Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

STOPP.

HÆTTUM AÐ EYÐILEGGJA

 NÁTTÚRUAUÐLINDIR

LANDSINS OG HÁLENDIÐ MEÐ VIRKJUNUM.

BURT MEÐ VIRKJANIR.

BLOGG UM ÞAÐ FLJÓTLEGA.

KV:KORNTOP


STANZ!!!!!!!!!

ÉG MÓTMÆLI HARÐLEGA.

kv:kORNTOP


Múslímar.

Einn er sá þjóðflokkur sem hefur verið til frá því heimur byggðist,en það eru arabar en talað er um baráttu araba við ísaela í gamla testamenntinu en þar er greint frá hrakförum araba gegn Ísrael trekk í trekk.

í dag eru flestir arabar múslímar og þá nálgumst við betur efnið sem fjallað verður um í þessu bloggi en í þessum pistli ætla ég að reyna að greina á milli arabahópa t.d arabahópana sem berjast gegn Ísrael,svo eru það arabarnir í Írak,klerkastjórnin í Íran en of langt mál er að taka alla arabahópa fyrir þá verð ég að treysta á að einhverjir sem munu commenta á þessa færslu viti eitthvað um araba sem ég veit ekki um.

Í Miðausturlöndum eru 3 samtök Fatah(sem teljast til hófsamari araba)og Hamas(harðlínumenn með öfgakenndar skoðanir á trúnni og er einnig stjórnmálaarmur á svæðinuEinnig eru samtökin Jihad(Heilagt stríð) þarna en þau sverja sig í ætt við Hamas og starfa saman við hryðjuverkaárásir á Ísrael.

Í Írak eru það Shítar og Súnítar og svo er það klerkaveldið í Íram auk konungsveldisins í Saudí Arabíu.

En áfram með smjörið,að mínu mati eru Miðausturlönd fjær samkölluð púðurtunna,kemur það til af innbyrðisbaráttu Fatah og hamas á Vesturbakkanum og Gaza(Sjálfstjórnarsvæði Palestínuaraba) svo ég tali nú ekki um stefnu strangtrúaðra múslíma gagnvart bandaríkjunum og vesturlöndum en þar verður að koma fram sú heimska stefna Bush og félaga að vilja stjórna heiminum sama hvað það kostar og er barátta öfgasinnaðra múslíma skiljanleg en er fyrir löngu farin úr böndunum og vert að stöðva þá hryðjuverkaröldu er þar geisar en þær ganga út á sjálfsmorðsárásir og enginn er óhultur fyrir þeim,einnig eru hryðjuverkaárásirnar 11 september 2001 þörf áminng.

Í þeim árásum endurspeglaðist sem öfgasinnaðir múslímar bera í garð bandaríkjanna og vesturlanda,meðlimir hryðjuverkasamtakanna Al Quieda létu sér ekki muna um að stela flugvélum með farþegum innanborðs og fljúga þeim á valin skotmörk eins og tvíburaturnana í New York en þessar árásir og aðrar eftir það
komu vegna innrásar fjölþjóðhersins í Írak sem hafði það eina hlutverk að koma Saddam Hussein frá völdum og eftir að því var lokið átti þessi her að fara úr landi og leyfa írökum sjálfum að koma á lýðræði.

Í gegnum aldirnar hafa arabar kynslóð eftir kynslóð heilaþveigið þá sem halda skulu uppi merkinu og berjast gegn óvininum sem eru:Ísrael,Bandaríkin og vesturlönd,hófsamir múslímar eins og Fatah hafa vissulega barist gegn þessum óvini en hafa haldið sig til hlés og ekki viljað ganga veg Hamassamtakanna með útrýmingu ísrealsríkis.

Ekki má heldur gleyma því að fyrir um 3 árum tæpum varð allt gersamlega vitlaust í arabaheiminum þegar Jyllandsposten birti mynd af Múhammeð spámanni og urðu danir og 16 aðrar þjóðir fyrir barðinu á blóðheitum snældubrjáluðum múslímum en að mínu mati gengu danir OF langt.

Mín skoðun á múslímum er þessi:
Fatah á að stjórna sjálfstjórnarsvæðum palestínu(Vesturbakkanum og Gaza)þessari púðurtunnu sem springur við minnstu snertingu´því öfgasinnar eins og Hamas hafa sýnt með hegðan sinni að það verður ekki friðvænlegt á svæðinu.

Öfgasinnaðir múslímar er stórhættulegur hluti múslíma sem best væri að uppræta sem fyrst,þessi þjóðflokkur hefur lifað á þessaari jörð um aldir,menning þeirra framandi og lífsvenjur aðrar en við hér á vesturlöndum eigum að venjast.
Arabaheimurinn er mörgum hulinn og því fyrr sem við skiljum hann því betra.

Þeirra biblía er KÓRANINN sem margir múslímar skilja sem yfirráð á jörð,slíkt má ALDREI GERAST,ALDREI NOKKURN TÍMANN,við þurfum ekki nema að fara til Afghanistan og sjá meðferð þeirra á konum meðan þeir stjórnuðu landinu.

En semsagt:Múslímar er þjóðflokkur sem bera verður virðingu fyrir, öfgasinnaðir múslímar skemma þó fyrir og stunda hryðjuverk í þágu málstaðar sem enginn skilur og nota ætti önnur meðul við,útrýmun öfgum,sjálfsmorðsárása og öðru illgresi úr múslímaheiminum þá bíður þeirra betri framtíð með sjálfstæðu palenstínsku ríki,fáfræði okkar á íslam er mikil og hana þarf að bæta því öll trúarbrögð eiga rétt á sér en til að skilja trúna,siði og menningu hennar þarf að læra hana.

Ég er ekki á móti aröbum/múslímum en hreinsum illgresið burt áður en það verður um seinann.

Farið vel með ykkur-Meira síðar-KV:Korntop

 


Hvalveiðar?Já takk.

Í mörg ár hef ég verið hlynntur hvalveiðum hér við land,og á það sér hinar ýmsu skýringar og ætla ég að taka nokkrar þeirra fyrir hér.

Eins og við vitum þá er fiskveiðilögsaga okkar 200 mílur og þ.a.l. höfum við allann rétt á að nýta auðlindir hafsins eins og við viljum og nýta fiskistofna rétt  það sama á auðvitað við um hvalastofninn og fæ ég ekki séð að veiði á 30-40 dýrum séu einhver ósköp og að mínu mati þá mætti þess vegna veiða helmingi fleiri dýr,slíkt myndi engann skaða og síst hvalastofninn.

Í hvert einasta skipti sem hefja á hvalveiðar koma heimsk samtök eins og Greenpeace svo ég tali nú ekki um glæpasamtökin Sea Sheppheard undir stjórn vitfiringsins Paul Watson og eru með hótanir um um hitt og þetta(skaða viðskipti og meira rugl og gleymum því ekki að það vru einmitt Sea Sheppheard sem sökktu hvalveiðibátunum í Reykjavíkurhöfn 1986),bíddu,hverjir stjórna fisk og hvalveiðum hér við land?Íslensk stjórnvöld eða náttúrusamtök?
Einnig hafa Náttúruverndarsamtök Íslands farið að þenja sig svo ekki sé nú talað um stjórnendur hvalskoðunarbáta sem telja að hvalveiðar skaði ferðaþjónustuna,að mínu mati er það argasta kjaftæði,það sem þessir hópar hafa staðið fyrir er hræðsluáróður en sem betur fer skilar hann engu.

Reiknað hefur verið út með einföldum hætti að hver hvalur étur um 1,5 tonn af fiski og er því í beinni samkeppni um fiskinn í sjónum og ef maðurinn brefst ekki við þá endar það með því að mannkynið deyr út vegna fæðuskorts og nauðsynlegra vítamína og steinefna sem í fisknum er,hafa áhrifamenn ýmissa samtaka sagt að þeir vilji frekar að fiskurinn lifi frekar enn mannkynið,hversu sjúkt getur svona málfluttningur samtaka á borð við Greenpeace og Sea Sheppheard orðið?

Nú er vitað að andstæðingar hvalveiða eru margir og hafa sínar ástæður fyrir því en málstaður þeirra er ekki merkilegur og alltaf tönglast á því sama aftur og aftur að ef 1 fiskur/hvalur er veiddur þá skaðast þetta og hitt,ég hef enn ekki séð neitt gerast í skaðsemi hvalveiða undanfarin 2-3 ár svo ég hvet andstæðinga hvalveiða að kynna sér málin áður en þeir tjá sig.

Mín skilaboð til stjórnvalda er þessi:Höldum áfram að veiða fisk og hvali á skynsamlegum nótum og komum þessum samtökum í skilning um að það er íslensk stjórnvöld sem stjórna landhelginni en ekki Grenpeace eða önnur samtök,í gegnum aldir frá því land byggðist hefur sjávarútvegur verið aðalundirstaða íslensku þjóðarinnar og þannig á það að vera um ókomna tíð.

           Farið varlega-Meira síðar-KV:Magnús Korntop


Helgin og hugsanleg viðbót á síðunni.

Helgin var fín,á föstudagskvöldið keypti ég nokkur lög í gegnum tonlist .is með konunni,á laugardagskvöldið var skólanefndarfundur gamalla nemenda Öskjuhlíðarskóla og borðuðum pizzur á eftir en þessi nefnd er mjög samstíga í að gera vel enda tók nefndin sér það bessaleyfi að starfa út næsta ár en hún hefði átt að skila af sér í janúar en þar sem nefndin sá enga arftaka þá viljum við frekar bæta við okkur ári heldur en að það góða starf sem hefur verið gert lognist út af.

Á sunnudaginn var leikur ÍR og Akureyrar í bikarkeppni HSÍ(pistill um hann hér fyrir neðan)og mætti ég vopnaður penna til að skrifa statistik um leikinn en um 10 mín fyrir leik kom í ljós að kynnirinn myndi ekki mæta og var ég beðinn um að kynna hann sem ég gerði að sjálfsögðu og gerði því hvort tveggja kynna leikinn og skrifa statistikina og gekk bara mjög vel.

Um kvöldið horfði ég á stórleikinn í NFL deildinni þegar Indianappolis colts tóku á móti New England Patriots en þessi lið voru ósigruð eftir 7 umferðir svo eitthvað varð undan að láta og sigruðu Patriots 24-20 í frábærum leik en þarna mættust einnig bestu leikstjórnendur deildarinnar þeir Payton Manning stjórnandi Colts og Tom Brady stjórnandi Patriots enda skemmti ég mér konunglega.

Í gærkvöldi var ég aftur kominn í Austurbergið og nú til að kynna leik ÍR 2 og Hauka og lauk skemmtilegum leik með 10 marka sigri Hauka 26-36 og getum við bara vel við unað því ÍR 2 var skipað 2 flokksstrákum styrktum af Old boys leikmönnum og var gaman að sjá baráttu þeirra gegn Úrvalsdeildarliðinu,eftir leik sótti Siggi vinur minn mig og fórum heim að skiptast á lögum og eigum við hvor um sig um 10000 lög í tölvum okkar.

Í dag var einkatími og hljómsveitaræfing og ákvað ég að syngja lagið Einmanna á jólanótt(sem Diddú söng hér um árið) á jólatónfundi skólans 26 nóv kom svo heim og horfði á Liverpool og Besiktas og sigruðu Liverpool 8-0 og sá ég 6 af þessum mörkum,alveg hreint magnaður og ótrúlegur leikur.

Er að spá í að vera með meira íþróttaefni á síðunni enda er draumurinn að gerast íþróttafréttamaður á dagblaði og ekki verra að æfa sig einnig er á döfinni að kynna fyrir ykkur NFL deildina og út á hvað þessi skemmtilegi leikur gengur út á.

Undanfarið hefur fólk sem þekkir mig hvatt mig til vera hvassari í málum sem tengjast öryrkjum og þeim sem minna mega sín en einnig finnst sumun ég ekki þora að ræða mál eins og femínisma og virkjunum,því er til að svara að skoðanir mínar og femínista eiga ekki samleið og mun ég blogga um það síðar,hvað virkjanir varðar þá er ég á móti Kárahnjúkavirkjun en það er bara ekkert hægt að gera í því núna,en einnig er ég andvígur Norðlingaölduveitu í neðri hluta Þjórsár og bara á móti náttúruspjöllum af manna völdum yfirleytt og hef ég tekið þá ákvörðun að taka hér fyrir mál eins og virkjanir,femínisma,hvalveiðar,samkynhneygða,fátækt og margt fleira en læt þessu lokið að sinni.
               Farið varlega-Meira síðar-KV:Korntop


Góður leikur þrátt fyrir tap.

nullÍ dag léku topplið 1 deildar ÍR og Úrvalsdeildarlið Akureyrar í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarkeppni HSÍ og var ljóst strax í upphafi að á brattann yrði að sækja fyrir okkur ÍR-inga enda voru gestirnir með töglin og hagdirnar frá upphafi og leiddu allann leikinn en 3 leikmenn vantaði í ÍR liðið vegna meiðsla og munaði um minna fyrir svo fámennann en unga hóp sem í ÍR liðinu er.

Í fyrri hálfleik leiddu gestirnir með 1-2 mörkum lengst af en mestur var munurinn 4 mörk 7-11 en í leikhléi var staðan 9-11 gestunum í vil en bæði lið gerðu sig sek um byrjendamistök auk þess sem víti fór forgörðum og var barátta ÍR til fyrirmyndar í fyrrir hálfleik.

Í byrjun seinni hálfleiks skiptu Akureyringar um gír og breyttu stöðunni á fyrstu 10 mínútum hálfleiksins úr 9-11 í 11-18 og má í raun segja að með þessum kafla hafi dagskránni verið lokið en ÍR gerði vel í að koma til baka og hefði í raun ekki þurft mikla heppni til að knýja fram framlengingu en til þess var munurinn einfaldlega of mikill og andstæðingurinn of sterkur,margt gott var þó í leik ÍR mikil barátta en greinilegt í sókninni að það munaði um Binna og Óla Síkó en enn og aftur eru menn ekki að skila varnarvinnunni nægilega vel
og í byrjun seinni hálfleiks var vörnin eins og vængjahurð og ljóst að Elli þjálfari verður að koma skikki á varnarleikinn fyrir næsta leik sem er toppslagur gegn FH n.k föstudag í Kaplakrika.

Um frammistöðuna er það helst að segja að hún er viðunandi en menn geta gert betur og vita það,sóknarleikurinn var samt fulltilviljanakenndur að mínu mati og menn voru að taka ótímabær skot í tíma og ótíma,aðallega ótíma og voru mörg skotanna full auðveld fyrir markvörð gestanna en góð tilþrif sáust þó inn á milli en menn verða að gefa sér tíma í sókninni og láta boltann vinna fyrir sig,í vörninni vantaði oft talanda og þegar hann vantar er ekki von á góðum varnarleik en að fá ekki á sig nema 24 mörk gegn þessu Akureyrarliði segir mér meira en mörg orð um hugmyndaleysið í þessu Akureyraliði.

Hinn ungi Lárus Ólafson stóð í markinu allann tímann og varði 16 skot þar af 1 vítakast og er þarna á ferðinni framtíðarmarkvörður ÍR ef rétt verður haldið á spilunum en að mínu mati hefur ÍR ekki átt alvöru markvörð síðan Hrafn Margeirson(Hrappurinn)stóð á milli stanganna í marki ÍR.

Akureyrarliðið lék vel í 10 mínútur í seinni hálfleik sem gerðu út um leikinn en miðað við spilamennsku þeirra í dag þá er ég ekki hissa á stöðu þeirra í Úrvalsdeildinni.

Dómarar leiksins voru þeir Ingvar Guðjónson og Jónas Elíason og gerðu sín mistök þau bitnuðu jafnt á báðum liðum.

Ég vil biðja þá ÍR-inga sem þetta lesa að commenta og segja mér hvað má betur fara því svona greinar eru ekki gallalausar og góð ráð skemma ekki en þessir pistlar eru hvernig ég upplifði leikinn og ekki víst að allir séu mér sammála,ég vil einnig minna á að annað kvöld kl 18´45 verður leikur ÍR 2 og aðalliðs Hauka í Austurbergi og vil ég hvetja alla ÍR-inga til að mæta og sjá gömlu stjörnurnar í leik.

Mörk ÍR:Davíð 8.Kristmann 5,Bjartur 4,Hjörleifur 2,Ísleifur 2,Óli Sigurgeirs 1.
Varin skot:Lárus Ólafson 16(1víti)

                           KV:Korntop


Bikarleikur.

nullÍ dag kl 5 verður samkölluð bikarstemming í Austurbergi þegar topplið 1 deildar ÍR tekur á móti Úrvalsdeildarliði Akureyrar í 16 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ og má búast við hörkurimmu þar sem akureyrarliðið er næstneðst í Úrvalsdeild eins og staðan er í dag.

Ég verð á staðnum og fylgist með og skrifa svo pistil um leikinn í kvöld,ég ætla að leyfa mér þann munað að spá okkur sigri 32-31,og nú fáum við gott tækifæri til að sjá hvaða munur er á´´Urvalsdeild og 1 deild.

 


Ég á mér draum.

Um tvennt,annað er að gerast íþróttafréttamaður og skrifa um íþróttir og þá sérstaklega handbolta,knattspyrnu og körfubolta auk Amerísks ruðnings sem ég fíla í tætlur enda alvöru sport á ferðinni, þeir sem hafa séð umfjallanir mínar um ÍR leikina í handboltanum sjá að þetta liggur vel fyrir mér einnig á ég þann draum að ganga til liðs við Sýn og vinna við að fjalla um íþróttir fatlaðra enda var ég í íþróttum fatlaðra þar til fyrir nokkrum árum og hef unnið til verðlauna í jafnólíkum greinum og kraftlyftingum,borðtennis og knattspyrnu og þekki krakkana þar nokkuð vel og myndi örugglega leysa svoleiðis verkefni vel af hendi.

Hinn draumurinn er að stýra útvarpsþætti þar sem þjóðlagatónlist yrði til umfjöllunnar enda er þjóðlagatónlistin mitt uppáhald og þekki nóg af góðu fólki sem gæti lánað mér efni,það liggur vel fyrir mér að tala í míkrafón þar sem ég syng í bandi en var líka kynnir ÍR-inga þar til nú í haust en það þarf þjálfun í svona en hún kæmi með æfingunni.

Framtíðin ein sker úr um hvort þessir draumar verði að veruleika eður ei en ég ætla allavega að leyfa mér að láta mig dreyma þar til yfir lýkur.

Farið varlega-Meira síðar-KV:Korntop


Af gefnu tilefni.

Vil ég taka það fram að allar vangaveltur fólks um þyngd mína ER BÖNNUÐ.

Ég er rúmlega 200 kg í líkamsþyngd er að reyna að vinna í málunum og gengur bara allt í lagi,úthaldið er allt að koma en góðir hlutir gerast hægt,munum það.

Það er alveg jafn erfitt að eiga við offituvanda að stríða eins og reykingar,alkahól eða fíkniefnavanda,það eina sem ég get gert er að gera mitt besta og meira get ég ekki gert.

Það er hægt að rökræða um líkamsþyngd mína í ÞESSARI færslu en það þarf að vera á vitrænum nótum en framvegis verður ÖLLUM commentum um líkamsþyngd mína UMSVIFALAUST eytt.

Farið varlega-Meira síðar-KV:Korntop

 


Baráttusigur.

nullÍ kvöld áttust við í Austurbergi ÍR og Víkingur í kaflaskiptum leik svo ekki sé meira sagt, og var oft kappið meira en forsjáinn og baráttan oft mikil.

ÍR-ingar byrjuðu betur og komust í 3-1 en þá skiptu víkingar um gír og voru komnir í 9-6 en á þessum tíma var engin vörn eða markvarsla hjá ÍR og má í raun segja að seinustu 20 mínútur fyrri hálfleiks hafi verið heldur í daprari kantinum og var staðan að loknum fyrri hálfleik 13-14 fyrir víking.

Greinilegt var á öllu að Erlendur Ísfeld þjálfari hafi haldið þrumuræðu bannaða innann 20 ára yfir leikmönnum sínum í leikhléinu því leikmenn komu hressir í síðari hálfleikinn og náðu fljótt forystunni 20-17 og á þessum kafla var vörn og markvarsla sterk og munurinn varð brátt 5 mörk 23-18 og allt leit vel út en þá var eins og stungið hefði verið í blöðru og gestirnir komust betur inn í leikinn,munurinn hélst þó þetta 3-5 m´örk þar til um 7 mín voru til leiksloka en þá var staðan 28-24 fyrir ÍR en þá virtist blaðran sprungin og gestirnir í víking minkuðu muninn í 28-26 en með mikilli seiglu tókst ÍR-ingum að landa naumum sigri 30-29 og megum við ÍR-ingar bara vel við una enda spilamennskan í heildina lala og ekkert meira en það.

Það sem ég verð að gagnrýna er varnarleikurinn allt of flöt vörn og ekki góð gegn langskyttum það sást best í kvöld að þegar stórskytta víkinga Björn Guðmundson fór loksins í gang að þá komu 4-5 mörk í beit og öll eins,þar vantar fyrst og fremst að menn tali saman í vörninni og hver vinni sitt verk því að auðveldlega má koma í veg fyrir svona mörk með því að fara út í andstæðinginn og koma við hann,ég vil heldur sjá okkar menn fá samanlagðann brottrekstur í 10-12 mín fyrir að spila vörn heldur en að engin vörn sé spiluð,þetta var vörnin,þá er það sóknin,þó við höfum skorað 30 mörk í kvöld þá get ég nú ekki sagt að um snilldar sóknarleik hafi verið að ræða,heldur voru mönnum MJÖG mislagðar hendur,boltanum var sí og æ hent í hendur víkinga sem skoruðu oft eftir slíkkar"gjafir"með hraðaupphlaupsmörkum,inn á milli sáust góð tilþrif í sókninni en betur má ef duga skal.
Brynjar Steimarson bar af í sókninni með 10 mörk.
Markvarslan var í lagi þannig lagað og varði Jacek Koval 16 skot í markinu en dapur varnarleikur kom í veg fyrir að vörðu skotin yrðu fleiri.

Hjá víkingi var ekkert í gangi og ekki þykir mér þetta merkilegt lið hjá þeim vegna þess að í rauninni vorum við að gera þá betri en þeir voru í raun og veru,vil ég meina að með eðlilegum leik okkar manna sé ÍR liðið þetta 5-7 mörkum betra þannig að leikurinn í kvöld gaf að mínu mati ekki rétta mynd af getu liðanna því ef allt er eðlilegt þá er ÍR klassa betra en þetta víkingslið og á ekki að eiga í teljandi vandræðum með það að öllu jöfnu.

N.k sunnudag kl 5 er bikarleikur í Austurbergi þegar úrvalsdeildarlið
Akureyrar kemur í heimsókn og ég segi það hreint út að ef spilamennskan verður ekki betri en í kvöld þá verður skellurinn stór
en ég tteysti Ella þjálfara,Hrappnum og strákunum til að hrista af sér slenið og standa upp í hárinu á Akureyringum og vil ég hvetja alla ÍR-inga til að mæta í Austurbergið kl 4 á sunnudaginn og hvetja strákanna til dáða.

Mörk ÍR:Brynjar Steinarson 10,Ólafur Sigurjónson 6,Davíð Georgson 4(3v),Bjartur Máni Sigurðson 3,Ísleifur Sigurðson 3,Máni Eggertson 2 og Ólafur Sigurgeirson 2.

Með ÍR kveðju:Korntop


« Fyrri síða

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 205249

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

220 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband