Furðulegur vinnudagur,hljómsveitaræfing og fundur.

Vinnudagurinn var furðulegur í meira lagi og ekkert að gera í þess orðs fyllstu merkingu,kláraði verkefnið frá deginum áður en svo var bara ekkert pökkunarverkefni svo ég var sóttur rúmlega 3 og fór í skólann en var sagtað svona yrði vikan svo ég skyldi búa mig undir það en gott að vera á fullu kaupi til kl 5 án þess að gera handtak en svona gerist víst þótt á lager sé.

Fór í einkatíma í söng og svo á hljómsveitaræfingu í kjölfarið og æfðum m.a eitt nýtt lag,Syndir holdsins-lifi ljósið úr Hárinu auk annara laga og gekk æfingin bara vel.

Etir æfinguna keyrði konan mig á BK þar sem ég borðaði með Johny og svo fórum við á Stjórnarfund hjá Átaki þar sem ég þurfti að útskýra gjörning fyrir starfsmanni og stjórnarmönnum Átaks en sá gjörningur verður í tengslum við List án landamæra og verður gjörningurinn auglýstur síðar en svona leið dagurinn hjá mér í dag og er ég dauðuppgefinn eftir hann en ánægjulega þó.

En nóg af bullinu í bili-meira bull síðar.

                                   KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Vá það er heilmikið í gangi hjá þér og allt svona skemmtilegt og frábært sem þú ert að gera.Ég hef ekki heyrt um List án landamæra áður.

Ferlega skemmtilegt lag sem þið eruð að æfa en hvaða hljómsveit er þetta?

Kv.Solla

Solla Guðjóns, 20.2.2008 kl. 18:58

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvað er þetta BK sem þú ert alltaf að borða á Maggi minn??

Ásdís Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 20:11

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Magnús. Góður dagur en Bk er það heilsusamlegur staður? Hvernig gengur baráttan við sameiginlegt vandamál sem við eigum, minnka björgunarhringina?

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.2.2008 kl. 20:49

4 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Solla: List án landamæra er hugmynd sem kviknaði á evrópuári fatlaðra og árlega er haldin Listahátíð þar sem að fatlaðir og ófatlaðir vinna saman að hinum ýmsu listsköpun í hvaða formi sem það er.

Rokkhljómsveitin heitir Hraðakstur bannaður og er 7 ára gömul og er eins og Danshljómsveitin Plútó(13 ára) og eru þær á vegum Fjölmenntar(Fullorðinsfræðsla fatlaðra).

Ásdís: BK er kjúklingastaður þar sem hægt er að fá holla rétti fyrir lítið verð.

Rósa: Já mjög heilsusamlegur staður enda borða allir sterkustu menn landsins á BK,baráttan við aukakílóin gengur samkvæmt áætlun og bara áfram gakk í því.

Valgeir: Já svona hendir oft og "allt í lagi"að vera heima á launum en það má bara ekki gerast mjög oft en nú er bara MJÖG lítið að gewra og ég verð bara að taka því.

Magnús Paul Korntop, 20.2.2008 kl. 22:45

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Fullt að gera hjá þér. Vonandi líkar þér vel í söngtímunum.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 20.2.2008 kl. 22:55

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Hæ hæ..verð að vita...hver kennir þér söng?? Sjálf lærði ég hjá Sigurveigu Hjaltested og systur hennar Ingveldi. Meiriháttar klassa söngkonur.

BK er í uppáhaldi hjá mér og minni fjölskyldu. Ef við komum til Reykljavíkur förum við alltaf á BK að fá okkur að borða. Einmitt... mjög gott verð!

Gangi þér allt í haginn. 

Rúna Guðfinnsdóttir, 20.2.2008 kl. 23:30

7 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

Magnús minn, þér leiðist greinilega ekkert þessa dagana, nóg að gera hjá þér. Eigðu góðan dag, kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 22.2.2008 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband