Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
19.9.2007 | 09:01
Þarf að breyta íslandssögunni?
Undanfarin ár hafa fræðimenn komist að því með sólarganginum,það að á þessum tíma var árið ekki 365 dagar og lesturs á fornminjum frá Víkingaöld til þess tíma er Sturlungaöld(Þjóðveldisöld)endar að tímasetning á lykilatburðum sé röng og að í nokkrum tilfellum skeiki nokkrum árum,ég ætla hér á eftir að að taka það helsta en of langt mál væri að telja allt upp en byrjum á byrjuninni.
Ísland fundið 874?Við þessu hefur verið sett stórt spurningarmerki og vilja fræðimenn meina að landið hafi fundist nokkrum árum fyrr eða 867 eða þar um bil.
Alþingi stofnað á Þingvöllum 930?Þarna vilja menn meina að þessi atburður hafi gerst 928 á Þingvöllum er Úlfljótur setti fyrst lög á Íslandi.
Kristnitakan árið 1000 á Þingvöllum?Þarna eru að mér skilst skiptar skoðanir og vilja flestir meina að þessi merki atburður hafi átt sér stað árið 999 en ekki árið 1000.
Örlygsstaðarbardagi 1238?Einhvernveginn fá þessi fræðimenn það út að þessi bardagi hafi verið 1237 eða skömmu eftir að Gissur Jarl slapp úr fangavist Sturlu Sighvatsonar að Apavatni.
Eftir þessa upptalningu á atburðarrásinni virðist þurfa að breyta kenslubókum og kenslu í Íslandssögu almennt,ég hinsvegar ætla að halda mig við það sem ég lærði í skóla og hef lesið mér til gamans síðan þar til annað kemur í ljós,mér þykir ekki ástæða til að breyta sögunni ef ekki eru nægar rökstuddar sannanir fyrir að svo hafi verið.
PAX VOBIS-KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.9.2007 | 00:57
Ný könnun.
Nú er komin ný könnun og nú er spurt hverjir munu falla úr úrvalsdeild karla og eru eingöngu 4 lið sem hægt er að velja um,HK, Fram,Víkingur og KR,ég hvet stuðningsmenn þessara liða að flykkjast hingað og taka þátt í þessari könnun og munum það að því fleiri sem taka þátt því marktækari er könnunin.
Í seinustu könnun var spurt hver væri besti erlendi dægurlagasöngvari sögunnar og eftir harða keppni bar Elvis Presley nauman sigur úr býtum með 7 atkvæði en næstur kom John Lennon með 5 atkvæði.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2007 | 12:32
Enn af sýknudómum.
Ætla aðeins að bæta við skoðanir mínar um sýknudóminn sem kveðinn var upp yfir misþroska manni fyrir um 2 vikum og eftir að hafa lesið dóminn þá skil ég vel af hverju ákærði var sýknaður en eins og ég sagði í fyrri pistli þá er ég mjög ánægður með að ákærði var sýknaður,fólk má hneykslast yfir því en mér er nokk sama því ef hann hefði verið fundinn sekur og unnið til þess að þá hefði ég fagnað því en nú hnigu öll rök í þá átt að hann var sýknaður og skal ég koma að því hér.
Þegar maður les dóminn þá er gegnum gangandi að í öllum skýrslum sem teknar voru af A(Fórnarlambi)koma í ljós miklar gloppur og ekki heil brú í því sem hún sagði,t.d kemur fram að hún man ekki hvenær hún á afmæli,þegar hún er spurð út í atburðarrásina þegar umræddur verknaður á að hafa átt sér stað þá er hún út og suður með allt saman og t.d kemur fram að hún hafi ekki sagt nei heldur hjálpað ákærða að afklæða sig,og þó ég kunni ekki bofs í lögfræði þá veit ég að svona gloppur eru sakborning ALLTAF til tekna en skýrslur yfir honum af atburðum kvöldsins var einfaldlega heildstæðari og þess vegna var hann sýknaður af öllum ákærum.
Einnig kemur fram í dómnum sú ranga staðhæfing að ákærði eigi erfitt með hreyfigetu,slíkt er alrangt,hann stundar frjálsar íþróttir,knattspyrnu og lyftingar/aflraunir svo eitthvað sé nefnt og ef það er merki um að eiga erfitt með hreyfigetu þá er eitthvað mikið að.
Þrátt fyrir þetta þá er nauðgun alvarlegur verknaður og ber að breyta dómum vegna þeirra en ef engar sannanir eru fyrir hendi eins og virðist vera í þessu tilfelli þá er ákærði hver svo sem hann er einfaldlega sýknaður,svo einfalt er það bara.
Nú þekki ég fórnarlambið einnig og veit að þar fer góð stelpa en vanþroski hennar varð henni að falli að þessu sinni og ekki hægt að kenna henni um frekar en ákærða,ég hef einnig talað við vitni sem voru á umræddu balli og eftir að hafa heyrt þeirra hlið á málinu er ég ekki hissa á þessari sýknu.
Ég hef sagt ákærða og öðrum félögum mínum að þeir verði að passa sig og gera greinarmun á réttu og röngu en það sem þarf að gerast er aukin fræðsla og skilst mér að Styrktarfélag Vangefinna sé með slíkt á dagskrá og þá vona ég að þeir sem eru misþroska fjölmenni,ÁTAK(Félag fólks með þroskahömlun)mun örugglega benda sínum félagsmönnum á að mæta á slík námskeið.
Það sem mér hefur hinsvegar fundist er að fólk alltaf að bendla þroskahömluðu fólki við svona verknað en það eru fleiri hópar sem leika þennann ljóta leik að nauðga andlega fötluðum stelpum og þegar refsirammi fyrir slík brot er jafn fáránlegur og hann er þá er ekki von að neitt breytist.
Það sem þarf að fara að gerast er að breyta þarf dómskerfinu og færa það til nútímans og herða refsirammann sérstaklega við nauðgunum,að mínu mati er nauðgun andlegt morð og ætti að dæmast sem slíkt,t.d ætti hámarksrefsing fyrir nauðgun að vera á bilinu 5-10 ára fangelsi,ef hinsvegar þroskahamlaður einstaklingur yrði dæmdur sekur ætti hámarksrefsing að vera sú að viðkomandi yrði undir eftirliti geðlækna eða sálfræðinga í um 2-3 ár.
Ég veit um mæður sem eru hræddar um dætur sínar og er ég ekkert hissa á því en ég vona innilega að við þurfum ekki að heyra af mikið fleiri sýknudómum á næstunni,einnig vona ég að fólk haldi ekki að ég sé að verja ákærða,það hef ég ekki gert heldur eingöngu verið að segja frá því hvernig þessi dómur horfir við mér,nú er að skella sér í víkina og þaðan til Keflavíkur en ég vonast eftir góðum umræðum og án skítkasts,ég veit það munu einhverjir vera mér ósammála en þá vil ég geta átt skemmtilegt spjall við viðkomandi í commentakerfionu.
KV:Korntop
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.9.2007 | 11:38
Sýknur í nauðgunarmálum.
Fátt hefur verið meira rætt á sumum bloggsíðum en sýknudómurinn yfir misþroska manni gagnvart andlega fatlaðri stelpu og nú er kominn tími á að tjá sig aðeins um það mál bæði vegna þess að ég þekki bæði tvö mjög vel í hinsvegar vegna þess að ég var einn af forsvarsmönnum ÁTAKS(Félag fólks með þroskahömlun)sem lætur sér svona mál varða.
Á bloggsíðu sem Jens Guð heldur úti er farið ítarlega yfir þetta mál og þar er m.a. fullyrt að umræddur maður hreyki sér af þessum verknaði og sérstaklega við vin sinn sem var sýknaður í fyrra af samskonar ákæru.
Nú vitum við að fyrri maðurinn er greindarskertur en ég tel hann þó mun þroskaðri en þann sem var sýknaður í seinustu viku auk þess sem þeir talast ekki við svo ég viti,þroskastig þess sem var sýknaður í seinustu viku er mjög lítið og málfar hans eftir því en annars er þetta dagfarsprúður drengur sem fór því miður aðeins of langt en að hann hreyki sér af þessum verknaði er af og frá.
ÁTAK lítur það alvarlegum augum ef kvenlíkami er misnotaður í hvaða mynd sem er en í þessu tilfelli skilst mér að konan hafi samþykkt samfarirnar en brotnað eftir á auk þess sem framburður hennar fyrir dómi þótti ekki trúverðugur og margar gloppur verið í honum og slíkt er ALLTAF sakborning í hag.
Einnig set ég stórt spurningarmerki við það hvort að kona sem vinnur með "vangefnum"hafi leyfi til að koma upplýsingum sem hún fær frá skjólstæðingum til 3ja aðila og sé því ekki að fremja trúnaðarbrot á viðkomandi skjólstæðing.
Hvað mig og mína afstöðu varðar þá er nauðgun alvarlegur verknaður og jafnast á við morð að mínu mati og ætti í raun að dæmast sem slíkt en dómar í þessum málaflokki eru oft grín enda eingöngu 10% sem kæra og helmingi þeirra mála er svo vísað frá en þau mál sem er dæmt í fá gerendur annaðhvort skilorð eða litlar sektir í besta falli slegið á puttana.
Það að misþroska maður geri svona er jafn alvarlegt en mín skoðun er sú að hann er ósakhæfur sökun mikils vanþroska og þar að auki eru þau hvort tveggja vinir mínir og ég ætla ekki að verja það sem hann gerði en afstaða mín ræðst ekki af því heldur hvaða refsing er best í svona tilfelli ef maður á þessu þroskastigi er sekur um glæp eins og nauðgun,það er allavega ekki fangelsisvist,það er alveg klárt.
Ég tel að opin umræða út í þjóðfélaginu,á bloggsíðum og víðar sé af hinu góða og að skoðanaskipti séu til staðar án þess þó að vera með skítkast hvert út í annað,ég tel að Jens Guð hafi hrundið af stað þörfum umræðum um sýknudóma í nauðgunarmálum og eins og ég hef áður sagt hér á þessari síðu þá eru dóma í þessum málaflokki hlægilegir og ætti að stórauka refsingu í þeim til muna.
Í þessu máli er maður með greind á bilinu 55-65 stig sýknaður af ákæru um nauðgun og er ég ánægður með það en sá sem var sýknaður í fyrra er með greind á bilinu 70-80 stig og á því er mikill munur og veit því meira hvað hann var að gera en ég vona að fólk haldi ekki að ég sé að verja hann en ef hann hefði verið dæmdur sekur hefði þurft að finna aðra refsingu heldur en fangelsisvist,vonandi verða hér fjörugar umræður og eflaust einhver mér ósammála en þá vil ég að viðkomandi komi með málefnanleg rök en ekki dylgjur og skítkast.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.9.2007 | 21:11
Frábær sigur.
Fyrir stundu lauk leik Íslendinga og N,Íra á Laugardalsvelli og lauk með sigri Íslendinga 2-1 í mjög góðum leik miðað við aðstæður rigningu og blautann völl.
Fyrsta markið kom eftir aðeins 5 mínútna leik en þá komst Gunnar Heiðar Þorvaldson upp að endamörkum gaf út í teig og þar var Ármann Smári Björnson sem var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu fyrir og afgreiddi sendinguna frá Gunnari í netið,á 72 mínútu var dæmd vítaspyrna á íslenska liðið þegar Kári Árnason braut á David Healy og umræddur Healy skoraði örugglega úr vítinu,það var svo á 89 mínútu sem Ásgeir Gunnar Ásgeirson þá nýkominn inná fyrir Gunnar Heiðar vann nokkrar tæklingar á hægri kanti,boltinn barst til Grétars Rafns Steinsonar sem renndi knettinum fyrir markið og þar var fyrir Keith Gillespie og senfi boltann í eigið net en það hefði engu breytt því Eiður Smári Guðjóhnsen var fyrir aftan og hefði án efa skorað.
Þannig lauk leiknum og nú er liðið komið með 8 stig og er búið að tvöfalda stigatöluna í þessari törn og einn heimaleikur gegn Lettum eftir þann 13 okt en góður og kærkominn sigur hjá strákunum til hamingju strákar,til hamingju Eyjólfur Sverrisson.
Mörk Íslands:
Ármann Smári Björnson(5) David Healy víti(72)
Keith Guillespie sjálfsmark(89)
KV:Korntop
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2007 | 02:02
Ný könnun.
Nú er komin ný könnun og nú eru það bestu erlendu popp og dægurlagasöngvararnir sem valið stendur um en eftir sem áður komast bara 15 nöfn fyrir á listanum þannig að ef ykkar maður er ekki á meðal þessara 15 þá veljið hann í commentakerfinu.
Það hefur sýnt sig í undanförnum könnunum að því fleiri sem kjósa og taka þátt því marktækari er könnunin svo endilega segið ykkar skoðun í þessari könnun.
Úrslit seinustu könnunar urðu þau að Þórhallur Sigurðson(Laddi) hlaut 15 atkv,Sigurður Sigurjónson og Þorsteinn Guðmundsson hlutu 5 hvor en aðrir minna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 01:34
Erfitt púsl.
Þá er tími á smá bloggskvettu en erfitt hefur verið að púsla öllu saman,skólinn byrjaður,fundir hjá stjórn handknattleiksdeildar ÍR,skemmtinefnd Átaks,List án landamæra,fótboltaæfingar þar sem þessi rúmlega 200 kg boli ætlar að reyna að létta sig eitthvað og hreyfa sig þannig að ég mun blogga þegar tími gefst til og líkaminn ekki með strerngi eftir æfingarnar en það þýðir ekkert að væla neitt heldur koma sér í form fyrir bandaríkjaferðina sem stendur frá 29 nóv-28 des.
En ég kem með blogg á morgunn og þá kanski pínu sprengja en það kemur allt í ljós elskurnar mínar.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2007 | 09:14
Stopp.
Þessi síða er komin í ótímabundið frí,hugsanlega er þetta seinasta færslan en ég kem með reglegar skoðanakannanir og stöku blogg gæti komið inn,hafið það gott elskurnar en nú segi ég bara bless í bili og takk fyrir mig.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.9.2007 | 23:01
Síðan kanski í hvíld?
Hugsanlega fer þessi síða í hvíld,ég er ekki að nenna að blogga þessa dagana en er þess í stað með skoðanakannanir og þær halda áfram en ég er ekki alveg að nenna að halda henni úti að öðru leyti og stundum held ég að best sé að loka þessari síðu en ætla ekki að gera það að sinni en eins og staðan er í dag held ég að ég sjái bara til,kanski kemur bloggástríðan aftur en annars bless í bili.
KV:Korntop
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.9.2007 | 03:01
Úrslit könnunnar.
Þá er þessari könnun um besta trúbadorsöngvara síðustu 20 ár eða svo lokið og bar Bubbi Morthens sigur úr býtum með 15 atkvæði(34%) en næstur kom Halli reynis með 6,og fast á hæla hans komu Hörður Torfason og Undirritaður með 5 atkvæði hvor.
En þá er það næsta könnun og nú eru það bestu grínararnir og fer ég nokkuð langtáftur en eins og venjulega þá komast bara 15 nöfn fyrir og ef þið greiðið öðrum en þeim sem, ég nefni er bent á commentakerfið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Korntop
Spurt er
Tenglar
Mínir tenglar
- Átak. Fréttir.
- Berserkir/Víkingur. Upplýsingar.
- Bubbi Morthens. Tónlist.
- Fjölmennt. Fróðlegt.
- Formúla 1 Sport.
- Fótbolti.net Sport
- Golf. Sport.
- Handbolti. Sport.
- Henný Bloggsíða.
- HSÍ. Sport.
- IFSA-WPC: Sport.
- ÍR-körfubolti. Sport.
- KKÍ. Sport.
- KSÍ. Sport.
- NBA. Sport.
- NFL. Sport.
- RÚV. Fréttir.
- Síminn. Upplýsingar.
- Sport. Sport.
- SSR. Upplýsingar.
- Strætó. Upplýsingar.
- Söngstrumpurinn. Tónlist.
- Textavarp. Fréttir.
- TR. Fréttir.
- Vísir.is. Fréttir.
- Þroskahjálp. Fréttir.
- Ösp. Sport.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Eldri færslur
- Mars 2012
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Bloggvinir
- annakr
- agustolafur
- brjann
- eddaagn
- ellasprella
- georg
- ipanama
- gudruntora
- zeriaph
- gudnim
- harhar33
- heidathord
- helgadora
- krummasnill
- holmdish
- hogni
- inaval
- jensgud
- jonhalldor
- nonniblogg
- jorunn
- katlaa
- katja
- kolbrunb
- lillagud
- lindalinnet
- birtabeib
- margretsverris
- olofk
- omarragnarsson
- ragjo
- rannveigh
- rosaadalsteinsdottir
- ruth777
- marzibil
- amman
- ollasak
- stebbifr
- fugla
- saedishaf
- stormsker
- skinogskurir
- lady