Nú er að duga eða drepast.

Klukkan 17´15 í dag leiur íslenka handboltalandsliðið annann leik sinn á EM í noregi og eru andstæðingar okkar í dag slóvakar og er klárt mál að þeir eru sýnd veiði en alls ekki gefinn.

Ýmislegt þarf að laga fyrir leikinn í dag,t.d sóknarleikinn sem var ekki góður á móti svíum og hef ég heyrt að strákarnir hafi talað saman eftir leikinn um það sem fór úrskeiðis enda reynslumikið lið á ferðinni.

Ljóst er að stórt skarð er höggvið í íslenska liðið þar sem Ólafur Stefánson er meiddur og spilar ekki næstu 2 leiki en  þurfa hinir bara að bæta við sig og sýna úr hverju þeir eru gerðir en sigurvegarinn úr þessari viðureign kemst í milliriðil þar sem mótherjarnir verða spánverjar,heimsmeistarar þjóðverja og ungverjar þannig að til mikils er að vinna.

Nú setjast allir áhugamenn um handbolta fyrir framan RÚV kl 17´15 í dag og hvetja strákana til sigurs.

Ég vil endilega hvetja ykkur bloggvinir og lesendur góðir til að taka þátt í skoðanakönnuninni og tengist EM en læt þetta gott heita í bili verð með færslu eftir leikinnþar sem ég mun taka saman það sem mér fannst um leikinn en bless í bili.

                                   KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég byrjaði á könnuninni og svo verð ég að segja að ég er ekki of vongóð með leikinn í dag, því miður. Ég lenti harkalega á jörðinni með allar væntingar þarna í svíaleiknum, ég hef bara ekki séð verri leik. Handbolti sýndur hægt !

Ragnheiður , 19.1.2008 kl. 11:49

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ekki missa trúna ragga mín,það er fyrir mestu að halda áfram að styðja strákana þú svíaleikurinn hafi verið dapur.

Magnús Paul Korntop, 19.1.2008 kl. 11:56

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Já Valgeir.

Við vinnum þennann leik,það er mín trú allavega.

Magnús Paul Korntop, 19.1.2008 kl. 12:17

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG tel að við vinnum þennan leik, en við þurfum að hafa gát á öllu.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.1.2008 kl. 13:18

5 identicon

Ég missi aldrei trúna á strákunum "okkar". En ég er samt komin með smá hnút í magann fyrir þennan leik.

Bryndís R (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 16:30

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

greinilegt að "strákarnir okkar" hafa fengið djús frá svíum... þeir eru hreinlega að valta yfir slóvena af fádæma ókurteisi.

Óskar Þorkelsson, 19.1.2008 kl. 17:54

7 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Já Óskar,það er samkölluð "slátrun" í gangi

Magnús Paul Korntop, 19.1.2008 kl. 18:03

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður. Við unnum en samkölluð slátrun var þetta ekki á tímabili í seinni hálfleik.  Strákarnir eru flottir en það má ekkert út af bera. Þeir verða að vera á fullu allan tímann  og einbeitingin má ekki klikka. Fannst fyndið að sjá Alfreð. Hann sendi okkar mönnum það óþvegið ef með þurfti að halda að hans mati.  hann er jú skipstjórinn!  Hann er flottur þjálfari en hvað endist hann lengi? Er hann ekki erlendis í fullu starfi líka?

Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.1.2008 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 205186

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

236 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband