Nýir spádómar.

Betri tíð=uppúr júní.
Ríkisstjórn eftir kosningar=Vinstri stjórn.
Árð=Herfilegt en mildast eftir því sem á það líður.
Davíð Oddsson=Hypjar sig úr Seðlabankanum.
Magnús Korntop=Deyr á árinu úr hjartaáfalli.

Þessi síðasti spádómur er ekki grín heldur held ég að ég eigi ekki mikið eftir ólifað enda um 200 kg bolti,ég ætla þó að biðja fólk um að sleppa eftirmælum um mig alveg strax.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Mér finnst þessi síðasti spádómur ómögulegur en tek undir fyrri atriðin

Ragnheiður , 6.2.2009 kl. 00:22

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Magnús minn

En fyrri hlutinn er góður

Sigrún Jónsdóttir, 6.2.2009 kl. 00:49

3 identicon

Maggi minn 4 spádómar af 5 ganga upp enn ekki sá síðasti vonandi

Bjössi (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 07:12

4 Smámynd: Anna

Þetta verður gaman. Nú er búið að hrista upp í pólitíkinni. Enda mátti nú það. Séru bloggið hjá þer. Þú ert með kisu, kú og svo voffa.

Anna , 6.2.2009 kl. 10:29

5 Smámynd: Anna

Dýra vina fólk. Hundurinn er mesti vinur mannsins.

Anna , 6.2.2009 kl. 10:31

6 identicon

Mér líst afar illa á síðasta spádóminn. Sjálfur er ég tæplega 210 kíló en er ekki að spá sjálfum mér dauða.

Það mætti kannski laga mataræðið? Fá sér Diet Kók í staðinn fyrir venjulegt og í stað hamborgara, fá sér speltbrauð með osti og kotasælu?

Aðalsteinn Grímsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 10:56

7 Smámynd: Anna

En að fá sér hund og fara út að labba. Ég elska mat.

Anna , 6.2.2009 kl. 11:54

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

mér líst ekkert a þétta síðasta....enda ekki hægt að spá fyrir sjálfum sér.  Farðu í Hveragerði

Hólmdís Hjartardóttir, 6.2.2009 kl. 13:52

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er ekki eitthvað sem hægt er að gera fyrir þig heilsufarslega séð??

Ásdís Sigurðardóttir, 6.2.2009 kl. 14:04

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Neinei Toppurinn minn.Þú gerir eitthvað í þínum málum.Það er erfitt og heilmikil vinna en það er hægt.Byrjaðu á því að skoða hvað þú setur ofan í þig kipptu út því óhollasta og findu þér hollustu í staðinn.Og þú verður allra karla elstur

Solla Guðjóns, 6.2.2009 kl. 17:41

11 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Þú getur ekki spáð fyrir sjálfum þér,þú verður að fá einhvern annan í það verk .Hitt líst mér betur á Fáðu þér hund og farðu út að labba með honum .

Kveðja og knús. 

Ólöf Karlsdóttir, 6.2.2009 kl. 17:44

12 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Þetta er ekki ofát,heldur bættist mikið við þegar ég hætti að æfa lyftingar og annað sport og þá breyttust vöðvar í fitu,einhver stærstu mistök sem ég hef gert á ævinni.

Er að reyna að vinna mig út úr þessu og það tekur tíma.

Magnús Paul Korntop, 6.2.2009 kl. 18:24

13 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Elsku maggi minn.Auðvita vinnur þú þig út úr þessu,eg er 6barna móðir og 43 ára og með soldið af aukakílóum og ó mæ god hvað mer finnst erfitt að gera eitthvað í því,ef eg se ekki árángur strax þá nenni eg ekki meir.ENN er að fara taka á því af alvöru.Búinn að setja mer markmið og ÆTLA að standa við það,þú gætir kannski tekið með mer göngutúra.Svo ekkert svona þú ert einn besti bloggarinn her og eg vil ekki heyra svona tal meir.

Sædís Hafsteinsdóttir, 6.2.2009 kl. 22:02

14 identicon

Sæll Magnús ég er úr Breiðholtinu eins og þú, og hef séð þér bregða fyrir öðru hverju, og hef velt fyrir mér af hverju þú ferð ekki í hjáveituaðgerð eins og er framkvæmt mikið á fólki sem er mjög þungt, og hefur líklega oft bjargað lífi þess.

með kv Baldur

Baldur (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 00:11

15 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæll Baldur: Ég ætlaði í slíka aðgerð en gugnaði á því þegar á átti að herða en hver veit?

Sæl Sædís: Það er bara kjaftur og ákveðni á minni ha,bara gott mál það.

Magnús Paul Korntop, 7.2.2009 kl. 00:15

16 identicon

eg styð þig heilshugar enn maður skal vona að þu látist ekki á þessu ári

Ólafía Ingibjörg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 18:06

17 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Magnús minn

Ég vildi óska þess að læknirinn þinn geti fengið pláss fyrir þig akút á Reykjalundi eða einhvern annan stað þar sem hægt er að taka þessi kíló. Ég er líka bolti og er að reyna að berjast. Ég fékk lyf sem heitir Retutil og það hjálpaði mér á meðan það var að virka. Virknin var frá júlí 2007-mars/apríl 2008. það munaði um þessi kíló. Svo hef ég verið strand en er nú að berjast. Mæti í þrek þrisvar í viku og fer til sjúkraþjálfa. Þá fer ég á göngubrett og geng 2 km í rúmar 20 mín. 

Í Worl Class er frábær einkaþjálfari sem heitir Guðbjörn. Þú ættir að hafa samband við hann.

Gangi þér vel að berjast.

Guð veri með þér og þínum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 11.2.2009 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 205194

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband