Óréttlæti á hæsta stigi.

Það var og,þetta er mesta óréttlæti sem ég veit um að fötluð ungmenni fái ekki nema part af því sem ófatlaðir jafnaldrar þeirra fá.
Er ekki kominn tími til að breyta þessu og greiða fötluðum ungmennum jafnhá laun til jafns við aðra?

Í þessu tilfelli sem hér er til umfjöllunnar munar þennann einstakling um 20 þúsund krónur sem er bara mjög mikill peningur,mér þykir þetta með lífsins ólíkindum að slík mismunun geti átt sér stað í nútímaþjóðfélagi en minnihlutahópar hafa víst þurft að berjast fyrir rétti sínum í gegnum tíðina og þessa svívirðu verður að stöðva og hugarfarsbreyting að eiga sér stað.

                KV:Korntop


mbl.is Fötluð ungmenni fá ekki full laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Er ekki greitt fyrir getu ?

Þröstur Unnar, 4.7.2007 kl. 08:38

2 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þröstur. Í minni vinnu þar sem vinna um 40 einstaklingar, eru allir heilbrigðir á sál og líkama en með afar misjöfn afköst. Alveg óþolandi léleg afköst hjá sumum og lendir það á vinnufélaganum ef maður er slóði. Á að greiða mismunandi laun eftir afköstum? Ég er hrædd um að eitthvað myndi hvína í kotinu þá.

Þetta er forkastanlegt hvernig farið er með þessa einstaklinga. Eins og ég sagði á síðu minni ætti frekar að hafa styttri vinnudag á sama tímakaupi og hinir, þó það sé ekki gott, þá er það skárra en núverandi ástand.

Rúna Guðfinnsdóttir, 4.7.2007 kl. 08:46

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Nei,sá/sú fatlaði einstaklingur sem ræður sig í vinnu fær greitt samkvæmt samningum viðkomandi stéttarfélags,ef við komandi einstaklingur ræður sig í 50% starf þá á hann/hún að fá greitt í samræmi við það og ekki krónu minna.

Magnús Paul Korntop, 4.7.2007 kl. 08:51

4 identicon

Sammála þér Magnús. En hvaða vitleysa er þetta í Þresti? Af hverju í ósköpunum heldur hann að fötluð ungmenni "geti" eitthvað minna en önnur ungmenni? Ferlegt að koma svona upp sig. Gamaldags og fordómafull viðhorf.

Kristín Björnsdóttir (IP-tala skráð) 4.7.2007 kl. 09:43

5 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Já, eins og ég sagði, þá mætti líta í mörg horn atvinnulífsins ef borga ætti eftir afköstum.

Rúna Guðfinnsdóttir, 4.7.2007 kl. 10:13

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Er alveg samála þér mikið Óréttlæti.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.7.2007 kl. 10:27

7 Smámynd: Þarfagreinir

Ömurlegt að í fyrstu athugasemdinni hérna sé gert ráð fyrir að fatlaðir hafi sjálfkrafa minni getu en aðrir, og að það sé einhver réttlæting fyrir því að greiða þeim minna sem hópi. Svona alhæfingar ganga einfaldlega ekki upp. Þess fyrir utan þá tíðkast ekki í þessu borgarkerfi yfir höfuð að vera að mæla getu og afköst og greiða í samræmi við það. Af hverju er þá verið að sigta fatlaða sérstaklega út?

Þarfagreinir, 4.7.2007 kl. 10:54

8 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er mjög óréttlátt og á bara ekki að þekkjast í okkar þjóðfélagi !!

Ragnheiður , 4.7.2007 kl. 13:02

9 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Svona framkoma er til skammar og niðurlægjandi fyrir einstaklingana.

Ester Sveinbjarnardóttir, 5.7.2007 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

231 dagur til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband