Uppáhaldssportið mitt.

nullEr NFL deildin í amerískum fótbolta enda menn með mitt vaxtarlag að spila í deildinni en það sem heillar mig mest við NFL er mikið action sem er alveg frá upphafi til enda leiks.

Ég ætla hér á eftir að reyna að skýra þennann auðvelda leik út fyrir ykkur lesendur góðir,auðvelda segi ég því ég hef orðið þess var að þegar ég hef útskýrt leikinn fyrir fólki þá á það auðveldara með að fylgjast með framvindu mála í leiknum,ég vil taka það fram að við tölum um metra,kaninn talar um yarda en til að umbreyta yördum í metra þá tökum við 1/10 af og þannig finnum við metrann,t.d eru 100 yardar 90 metrar.

En byrjum á byrjuninni,grundvallarreglan er sú að lið fær 4 tilraunir til að komast 10 metra,ef liðið kemst umrædda 10 metra í einhverri af þessum tilraunum og fær aftur 4 og svo koll af kolli og er markmiðið að koma boltanum í endamarkið og fá fyrir það 6 stig og heitir það snertimark(touchdown)yfirleitt taka liðin svo aukastig sem gefur 1 stig en það gerist með að sparkari sparkar frá ákveðnum stað.

Sé lið á 3 tilraun og á kanski 3 metra eftir og er nægilega stutt frá endamarki þá reynir liðið á 4 tilraun við vallarmark og fær 3 stig fyrir það,sé lið á 3 tilraun og á 3 metra eftir en er langt frá endamarki þá sparkar liðið boltanum frá sér og hitt liðið fær boltann þá er boltanum sparkað í átt að endamarki andstæðinganna þar sem leikmaður andstæðinganna grípur hann og hleypur af stað,sókn liðs hans hefst þá þar sem hann er stöðvaður.

Leikstjórnandinn(Quarterback)er aðalhemill liðsins og hefur hann 2 möguleika á að koma boltanum frá sér,annað hvort með því að henda boltanum fram völlinn til einhvers sem á að grípa hann eða hann réttir boltann til hlaupara sem reynir að komast fram völlinn með hann.

Varnarmenn eru eðlilega í því að reyna að trufla sóknarleik andstæðinganna og er þeirra keppikefli vað fella leikstjórnandann og helst að ná að fótbrjóta hann á báðum og lesa honum svo pistilinn.

Dómarar eru 7 alls og eru með gulan klút í vasanum og kasta honum á völlinn ef eitthvað brot á sér stað því það eru kanski 60 þús manns á vellinum og þeir heyra eðlilega ekki í neinni flautu.

Algeng brot eru eftirtalinn:
Of seinir að spila kerfi:Lið fær 40 sekúndur til að koma kerfi í gang takist það ekki fær viðkomandi lið 5 metra í víti og er þá kanski 1 tilraun og 10 orðin að 1 tilraun og 15.

Rangstaða:Hreyfi leikmaður sig áður en kerfi fer í gang á er dæmt 5 metra víti á liðið.

Kasti leikstjórnandi boltanum 40 metra og það er brotið á hans manni þá færist boltinn þangaðsem brotið var framið.

Intentional grounding:Ef leikstjórnandinn fer yfir bardagalínu og hendir boltanum viljandi í jörðina skal dæma víti á hann.

Bannað er að toga í grímu leikmanns og getur hæsta refsing verið allur völlurinn en yfirleytt er víti á bilinu 5-15 metrar,ef þú sleppir ekki grímunni þá er alltaf dæmt 15 metra víti.

Þjálfari hefur 1 tækifæri í hvorum hálfleik til að fá að skoða atvik og það gera þeir með að henda rauðum klút á jörðina ef fyrri dómur stendur þá tapar viðkomandi lið leikhléi en hvort lið fær 3 leikhlé í hvorum hálfleik.

Leiktími samanstendur af 4 15 mín leikhlutum og er hvor hálfleikur því 2 leikhlutar.

Núverandi meistarar eru Indianappolis Colts,deildin skiptist annarsvegar í Ameríkudeild og Þjóðardeild.

Deildin hefst í byrjun september og stendur til byrjun febrúar þegar sigurliðin í Ameríkudeild og Þjóðardeild leika í Superbowl um Vince Lombardy styttuna.

Mitt uppáhaldslið í NFL eru Sanfrancisco 49ers og Pittsburgh Steelers.

Ég vona að með þessari kynningu þá hafi ég skýrt þennann leik nógu vel út fyrir ykkur lesendur og bloggvinir góðir en ef ekki þá bara spyrja en ég kem eðlilega ekki öllu að svo að ef einhver les þetta sem er inn í þessum leik þá má hann leiðrétta mig en eftir sem áður vil ég taka það fram að ef einhver verður með skítkasdt og leiðindi út í mig eða mína persónu þá verður viðkomandi comment fjarlægt.

                            KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð kynning á skemmtileri íþrótt,en þú gleymdir því að sjálfsmark gefur mótherjanum 2 stig og boltann aftur en sjálfsmark er ef að stjórnandinn er felldur í eigin marki,annars bara nokkuð góð kynning,mitt lið er Dallas Cowboys.

áhugamaður um NFL. (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 08:03

2 identicon

það er gaman að horfa á nfl

Emil Ólafsson (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 205249

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

220 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband