Fréttir vikunnar.

Sæl öll,þá er komið að fréttapistli vikunnar og verður að segjast eins og er að ekki var nú mikið fréttnæmt að mínu áliti en ef ykkur finnst ég hafa gleymt einhverju þá endilega setjið það í comment en eins og síðast þá eru þetta þær fréttir sem ég taldi fréttnæmt í vikunni,verði ykkur að góðu elskurnar mínar.

Mál málanna var eins og áður vinur minn Emil Ólafsson en mál hans tóku á sig ýmsar myndir í vikunni,á þriðjudagskvöld var hann í viðtali í Ísland í dag vegna ásakanna sem á hann eru bornar á bloggsíðu Elíasar Halldórs Ágústsonar um dreifingu á barnaklámi við annann mann árið 1999 og neitaði hann sök og fannst mér hann koma vel út úr þessu viðtali og verð ég að segja að það var rétt ákvörðun hjá honum að fara í þetta viðtal en líklega eru einhverjir þarna úti mér ekki sammála og það er fínt því þá skapast umræður og þá er tilgangnum náð en hefði hann ekki farið í þetta viðtal þá hefði málið litið ansi illa út fyrir hann það eina sem mér fannst ekki við hæfi var bolurinn sem hann var í.

Daginn eftir var bloggsíðu hans lokað vegna ítrekaðra brota á skilmálum mbl og verð ég að segja það að það var rétt ákvörðun því skrifin voru ekki beint falleg,sérstaklega ekki þegar kom að femínistum og konum og jafnrétti þeirra og baráttu fyrir kvenfrelsi en mér finnst að fyrst þessari síðu var lokað að þá verði að halda áfram og klára verkið því nokkrar síðurnar á moggablogginu eru lítt skárri,en Emil opnaði bara nýtt blogg á nýjum server og má búast við honum í sama ham þar.

Í lok vikunnar fór Emil svo í felur vegna hótanna og er hann enn í felum þegar þetta er skrifað.

Annað mál sem fór hátt í vikunni var að 5 unglingspiltar á Akureyri á aldrinum 16-21 rændu hundi af sjaldgæfri hundategund(Chineese eitthvað)settu hann í tösku og spörkuðu henni á milli sín þar til hanjn lést,virkilega viðbjóðslegt enda létu viðbrögð almennings ekki á sér standa og fór mikil bylgja af stað þar sem ódæðið var fordæmt og mættu um 100 manns til "kertavöku"á Geirsnefi paradís hundaeigenda,það nýjasta í þessu er svo það að einum þessara manna hafa borist líflátshótanir og er það að mínu viti kanski fulllangt gengið en þessi hörmulegi verknaður er með þeim viðbjóðslegri sem ég hef lesið og heyrt um í mörg ár.

Enn og aftur voru bílstjórar að kítla pinnann of mikið og hafði lögregla vart undan að taka hraðskreiða ökuþóra fyrir glannaakstur, og ég held að fólk læri ekki fyrr en ökutæki verði gerð upptæk og hátt verð verði sett við að leysa þau út.

Einnig var í vikunni stórt fíkniefnamál þar sem "lítil"6 kg"af kókaíni fundust á Litháa sem var að koma frá Kaunas en þar virðist vera 
starfrækt kókaínrækt sem flytur allt þetta magn hingað en alveg er það merkilegt hvað Litháar eru lagnir við að lenda í klónum á íslenskum toll og lögreglumönnum.

Í vikunni lét Tony Blair formaður breska verkamannaflokksins af embætti forsætisráðherra breta eftir 10 ár og 2 mánuði í starfi og við tók Gordon Brown og byrjaði hann á því að hreinsa ærlega til í ráðherraliðinu því þegar fyrsta stjórn hans var kynnt höfðu 11 ráðherrar fengið að fjúka og aðrir höfðu verið færðir til.

Að endingu má geta þess að KR-ingar unnu sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni er þeir sigruðu FRAM í 8 umferð 2-1 en í þessum leik börðust bræður en Teitur Þórðarson þjálfar KR og Ólafur Þórðarson þjálfar FRAM,í sömu umferð kjöldrógu Valsmenn FH-inga 4-1 og við það helst spennan í deildinni.

Fleira er ekki í fréttum,fréttalestri er lokið.

                        KV:Korntop  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Takk fyrir það Gunni minn.

Magnús Paul Korntop, 1.7.2007 kl. 04:03

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta Emilsmál hefur algerlega sloppið framhjá mér.. -hvar finn ég bloggsíður þessarra manna?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.7.2007 kl. 04:09

3 Smámynd: Ragnheiður

Fínn pistill hjá þér Maggi. Held að allt sé þarna með hjá þér nema kannski ástandið í London

Ragnheiður , 1.7.2007 kl. 08:20

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég sá hann ekki í Íslandi í dag . Hefði verið fróðlegt..umdeildur sem hann nú er, maðurinn sá.

Rúna Guðfinnsdóttir, 1.7.2007 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

238 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband