Ekki er allt sem sýnist í aðdraganda jóla.

Núna liggur það ljóst fyrir að um 2000 heimili munu þurfa á matar og fatagjöfum frá Rauðakrossinum og Mæðrastyrksnefnd þetta árið og hefur aukist um nokkur hundruð í kjölfar kreppunnar en margir hafa misst vinnuna  í kjölfar bankahrunsins.

Þetta er skelfileg staðreynd en árlega hafa örorku og ellilífeyrisþegar auk annara sem minna mega sín þegið matargjafir hjá þessum samtökum sem í ár hafa ákveðið að sameinast í þessum gjöfum til þess að sem flestir fái eitthvað og hef ég lesið að fyrir marga þá sem misstu nýverið vinnuna hafi þetta verið þung spor og er ég ekkert hissa á því.

Að mínu mati þarf að gera fólki kleift að lifa hér í þessu landi en margir eru í fúlustu alvöru að spá í að fara úr landi en það er staðreynd sem ekki verður á móti´mælt að það er fátækt á landi hér og var það löngu áður en kreppan skall á.

Ég vona innilega að sem flestir geti haldið jól á íslandi hvort sem það er með fjölskyldunni,Hjálpræðishernum eða annarsstaðar þetta er jú hátíð ljóss og friðar ekki satt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra

Ég vona svo innilega líka að sem flestir geti haldið jól... þetta er ekki gott ástand.. En ef þú ert að hugsa um að flytja þá skaltu fá einhvern til að leiðbeina þér... Ekki fara blint út í óvissuna .... Þó það sé spennó...

kærleikskveðjur frá Esbjerg Dk Dóra

Dóra, 18.12.2008 kl. 00:14

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Nei Dóra,ég fer ekki neitt en hef heyrt að margir eru að hugsa um í alvöru að yfirgefa landið.

Magnús Paul Korntop, 18.12.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég vona líka að flestir, já ég vil að allir geti haldið jól, hér.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 18.12.2008 kl. 00:34

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Þetta er ljótur blettur á íslensku velferðarkerfi. Eru ráðamenn þjóðarinnar samviskulausir? Það vil ég meina.

Ég vona að allir geti átt Gleðileg jól.

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.12.2008 kl. 02:35

5 Smámynd: Linda litla

Þetta er sorglegt ástand hjá okkur íslendingum.

Ég sótti um aðstoð hjá þeim og nálgast það á föstudaginn, er líka búin að fá föt á strákinn minn hjá hjálpræðishernum.

Málið er bara það að jólin koma hvort sem við eru tilbúin að halda þau eða ekki.

Farðu varlega Maggi og hafðu það gott.

Linda litla, 18.12.2008 kl. 06:44

6 identicon

Já, það verður slæmt ástand víða um jólin, og það er hart að þetta fyrrum góðærisþjóðfélag hafi ekki á góðærisárum sinnt velferðarmálum. Og á bara eftir að versna, þökk sé útrásarvíkingum sem hafa skuldsett okkur í hin dýpstu fen.

Munum bara að gleyma ekki, og ef við sjáum Björgólfa á labbi úti á götu skulum við ekki hika að sparka fast í rassgatið á þeim. Allavega að henda snjóbolta í áttina að þeim og öskra ókvæðisorð.

Leifur Páll (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 09:16

7 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Góðan dag magnús,allur að hressast vonandi.Þetta er til skammar hvernig ráðamenn íslands stjórna þessu landi.Þeir hafa alltaf nóg á milli handana,þá skortir ekkert.En skil ekki með þetta skítkast á björgulfs feðga og jón ásgeir,Ekki að fatta það.En farðu vel með þig magnús

Sædís Hafsteinsdóttir, 18.12.2008 kl. 09:31

8 identicon

Snædís;

Þú fattar ekki skítkast á Björgólfsfeðga? Nokkur lykilorð kveikja kannski við þér: Landsbankinn, ICESAVE.

Íslendingar verða að borga þessar skuldir þessara óreiðumanna, því ekki eru þeir persónulega ábyrgir fyrir þessum gjörðum sínum.

Leifur Páll (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 10:26

9 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þvi miður verður það eflaust!!!!/við verðum að reina að gefa þeir sem eru aflögufærir/kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 18.12.2008 kl. 11:07

10 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Já,það er nöturlegt til þess að hugsa að fólk þurfi að stíga þessi spor og enn og aftur ætti þetta að kenna yfirvöldum að hækka bætur allskonar til þeirra sem lítið sem ekkert hafa á milli handanna þannig að það eigi þó ekki væri nema fyrir salti í grautinn og að endar næðu saman.

Magnús Paul Korntop, 18.12.2008 kl. 11:52

11 Smámynd: lady

já jólin koma  hvort sem manni líður vel eða illa,en eins og ég hef sagt ætla ég að trúa og treysta á mig  og brosa í gegnum tárin ,en takk að leiðretta mig með comment ég fattaði ekkert bara samþykkti allt  ,það var ekki ætlunin að vera óheiðarleg við þig,en mikið er kærastan þín sæt,vonandi eigum við eftir að hittast þótt það væri ekki nema í kringlunni hafðu það sem best elsku Magnús minn kær kveðja þín æskuvinkona ,Ps ég fór alveg hjá mér þegar þú varst að tjá þínar tilfinningar í minn garð ja allavega ,er þa´einhvern hlýtt til mín sem ég bjó á Írabakkanum ,á sínum tíma,kær kv aftur

lady, 18.12.2008 kl. 13:16

12 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Orð í tíma töluð.

Því miður er fátækt stórt vandamál hjá okkur.

Jón Halldór Guðmundsson, 18.12.2008 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 205172

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

240 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband