26.3.2008 | 17:32
Íslenska dómskerfið í nútímann,takk fyrir.
Hef verið að velta íslenska dómskerfinu fyrir mér undanfarið og lesið dómsniðurstöður til að reyna að fá einhvern botn í hvað veldur hálfvitalegum dómum æ ofan í æ en ljóst er að eitthvað meira en lítið er að í dómskerfi okkar íslendinga og sýna nýlegir dómar svo ekki verður um villst að gera þarf gangskör í því að koma þessu kerfi til nútímans,því fyrr því betra,en byrjum á byrjuninni.
Kynferðisbrot:
Fyrir ári síðan var þroskahamlaður einstaklingur sýknaður af ákæru í máli gegn mikið fatlaðri stúlku en málflutningur hennar var mjög gloppóttur svo að sýkna var niðurstaðan.
Nokkru síðar var annar þroskahamlaður eintaklingur sýknaður fyrir sama brot og var málflutningur stúlkunni að falli,nú vill þannig til að ég þekki alla þessa aðila og ef þessir 2 þroskahömluðu einstaklingar hefðu verið dæmdir sekir þá hefði fangelsi ekki verið rétt leið heldur að vista þá á viðeigandi stofnun í ákveðinn tíma og láta þá svo vera undir eftirliti í einhvern tíma þar á eftir vegna þroskaskerðingar þeirra en þeir voru sýknaðir og því þarf ekki að koma til þess.
Yfirleytt eru ófatlaðir menn sem gera svona og misnota þá dætur,frænkur eða bara litlar stelpur og eru menn að fá þetta á bilinu 6 mánaða-2 ára fangelsi(Gæsluvarðhald dregst frá)og stundum eru þessir dómar skilorðsbundnir í 2 ár sem er alger firra og hvaða skilaboð er verið að senda út í samfélagið með þessu?Svar:Haldið þessu bara áfram,við tökum ekki alvarlega á þessu máli,semsagt enginn vill taka ábyrggð á kynferðisbrotamálum.
Mitt mat á refsingu: Lægsta refsing 3-4 ár óskilorðsbundið og burt með fyrningarnar.
Ofbeldisbrot:
Nú nýverið var í Hérraðsdómi Reykjavíkur tekið fyrir mál ákæruvaldsins gegn 3 Litháum sem réðust á lögreglumenn í starfi og var dómurinn ansi skrautlegur því einn var dæmdur sekur og 2 sýknaðir þótt vitað væri að þeir hefðu allir verið að verki en þeir kunnu að slást því aðfarir þeirra gagnvart lögreglumönnunum voru þess eðlis að halda mætti að þeir hefðu verið í Liháska hernum.
Að mínu mati hefðu allir þessir menn átt að fá 10 ára fangelsi fyrir að ráðast á opinbera menn í starfi og vona ég svo sannarlega að Hæstiréttur þyngi refsinguna verulega.
Fyrir skömmu var móðir í umboði dóttur dæmd til að greiða kennara rúmar 9 miljónir króna fyrir það að dóttir hennar skellti hurð framan í kennara,að mínu mati er þetta fáránlegur dómur og ég spyr því hvort þessi dómur hafi fordæmisgildi?Og ég svara:Vonandi ekki því sé svo þá getur hvaða kennari sem er farið í mál við þann nemanda sem skellir hurð á hann og gleymum því ekki að þessi stúlka er fötluð.
Mér finnst þessi dómur forkastanlegur og vonandi snýr Hæstiréttur þessum dómi við og sýknar móðurina/stúlkuna.
Af þessu verður ekki betur séð en að dómar hér á landi séu mjög vægir og herða beri viðurlög verulega og lagabreytinga jafnvel þörf því oft er vitnað í lög frá 1940 ef ekki eldra,færa þarf lögjöfina inn í nútíma samfélag og taka mið af ástandinu í dag,byrjað er að þyngja dóma fyrir fíkniefnabrot og er það ágæt byrjun en það þarf að þyngja refsirammann yfir alla línuna svo að sakborningur skilji að það sé tekið á málum af festu.
Einnig þarf að breyta skipan dómara í Héraðsdóm og Hæstarétt og þeir hæfustu verði valdir hverju sinni en ekki af handahófi eins og gerðist nýverið þegar settur dómsmálaráðherra setti Þorstein Davíðson í embætti á Norður og Asturlandi þvert á hæfnismat sérstakrar nefndar sem sér um að meta hæfi dómara.
Að áðursögðu verður ekki betur séð enn að dómstólar landsins séu á villigötum og brýnna úrræða er þörf,breyta þarf hegningarlögum og öðrum lögum s.s frá 1940,fólk er hætt að treysta dómstólum landsins og ef það traust á að komast á aftur verður að færa dómskerfið í nútímann og það sem fyrst áður en það er um seinan.
KV:Korntop
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- annakr
- agustolafur
- brjann
- eddaagn
- ellasprella
- georg
- ipanama
- gudruntora
- zeriaph
- gudnim
- harhar33
- heidathord
- helgadora
- krummasnill
- holmdish
- hogni
- inaval
- jensgud
- jonhalldor
- nonniblogg
- jorunn
- katlaa
- katja
- kolbrunb
- lillagud
- lindalinnet
- birtabeib
- margretsverris
- olofk
- omarragnarsson
- ragjo
- rannveigh
- rosaadalsteinsdottir
- ruth777
- marzibil
- amman
- ollasak
- stebbifr
- fugla
- saedishaf
- stormsker
- skinogskurir
- lady
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Hver ER; LJÓSBERI jarðarbúana þegar að það kemur að heimsóknum gesta frá öðrum stjörnukerfum?
- Hægt með krónunni?
- Er Kína í stríði við Evrópu??
- Karlmannatíska : RALPH LAUREN Polo Holiday 2024
- Hérna eru gamlar TÆKNITEIKNINGNAR af HINU NÝJA GOSI sem að er nú NÝ HAFIÐ: 20.NÓVEMBER 2024 en beðið er eftir NÝJUSTU TÆKNITEIKNINGUNUM:
Athugasemdir
góða færsla hjá þér Magnús.
Óskar Þorkelsson, 26.3.2008 kl. 19:10
Góð lesning hjá þér.Dómskerfið hér er mjög furðulegt
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 19:17
Góð færsla og vel skrifuð. Ég get tekið undir með þér í öllum atriðum. Furðulegir dómar hafa fallið og fólk virðist vera sammála um það, en það er eins og dómsvaldið sé ekki á sama siðgæðisplani og almenningur. Ætli einn kúrsinn í Lögfræðináminu sé: "Hvernig stuða á almenning"?
Sigrún Jónsdóttir, 26.3.2008 kl. 20:11
Dómskerfið er úrelt og það þarf ný lög sem samhæfir nútímanum
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.3.2008 kl. 20:14
Góður pistill hjá þér og er þér sammála
Svanhildur Karlsdóttir, 26.3.2008 kl. 20:20
ó já, sammála, þetta er frábær pistill :)
halkatla, 26.3.2008 kl. 20:37
Það er margt bogið í réttarkerfinu
Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2008 kl. 21:48
alveg sammála , t.d. gerðist eitt fyrir 6.árum þegar tveir menn réðust að einum manni að tilefnislausu og enduðu líf hans . börðu hann til dauða fyrir utan einn gay-bar i miðbænum . man ekki undir hvaða undirflokk þessi árás var kölluð en einn mannana fékk 4.ár fyrir þetta ásamt öðrum líkamsárásum og hinn fékk 2.ár. og fjölskylda mannsins sem dó er buin að eiga mjög erfitt eftir þetta , þetta er bara eitt dæmi af mörgum eins og snillingurinn maggi korntopp nefnir hér i þessari færslu , eitthvað verður að fara að gera i þessu :)
sigurður jónsson (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 00:57
Sæll Maggi.
Mjög góð færsla sem ég ætla ekki að fara nánar út í.
Gangi þér vel.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 07:41
Hvernig er það eiginlega?þora virkilega ekki fleiri að tjá sig hérna?Er fólki bara alveg sama um dómskerfið?Koma nú og tjá sig.
Magnús Paul Korntop, 27.3.2008 kl. 16:49
Ég er mikið sammála þér með dóminn sem felldur var vegna telpunnar sem skellti hurðinni. Ég átti ekki til eitt aukatekið orð þegar ég heyði þetta.
Það er nú svo Magnús minn sæll og góður, að mannssálin hefur verið og verður alltaf í litlum metum. Ef þú misnotar barn, þá deyr það þó hjartað slái. Það er eins og það sé hræðsla við að dæma kynferðisafbrotamenn eins og sanngjarnt er.
Rúna Guðfinnsdóttir, 27.3.2008 kl. 16:59
Sæll Magnús. Frábær færsla.
Baráttukveður fyrir réttlætinu.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.3.2008 kl. 20:27
Sæll Maggi minn, mjög góð færsla og þörf umræða. Ég er eins og þú, ég skil hvorki upp né niður í þessu handónýta dómskerfi sem er á skerinu. Eigðu góðan dag, kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 27.3.2008 kl. 23:43
Það er mikið til í þessu hjá þér Maggi en,aðgát skal höfð báðu megin!!!það sem manni fyynst mest að að menn skulu ekki dæmdir meira til samfélagsþjónustu/Kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 28.3.2008 kl. 17:20
íslenska dómskerfið er orðið úrelt.T.d dómurinn sem féll í máli stúlkunnar þar sem að móðurinni ber að greiða 11 milljónir vegna þess að' hurð fell á kennara.Þegar barn er komið i annnara manna vorslu þa ber sá aðili ábyrgð á barninu.Stúlkan er með þroskahömlun það er ekki hægt að dæma einstakling ´´ut frá einhverju fræðsluefni. Það er mjög mikilvægt að þessir sérfróð vitni seu einhverjir sem að hafa þekkingu á málefninu og að meðdómarar séu i þessiu til felli einhverjir sem að geta gefið ´dóm eftir þekkingu. Þetta er líka alvarlegt þegar ríkið tekur á sig enga ábyrgð. Þetta er brot sem að barn á ekki að þurfa að eingöngu acla ábyrgðina.Mer finnst að þetta gefi skólum aukið vald það þarf að herða eftirlit. Þessi dómur er umhugsunarefni.
Mer finnst að skoða .urfi þetta dómskerfi þyngja dóma yfir t.d likamsárasum
og morð á að vera lífstið
kv aileen
aileen (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 12:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.