Frekja.

Ég vil vegna ummæla minna um Jenný Önnu og Heiðu,taka það fram að ég stend við hvert orð sem ég hef sagt um hinar afturhalssinnuðu og öfgafemínísku femínista sem tjá sig um allt milli himins og jarðar án þess að vita stundum hvað þær eru að tjá sig um.

Ég hvet alla sem vilja loka á vináttu mína hér á moggabloggi og Facebook að gera það bara,það yrði bara leiðinlegast fyrir ykkur sem það gerið.

Ragnheiður Hilmarsdóttir gerði það í dag án þess að það snerti hana neitt en ég sakna ekki fólks sem lokar vináttuni vegna þess eins að ég tjái mig um persónur,þetta er frekja á hæsta stigi en þetta sýnir bara afturhaldsöflin hér á blogginu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Magnús, þú getur nú alveg og mátt alveg hafa skoðannir á fólki og tjá þig um það og þegar þú segir að einhver sé frekja þá er það ekki svo mikill dónaskapur og jafnvel misjafnt hvað hverjum þykir frekt, en þegar þú segir að einhver sé hálfviti þá þyrftirðu eiginlega að hafa það á hreinu hver kvarðinn er, segjum t.d. að þú segir einhvern vera hálfvita á við mig og segjum að þér ratist rétt á þá er viðkomandi í slæmum málum en ef þú segir einhvern hálfvita á við strákana í Kópavogslíðnu í þættinum Útsvari þá væri það upphefð fyrir fólk eins og mig, en ef þér rataðist nú ekki rétt á og þú kallaðir fólk hálfvita sem eru vel yfir meðallagi í greind þá ertu að móðga það fólk og ekkert að gera annað en að biðja það fólk afsökunnar eins og sannur herramaður í Samfylkingunni mundi gera og svo geturðu alveg sagt að þér þyki það sama fólk og þú áður baðst afsökunnar, vera bjánar nú eða hálfvitar en fyrst og fremst að það sé þitt mat en ekki að viðkomandi sé, því að það er alhæfing.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 3.5.2009 kl. 01:44

2 identicon

Magnús,

Þú ert ekkert betri en feminstarnir. Þ'u ert að alhæfa að fjöldi fólks séu hálfvitar. Það er ekki skrýtið að fjöldi fólks sem var hérna að kommenta er farinn.

Ég hef átt mitt síðasta orð hér á síðunni. Farvel.

Leifur Páll (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 10:04

3 Smámynd: Ragnheiður

Ég skal þá  bara vera frekja, mér kemur þetta við vegna þess að um vinkonur mínar er að ræða, svo einfalt er það. Alveg eins hefði ég varið þig hefði einhver ráðist svona að þér.

Hafðu það gott kallinn, ég hélt að það væri meira varið í þig en þetta.

Ragnheiður , 3.5.2009 kl. 10:56

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hvernig stendur á því að ég finn ekki þessi stóru orð sem þú stendur við ??
kv afturhaldssinnaði öfgafeministinn Heiða

Heiða B. Heiðars, 3.5.2009 kl. 11:14

5 Smámynd: ThoR-E

Femínistar berjast fyrir réttindum dætra okkar og eiginkvenna.

Finnst þér femínistar vera svona mikil ógn við karlmennsku þína eða hvað er málið?

Þetta er hálf grátbroslegt að verða vitni af ítrekað, kynbræðrum mínum ráðast að femínistum með hálf ógeðfeldum hætti.

ThoR-E, 3.5.2009 kl. 11:24

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég þakka innilega fyrir hlý orð í minn garð (hver sem þau nú voru) og óska þér gleðislegs sumars, margra sólarstunda og fallegrar framtíðar.

Kveðja, helvítis femýýnazitabeljan.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2009 kl. 11:27

7 identicon

Styð Magnús

 Það er málfrelsi í landinu

Óli í Hrafnhólum (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 16:28

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Það er alveg rétt Óli en það leyfir mér ekki að alhæfa neitt um að þú sért hálfviti.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 3.5.2009 kl. 18:29

9 Smámynd: Gísli Ásgeirsson

Allir hafa sýnt Magnúsi þá sjálfssögðu tillitssemi að segja honum ekki hreint út hvað hann er. Það er athugasemdahöfundum til sóma.

Gísli Ásgeirsson, 3.5.2009 kl. 18:32

10 Smámynd: Heiða B. Heiðars

LOL

Mér finnst þetta ógeðslega fyndið.... sérstaklega í ljósi þess að hann virðist hafa tekið þessi ummæli út.... en stendur samt við þau :)
"Ég vil vegna ummæla minna um Jenný Önnu og Heiðu,taka það fram að ég stend við hvert orð sem ég hef sagt um hinar afturhalssinnuðu og öfgafemínísku femínista sem tjá sig um allt milli himins og jarðar án þess að vita stundum hvað þær eru að tjá sig um.


Heiða B. Heiðars, 3.5.2009 kl. 19:43

11 Smámynd: Gísli Ásgeirsson

Kannski ætti maður að tjá sig svona almennt um fólk?

Gísli Ásgeirsson, 3.5.2009 kl. 20:05

12 Smámynd: Gísli Ásgeirsson

Dæmi: "Ég stend við hvert einasta orð sem ég hef sagt um Jenný og iðrast einskis. Það verður bara að hafa það. Þetta er mín athugasemd og hér ræð ég."

Gísli Ásgeirsson, 3.5.2009 kl. 20:06

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2009 kl. 20:10

14 Smámynd: ThoR-E

Grátbroslegt.

ThoR-E, 4.5.2009 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

240 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband