07.06.09

Í dag er stefnan tekin í kringluna og keyptir 2 diskar(Paparnir og Ljótu hálfvitarnir) auk þess sem ég ætla að verða mér út um miða á handboltalandsleikina við Noreg og Makedóníu en þessir tveir leikir munu skera úr um hvort Ísland verður með í úrslitakeppni evrópumótsins í handbolta sem fram fer í Austurríki í janúar á næsta ári.

Annars var helgin bara góð,fór að sjá frábært hollenskt landslið vinna okkar menn 2-1 en einhvernvegin fannst manni að hollendingarnir gætu skorað ef þeir nenntu því og vorum við þrælheppnir að vera ekki undir 0-5 í hálfleik en seinni hálfleikur spilaðist eins og hollendingarnir hefðu fulla stjórn á hlutunum.

Einnig var golf og NBA fyrirferðamikið en annars slappaði maður bara af og hlóð batteríin sem maður gerir áfram þessa vikuna áður en íbúðin verður tæmd í næstu viku.

Vikan verður nýtt í að glápa á meiri fótbolta og NBA enda lokaúrslit Lakers og Magic hafin og Lakers 2-0 yfir eftir leikinn í nótt sem Lakers vann 101-96 eftir framlengingu og fékk Orlando liðið tækifæri á að klára leikinn í lok venjulegs leiktíma en tókst ekki.

Er ekki viss um hvað verður með þessa síðu hvort þetta verði sportsíða eða fjalli bara um mig og það sem ég er að gera er hættur að tjá mig um pólitík því aðrir sjá um það en ætla þó að staðhæfa að núverandi ríkisstjórn virðist ekki vera í takti við fólkið í landinu,það sjá aðrir um að sinna pólitískri umræðu hér á blogginu og ég þarf ekki að vera í þeim hópi nema mér verði gróflega misboðið þá mun ég tjá mína skoðun annars láta það ógert.

Annars er það mín skoðun að síðan sé í góðum farvegi eins og hún er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Gott að Hollendingar skoruðu ekki meira en það munaði mjóu oft. Þeir tóku okkur í bóndabeygju.

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.6.2009 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 205169

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

240 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband