9.3.2008 | 00:59
Hátt bensínverð og frábær leiksýning.
Það hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði að bensínverð hefur rokið upp og er að stefna í áður ókunnar hæðir hvað verð varðar en síðast þegar ég leit á bensíndælu í kvöld var líterinn kominn í 147 krónur tæpar og verð á díselolíu var í 154 krónum en fyrir ári kostaði líterinn 117 krónur og með sama áframhaldi þá rýfur bensínverð 200 króna múrinn í lok árs.
Hef ég heyrt það á konunni minni og fleirum sem reka bíl að æ erfiðara sé að halda honum gangandi vegna einmitt tíðra hækkana á bensíni sem sagt er stafa af háu heimsmarkaðsverði en staðreyndin er sú að þegar heimsmarkaðsverð lækkar þá eru bara aðrar ástæður fundnar ef ef heimsmarkaðsverð hækkar þá er hækkað umsvifalaust um 2-3 og allt upp í 5 krónur líterinn og skilst mér að það kosti orðið á annann tug þúsunda að fylla bensín á bíl það er nokkuð mikið finnst ykkur ekki?það finnst mér allavega.
Af hverju kemur ríkið ekki til móts við bifreiðaeigendur og lækkar skatta eða annað í þeim dúr til að lækka bensínverð á Íslandi?
Nei auðvitað gerir ríkið það ekki því það kemur neytendum til góða og ef eitthvað er gott fyrir neytendur þá er það þyrnir í augum ríkisins en vonandi sér ríkið að sér og spyrnir við fótum.
Vil benda ykkur á að kjósa í skoðanakönnuninni en þar er spurt hvort bensínverð sé of hátt á Íslandi segið ykkar skoðun og kjósið í könnuninni,því fleiri sem kjósa því marktækari er könnuninn.
For með konunni í kvöld í Borgarleikhúsið að sjá Jesús er kúl á stóra sviðinu og vorum við sammála um að sýningin hafi verið mjög góð í alla staði og leikurunum til sóma,Krummi söng Jesú með tilþrifum en að mínu mati var það frammistaða þess sem syngur hlutvert Júdasar sem vakti aðdáun mína en einnig stóð sú sem söng Maríu Magdalenu sig frábærlega en þessi uppfærsla er færð í nútímann og ætlaði að missa andlitið þegar strákur á reiðhjóli kom á sviðið í byrjun sýningar og einnig var atriðið sem gerist í Getsemanegarðinum fyndið en þar fór síðasta kvöldmáltíðin fram en þar var búið að breyta því í útihátíðarstemmingu menn drekkandi bjór,spilandi á gítar og frísbídiskum hent á milli manna en ekki ætla ég að segja of mikið um sýngu þessa en hvet ykkur bloggvinir og aðrir lesendur að kaupa miða á þessa sýningu og ég lofa að þið verðið ekki svikin af henni.
En nóg komið í bili-meira seinna og hafið það gott elskurnar.
KV:Korntop
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 205420
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- annakr
- agustolafur
- brjann
- eddaagn
- ellasprella
- georg
- ipanama
- gudruntora
- zeriaph
- gudnim
- harhar33
- heidathord
- helgadora
- krummasnill
- holmdish
- hogni
- inaval
- jensgud
- jonhalldor
- nonniblogg
- jorunn
- katlaa
- katja
- kolbrunb
- lillagud
- lindalinnet
- birtabeib
- margretsverris
- olofk
- omarragnarsson
- ragjo
- rannveigh
- rosaadalsteinsdottir
- ruth777
- marzibil
- amman
- ollasak
- stebbifr
- fugla
- saedishaf
- stormsker
- skinogskurir
- lady
Athugasemdir
þetta er rétt hjá þér með ríkið Maggi..þeim er skisama um þegna þessa lands, við erum bara hagtölur i excel skjali.
Óskar Þorkelsson, 9.3.2008 kl. 09:55
Já bensínið er alltof dýrt. Kveðja.
Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 16:33
frábært bloog þetta er ekki að verða fyndið þetta verð
aileen
aileen (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 17:03
Er ekki bara allt að hækka alltaf...
Linda litla, 9.3.2008 kl. 19:50
Ísak: Ég tek nú Ferðaþjónustu Fatlaðra í og úr vinnu og heppinn er ég að vera ekki að reka bíl.
Óskar: Nákvæmlega og ekkert annað.
Kristín Katla: Get ekki verið meira sammála.
Aileen: Það er sko alveg rétt hjá þér að þetta er nú hætt að vera fyndið.
Linda: Það er alltaf verið að hækka hlutina hér á landi og breytir þá engu hvort um sé að ræða matvörur eða bensínverð enda er Ísland dýrasta land í heimi.
Magnús Paul Korntop, 9.3.2008 kl. 21:56
Bíllinn er orðinnn dýr í rekstri, svo sannarlega. Vonandi fer bensínið að lækka aftur.
Ég er að fara að sjá La Traviata í Íslensku Óperunni þann 19. mars. Hlakka gríðarlega til
Rúna Guðfinnsdóttir, 9.3.2008 kl. 22:26
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæll Magnús minn.
Þakka þér fyrir þennan magnaða pistil.
Oft hef ég tekið eftir því að það lækkar bensínverð á heimsmarkaði en þá hækkar bensínverð á Íslandi.
Furðulegt
Jesús er kúl
Kær kveðja
Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.3.2008 kl. 10:05
þetta er barasta svinari þetta eldneytisverð/Kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 10.3.2008 kl. 14:57
Algjört svínarí. Heiða er hætt að blogga í bili, allavegana. Kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 10.3.2008 kl. 16:06
Jæa,algert svínarí en Ásdís,já það hlaut að vera því ég skyldi ekkert í því hvers vegna hún hvarf af bloggvinalistanum en það hlaut að vera eðlileg skýring á því og vonandi kemur hún aftur jingað,ég bið að heilsa henni.
Magnús Paul Korntop, 10.3.2008 kl. 16:47
Ég er að spá í að fara að hjóla eða labba. Það er heilsusamlegra og ódýrara!
Kallý, 10.3.2008 kl. 17:50
þetta er orðið alltof hátt verð á bensíni
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.3.2008 kl. 22:19
Kallý: Hvað segirðu frænka?á að fara að hjóla í þessum snjó,ég bíð eftir vorinu til þess?hvað þá að labba,en eitthvað verða menn og konur jú að gera fyrst bensín og díselverð er orðið svona líka gígantískt hátt.
Já linda og hækkar meira eftir því sem á árið lýkur.
Magnús Paul Korntop, 10.3.2008 kl. 22:48
Velkominn á bloggvinalistann minn
Guðrún Jóhannesdóttir, 11.3.2008 kl. 01:00
Takk fyrir það Guðrún mín,sömuleiðis,vonandi eigum við góð samskipti hér á síðunni í gegnum commentakerfið.
Magnús Paul Korntop, 11.3.2008 kl. 01:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.