Is it true?

Nú í kvöld fór fram í Moskvu söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og er óhætt að segja að Jóhanna Guðrún og aðrir sem þátt tóku fyrir hönd íslands hafi staðið sig vel og verið landi okkar til sóma enda lenti framlag íslands í 2 sæti en um 140 stigum á eftir Noregi sem vann með fáheyrðum yfirburðum og hlaut 357 stig en við 218.

Ég skrifaði fyrr í kvöld að fluttningurinn hafi verið dapur og hörmulegur og var það gert til að skapa smá skammir frá ykkur.

Staðreyndin er hins vegar sú að Jóhanna gerði þetta fum og hnökralaust og var sér og öllum til sóma.

Áhugaleysi mitt á þessari keppni hefur verið vegna þess að besta lagið er ekki að vinna eins og áður fyrr en það var svo sannarlega besta lagið sem vann í ár og mun ég örugglega fá meiri áhuga á næsta ári.

Til hamingju Jóhanna-til hamingju íslenska þjóð.


Dapurt.

Hörmungarframmistaða hjá Jóhönnu,þetta var ámátlegt og alger hörmung.

Með þessari dellu endum við á botninum í 25 sæti nema GUÐ verði oss góður.


Lítt spenntur.

Það fer ekki mikið fyrir spennu vegna "svindlkeppninnar" Eurovision á morgunn og er mér nokk sama hvar við lendum.

Hér áður fyrr þá vann yfirleytt besta lagið og maður kunni þau og söng hástöfum enda mikið spiluð í útvarpinu.

En 1990 eða um það bil varð breyting á til hins verra,lögin urðu verri og svindlið allsráðandi auk þess sem enginn kann sigurlögin lengur og er það af sem áður var.

Hvað varðar keppnina á morgunn þá held ég að flestir séu mér sammála um að lögin frá Grikklandi og Noregi séu áberandi best auk þess sem framlag okkar Is it true? með Jóhönnu Guðrúnu er mjög frambærilegt og á að enda meðal 10 efstu en einhvernveginn læðist það að mér að öll þessi lög fái ekki hljómgrunn á morgunn og er það eiginlega komin ástæðan fyrir áhugaleysi mínu á keppninni sem er af sem áður var þegar áhuginn var gígantískur en semsagt: Besta lagið er ekki að vinna Eurovision og það finnst mér skandall.


Lítið um blogg.

Það verður ekki mikið um blogg næstu vikuna sökum anna í söng og æfingar tengdum því,tvennir tónleikar og það er bara ærinn starfi að koma þeim af sér en ken kanski með úrslit í leikjum og stöðu í deildum en ég bið fólk um að vera þolinmótt.

En nýjustu úrslit:Boston Celtics 92-88 Orlando Macig eftir að hafa lent mest 14 stigum undir í 4 leikhluta.

Leikir í kvöld: ÍBV-Breiðablik í Pepsídeild karla kl 19´15.
Athletico Bilbao-Barcelona í úrslitum spænska konungsbikarsins og er sýndur á Stöð 2 sport kl 18´45 í beinni.
Wigan-Manchester United í ensku úrvalsdeildinni og er sýndur á Stöð 2 sport 2 kl 18´45 í beinni.


Spá um röð liða í Pepsí deild karla.

Hér kemur mín spá um röð liðanna 12 í Pepsídeild karla keppnistímabilið 2009 og verð að segja að hún er nokkuð frábrugðin þeim spám sem ég hef séð og eru hreinlega snarklikkaðar en hér kemur enn ein klikkaða spáin.

1. Valur
2.FH.
3.KR.
4.Keflavík.
5.Breiðablik.
6. Vestmannaeyjar.
7. Fylkir.
8. Grindavík.
9. FRAM.
10.Þróttur.
11.Fjölnir.
12. Stjarnan.


Sorrý.

Vegna mikilla anna við allt mögulegt seinustu vikuna hefur ekki gefist tími til skrifa umsögn um leik Vals og Hauka og læt það ógert að sinni enda vita allir sem vit hafa á handbolta hvernig fór.

Mun vonandi hefja þessar lýsingar á morgunn eftir KR-Fjölnir en vil þó taka fram að ef umsögn kemur ekki 2 dögum eftir leik að þá verður henni einfaldlega sleppt.

 

 


Síðar.

Haukar urðu í kvöld íslandsmeistarar í handknattleik með því að "blóðflengja" líflausa valsmenn 25-33 eftir að staða í leikhléi hafði verið 15-16.

Umsögn um leikinn kemur í nótt eða fyrramálið.


Takið eftir.

Í kvöld verður flautað til leiks 4 í úrslitaviðureign Vals og Hauka í Og Vodafone höll þeirra valsmanna að Hlíðarenda og verður flautað til leiks á þeim óvenjulega tíma 20´15.

Ég hvet ykkur til að fjölmenna á leikinn,íþróttafréttastofan verður á staðnum og kemur með frétt um leikinn síðar í kvöld.

 


Breytingar.

Eftir að hafa legið undir felld undanfarið hef ég ákveðið breytingar á síðunni frá og með deginum á morgunn að telja og lúta að því að nú verður sportið allsráðandi en handboltinn er að enda,úrslitakeppni NBA stendur sem hæst og svo hefst íslandsmótið í knattspyrnu um næstu helgi og ætla ég að sinna þessu vel í sumar og svo áfram í vetur þegar hand og körfuboltinn byrja aftur auk annarra inniíþrótta.

Þar með lýkur þjóðmálaumræðum hér en þær hafa verið litlar upp á síðkastið hvort eð er og einnig mun ég ekki lengur segja mitt álit á fólki eins og seinustu 2 færslur bera merki um en það er víst bannað því þá fer viðkomandi að brynna músum og tekur mig af vinalistum-gott hjá viðkomandi.

Þessu verður semsagt hætt en dómarar og leikmenn munu fá að heyra það í staðinn og þá bæði já og neikvætt.

En semsagt:sportsíða skal þetta vera ogekki orð um það frekar.


Frekja.

Ég vil vegna ummæla minna um Jenný Önnu og Heiðu,taka það fram að ég stend við hvert orð sem ég hef sagt um hinar afturhalssinnuðu og öfgafemínísku femínista sem tjá sig um allt milli himins og jarðar án þess að vita stundum hvað þær eru að tjá sig um.

Ég hvet alla sem vilja loka á vináttu mína hér á moggabloggi og Facebook að gera það bara,það yrði bara leiðinlegast fyrir ykkur sem það gerið.

Ragnheiður Hilmarsdóttir gerði það í dag án þess að það snerti hana neitt en ég sakna ekki fólks sem lokar vináttuni vegna þess eins að ég tjái mig um persónur,þetta er frekja á hæsta stigi en þetta sýnir bara afturhaldsöflin hér á blogginu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

32 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband