Helgin.

Helgin var fín eins og við var að búast en þó voru nokkrir dökkir blettir á henni eins og oft vill verða.

Byrjum á fimmtudagskvöldinu en þá var Landsþing Þroskahjálpar sett á Grandhótel og var mjög fínt Graduelakór Langholtskirkju söng og haldnar voru ræður þar sem m.a. Jóhanna Sigurðardóttir (Félagsmálaráðherra)talai auk Gerðar Árnadóttur(Formanns Þroskahjálpar),einnig voru veitt heiðursmerki samtakanna og þar fékk Ína Valsdóttir(Formaður Átaks,félags fólks með þroskahömlun)heiðursmerki fyrir vel unninn störf og átti hún það svo sannarlega skilið.

Á föstudeginum hitti ég Ottó vin minn á BK sem var áð láta mig fá pakka sem keypti handa mér í Manchester og sagði að ég yrði að halda með Manchester United,ég hélt nú ekki,sagðist halda með Notthingham Forest eins og ég hef gert í 30 ár,þaðan var haldið á aukaæfingu í Hraðakstur bannaður fyrir spilamenskuna kvöldið eftir og þaðan var haldið í íþróttahúsið Austurberg þar sem ÍR og Selfoss léku en ég var skrifari á leiknum (en pistil um hann má sjá hér neðar á síðunni)

Á laugardeginum slappaði ég af við að horfa á landsleiki í sjónvarpinu og sérstaklega var ég spenntur fyrir leik Íslands og Lettlands og þvílíkur hörmungarleikur sem strákarnir buðu uppá,sérstaklega var fyrri hálfleikurinn alger hörmung en skánaði aðeins í fyrri hálfleik,það bjartasta við leikinn var að Eiður Smári Guðjohnsen bætti markamet Ríkharðs Jónsonar um 2 mörk(Úr 17 í 19)en annars var þessi leikur skelfilegur,síðan sóttu konan mín og Ína mig og var haldið í hátíðarkvölverð landsþingsins og skemmtum okkur vel,m.a fór ég upp á svið og tók mitt búmer á Þroskahjálparþingum og uppákomum en það er Delilah og spilaði Halldór Gunnarson undir á píanó,Veislustjóri var Guðbjartur Hannesson(þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi)og ræðumaður kvöldsins var Jón Bjarnason(Þingmaður Vinstrigrænna í sama kjördæmi)og fóru hamförum báðir tveir.

Svo hófst spilamenskan og byrjuðu Plútóstelpurnar en ekki þurfti ég að syngja með þeim því prógramm beggja varð að stytta um 15 mín hjá báðum böndum því dagskráin á hátíðarkvöldverðinum fór hálftíma fram úr áætlun.

Þegar röðin kom að okkur í Hraðakstrinum gekk allt á afturfótunum, magnarinn hjá Rósu kennara(Gestafiðluleikari)slokknaði,fótstigið fór af trommusettinu og til að bæta gráu ofan á svart þá slokknaði ljósið sem undirleikarar hafa en allt reddaðist þetta nú og við komum öllum 5 nýju lögunum að sem var það sem ég lagði áherslu á en svona bilanir gerast og ekkert við því að gera,við stóðum okkur þó með sóma eins og Plútó.

Í gærkvöldi horfði ég á mitt uppáhalssport,Amerískan ruðing(NFL) og í dag er ég aftur kominn með þessa pest sem ég var með í seinustu viku en ég var búinn að ákveða að spila veikur ef svo færi því við spilum ekki það oft og nú er bara að fá sig endanlega góðan því ég má eiginlega ekki vera að því að vera veikur.

Svona var helgin hjá mér elskurnar,góð en ekki áfallalaus.
                                        KV:Korntop.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Það hefur verið þéttskipuð dagskrá hjá þér um helgina, leitt að það gekk ekki 100% en það er sama. Verra með þessa pest...farðu nú extra varlega til að ná þessu úr þér.

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 18:55

2 identicon

Það er greinilega nóg að gera hjá þér. Mér þykir þið góðir að koma frá ykkur 5 lögum með allt þetta bilirí. Góðan bata.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 19:54

3 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Það er ekki hægt að segja annað að það hafi orðið mikið úr verki hjá þér um helgina og ég held að það sé komin tími á að skella sér á ÍR leik en það er orðið langt síðan að ég skrapp síðast

Katrín Ósk Adamsdóttir, 15.10.2007 kl. 20:09

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Farðu vel með þig til að þú náir þessu úr þér almennilega

Sunna Dóra Möller, 15.10.2007 kl. 20:52

5 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Helgin hefur ekki verið átakalaus hjá þér,en hefur örugglega verið skemmtileg þrátt fyrir smá óhöpp.

María Anna P Kristjánsdóttir, 16.10.2007 kl. 11:52

6 identicon

Þú ert á ferð og flugi,ertu á einhverju,alveg ótrúlegur dugnaður í þér alltaf Maggi minn.

Pétur (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 12:02

7 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Takk stelpur mínar fyrir góðar batakveðjur.

Pétur.Nei,ég er ekki á neinu en þessi helgi var erilsöm eins og þú last líklega.

Já,náðum 7 lögum miðað við allt bileríið.

Magnús Paul Korntop, 16.10.2007 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 205196

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

234 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband