Aftur flensa.

Þá er það klárt,mér hefur slegið niður af flensunni og eru það skelfilegar fréttir og er maður að verða brjálaður,sífelldur hósti en svona er þetta en ég fer þó út að versla í Bónus því það fer að verða matarlaust í kotinu.

Í gær var erfiður dagur í íslenskum stjórnmálum er sett voru neyðarlög um islenska fjármálakerfið sem gefur Fjármálaeftirlitinu víðtækar heimildir til að yfirtaka að hluta eða öllu leyti banka og fjármálastofnanir og er ég hlyntur þessum lögum og í kjölfarið er ég á því að nú þurfi að lækka hér stýrivexti hraatt enda eru þeir í dag þeir hæstu í heiminum hér á landi 15,5% og breyta gengisstefnunni strax en krónan hefur verið látin fljóta síðan 1991 að mig minnir og helst ætti að gera þetta með handafli en klárt er að peningamálastefna Sjálfstæðisflokksins er gjaldþrota og eins gott að pólitíkusar og embættismenn geri sér grein fyrir því og grípi strax í taumana.

Ég kem með skoðanakönnun rétt strax og nú kjósa allir.

                                 KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já, það var sérkennilegur dagur í gær. Hlustaði á ræðu forsætisráðherra og fylgdist með langt fram á kvöl.

Ég hef verið að berjast við kvef en ætla í söngtíma á eftir. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 7.10.2008 kl. 11:10

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Láttu þér batna kallinn minn....

Solla Guðjóns, 7.10.2008 kl. 13:46

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það eru sérkennilegir tíma.  Farðu vel með þig, láttu þér ekki verða kalt og hafðu það bara eins þægilegt og þú getur. Það getur verið ógaman að slá niður af veikindum.

Kveðjur.

Rúna Guðfinnsdóttir, 8.10.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

241 dagur til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband