Paparnir hættir.

Þær sorgarfréttir bárust á visir.is s.l laugardag að stórhljómsveitin Papar væru hættir eftir 22 ár í bransanum og verður þeirra sárt saknað úr hinum íslenska tónlistarheimi enda frábær hljómsveit þar á ferð.

Paparnir voru stofnaðir í Vestmannaeyjum á því herrans ári 1986 af þeim Páli Óskari Eyjólfsyni(Hljómborðsleikara) og Georg Ólafsyni(Bassaleikara)

Aðalsmerki papanna var írsk þjóðlagatónlist í bland við gamla slagara íslenska sem erlenda og var alveg sama hvar þeir spiluðu,oftar en ekki var fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu,ég var stundum það heppinn að vera á gestalista og var yfirleytt mættur með fyrsta holli enda forréttindi að vera á papaböllum hist og her hoppandi syngjandi og gólandi.

Ég var svo heppinn að fá að syngja 3x með þessu æðislega bandi auk þess sem ég kynntist þeim persónulega og gáfu þeir mér texta með lögum og gáfu ráð og ég segi það fullum fetum að paparnir eiga sinn þátt í því hvar ég er í dag sönglega því án þeirra hefði ég verið langt í frá það sem ég er í dag og fæ ég seint fullþakkað þeim fyrir allt það sem þeir gerðu fyrir söngferil minn,takk æðislega fyrir það Palli, Georg,Eysteynn,Ingvar(Hann var söngvari þegar þeir hjálpuðu mér) Vignir,Dan og Matthíasþið kennduð mér margt og mun ég ætíð meta það.

Eins og áður sagði var þjóðlagatónlistinn allsráðandi á prógrammi papanna og diskarnir báru þess glöggt merki en diskarnir urðu 9 áður en yfir lauk,sá fyrsti kom út 1990 og sá síðasti kom út 2007 en minningarnar ylja og klárt mál að á þá verður hlustað um aldur og ævi enda áttu paparnir marga sannaáðdáendur hér á landi,blessuð sé minning þeirra en vonandi gera þeir comeback fljótlega.

Plötur Papanna: Tröllaukin tákn,Í góðum sköpum,Live á Dubliner, Risar á jörðinni,Hláturinn lengir lífið,Riggarobb,Þjóðsaga,Leyndarmál frægðarinnar og Á balli.

En semsagt: Paparnir eru hættir en eftir lifir minningin um góða hljómsveit sem fékk ólíklegasta fólk á dansgólfið en einnig diskarnir og lög papanna sem við getum hlustað á til enda veraldar.

Ég vil hér með koma á framfæri þakklæti til meðlima papanna fyrir allar ánægjustundirnar sem þið hafið gefið okkur söngþyrstum íslengum og ég veit að þið bloggvinir og lesendur góðir eru sammála mér í þessu efni.

Nú er bara að vona að mynddiskur sem koma átti út um jólin verði gefinn út og komi á markað sem fyrst svo við þyrstir papaaðdáendur getum notið þess í botn að sjá þá á balli en á þessari stundu er alls óvíst að umræddur diskur komi út. en bíðum og vonum það besta.

                                TAKK PAPAR.

                                KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Magnús. Sammála því að þetta eru sorgarfréttir með papana því ég  nánast fullyrði að að þeir voru með betri tónleikaböndum landsins en eins og þú sagðir þá ylja diskarnir og minningin og vonandi kemur þessi mynddiskur út fljótlega;en takk fyrir að blogga um þetta,þetta er frábær bloggsíða og haltu svona áfram.

Bjarni Axel. (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 09:37

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Þetta hefur verið þrælskemmtilegur tími hjá þér.Það eru ekki allir sem hafa fengið tækifæri á að syngja með Pöpunum.Þú hlýtur að vera góður sönvari.

Það er leitt að þeir skulu vera hættir en þeir hafa líka gefið okkur svo mikið af sínum tíma og við eigum örugglega eftir að heyra frá þeim saman eða í sitthvoru lagi.

Húrra fyrir Pöpum.

Solla Guðjóns, 19.2.2008 kl. 15:56

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Magnús. Þeir eru búnir að vera svo lengi að spila og þeim langar að breyta til. Við þreytumst með aldrinum og þá dugar alveg daglegt strit þó ekki bætist við svona mikil vinna að vera í hljómsveit. það hlýtur að vera hörku vinna með annarri vinnu og svo eiga þessir menn fjölskyldu og heimili. Svona er lífið. ég var að skrifa hjá Valla og ég gaf honum vers úr Biblíunni og ég ætla að gefa þér sama versið. Ég er með dagatal og þetta vers er fyrir 19 febr.

"Varpið allri áhyggju yðar á hann því að hann ber umhyggju fyrir yður."

Guð vill líka greiða úr hversdagslegum málum í lífi þínu. Treystu honum!

Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.2.2008 kl. 21:33

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Winkkvitt kvitt og góðar kveðjur til þín elsku Korntop minn

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 19.2.2008 kl. 21:34

5 identicon

Hugsum það bara þannig Maggi, betra að þeir skildu hætta á toppnum en að þeir hefðu hætt þegar þeir væru orðnir útbrenndir.

kveðja

emil 

Emil Ólafsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 22:08

6 identicon

SORGLEGAR FRÉTTIR!

Linda Ósk (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 22:44

7 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ollasak: Já,þeir hlálpuðu mér mikið en aðrir dæma um hvernig söngvari ég er,ég dæmi ekki sjálfan mig,það er klárt mál,þú heyrir mig syngja vonandi einhverntímann.

Valgeir: Það er ekki útilokað að við fáum comeback en nú ylja minningarnar.

Rósa: Paparnir hafa starfað samfleytt í 22 ár og ég skil þá vel að hætta á toppnum en fyrir sannann aðdáanda eins og mig og fleiri er þetta áfall en eins og þú bendir réttilega á þá eiga flestir fjölskyldur og eru í vinnu en maður tekur þessu þótt erfitt sé.

Linda Linnet: Sömuleiðis kveðjur til þín

Emil: Já að Paparnir hafi hætt á toppnum er styrkleikamerki um hvenær best er að hætta.

Magnús Paul Korntop, 19.2.2008 kl. 22:47

8 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Linda Ósk: já sorglegar fréttir en yljum okkur við minningarnar,diskanna og lögin.

Magnús Paul Korntop, 19.2.2008 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 205185

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

236 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband