ÁSKORUN.

Hér með skora ég á Hæstvirtan forsætisráðherra að segja af sér áður en að hún gengur að landinu dauðu.

Allir sem lesa fréttir vita hvernig staðan í þjóðfélaginu er en fyrir þá sem ekki vita að þá eru það ESB og ICESAVEreikningarnir sem er í forgangi hjá þessari ríkisstjórn og það gerir það að verkum að sú skjaldborg sem setja átti um heimilin í landinudregst sífellt meira á langinn og skilur eftir sig sviðna jörð.

Það þýðir á mannamáli að skuldir heimila hrannast upp og fólk flýr land í bílförmum og er það skelfilegt ástand g þessu verður að breyta og verður það best gert með því að núverandi ríkisstjórn víki enda sannað mál að hún veldur ekki hlutverki sínu og við taki hér þjóðstjórn.

Í því ljósi þess og með almannahagsmuni í huga hvet ég þig Jóhanna Sigurðardóttir til að segja af þér svo að skaðinn verði ekki meiri en orðinn er þú reyndir en þinn tími er einfaldlega búinn,svo einfalt er það.

MUNIÐ KÖNNUNINA-KJÓSIÐ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ertu farinn að sjá eftir því hvernig þú kaust 25 Apríl og hvernig þú og miklu fleiri voruð BLEKKTIR til að koma þessum ófögnuði að völdum?  Sem betur fer er ég með hreina samvisku hvað það varðar að ég kaus þetta lið EKKI.

Jóhann Elíasson, 25.7.2009 kl. 10:09

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæll Jóhann: Nei alls ekki,ég er evrópusinni en allt annað er rugl sem gert hefur verið,þau ætla að borga ICESAVE og ganga að skilyrðum sem við eigum ekki að gera og hvað þá að við eigum að borga þetta rugl.

Á meðan blæða heimili og fyrirtæki og ég kaus Samfylkinguna til að rétta þau af en ekki til að setja ICESAVE í forgang og á þeirri forsendu hefur Samfylkingin brugðist bæði mér og öðrum sem kusu þá.

Magnús Paul Korntop, 25.7.2009 kl. 10:45

3 identicon

Ég er sammála þér Maggi. Jóhönnu vill ég í burtu og ef einhver á að flytja af landi brott þá er það vinstri-pakkið í heild sinni, og aldrei koma aftur.

Sem betur fer eru hendur mínar hvítþvegnar og samviskan hrein eftir síðustu kostningar og þykir mér ekki leiðinlegt að benda fólki á að það var nákvæmlega þetta og auknir skattar og álögur sem vinstri-stjórn hefði í för með sér.

Þorbjörn Víglundsson (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 13:32

4 identicon

Ekki kaus ég þetta pakk og aldrei skal ég borga ICESAVE rugli fyrr skal ég dauður liggja en hins vegar held ég að ESB sé málið ékki förum við að halda uppá dauðvona krónu það er víst. Og það er ekki fiskur í sjónum sem aðrir getta veiit.Varandi landbúnaðinn þá er kominn tími til að bændur fái alvöru samkepnni.

jón (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 15:41

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Þetta er rétt sem Tobbi segir hér um skattastefnu vinstri manna og því eigum við að keppast um það að koma þessari ríkisstjórn frá og það sem allra fyrst.

Magnús Paul Korntop, 26.7.2009 kl. 04:37

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka þér Maggi,þarna gátum við loks alveg verið sammála nema um ESB/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.7.2009 kl. 22:05

7 identicon

Þetta vildi fólkið sem kaus samfylkinguna  ekkert nema svikin loforð

Bjössi (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 09:25

8 identicon

Bjössi: Hvaða loforð hefur Samfylkingin svikið? Nefndu eitt

Leifur Páll (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 11:34

9 identicon

Þetta er Icesave mál er Sjálfstæðisflokknum að kenna.

Þeir "seldu" Björgólfsfeðgum Landsbankann. Landsbankinn getur af sér Icesave = Við borgum Icesave.

Helvítis fokking klúður

Leifur Páll (IP-tala skráð) 27.7.2009 kl. 11:36

10 identicon

Inn með Björgólfanna (í fangelsi þ.e) . Út með ríkisstjórnina

Aðalsteinn Grímúlfsson (IP-tala skráð) 29.7.2009 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

243 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband