum,fréttalestri er lokið.

                        KV:Korntop  


« Fyrri síða

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 205206

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

232 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband