Mjöll.

Nú snjóar sem aldrei fyrr og mjöllinn á jörðina fellur,er það ekki bara skýrt merki um að góð Ríkisstjórn sé að taka við völdum hér sem mun hreinsa ærlega til og gera lífið léttara fram að kosningum og halda svo áfram eftir kosningar og þá er kanski alvöru vinstri stjórn í spilunum,ég vona það allavega.

Hvað með ykkur elskurnar?Endilega commentið hér.

Þakka lesturinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Vonandi kemur betri tíð með blóm í haga...en verkefnin eru mikil og þung...

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.1.2009 kl. 20:18

2 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

En hvernig á að fara að með Davíð og co .maður er bara orðin kjaft stopp ,það kemur alltaf meiri hótun frá þessum manni ,hvernig getur hann komið svona fram.Magnús minn hverju spáir þú með hann Kveðja Óla

Ólöf Karlsdóttir, 28.1.2009 kl. 20:36

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég hugsaði það sama þegar ég horfði á hádegisfréttir stöðvar 2 í dag.. alþingishúsið var óvenjufallegt í þessari birtu og með trén hvít af snjó í forgrunni.. Þetta er ekkert annað en fyrirboði um það sem koma skal.

Óskar Þorkelsson, 28.1.2009 kl. 20:41

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jólasnjórinn er of seint á ferðinni.

Jóhann Elíasson, 28.1.2009 kl. 21:16

5 identicon

Djarfur djöfull Davíð er,

drottnar seðlum yfir

Skaffar öllum slatt´af smér

svo lengi sem hann lifir

Ég er ansi hræddur að við losnum aldrei við Davíð nema að borga honum fleiri milljónir. Og þá fyrst verður allt brjálað í þjóðfélaginu.

Leifur Páll (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 21:17

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vonum það besta Magnús minn

Sigrún Jónsdóttir, 29.1.2009 kl. 00:49

7 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Tad skulum vid nona Magnús minn.Med batnandi tíd er best ad lifa.

hjartanskvedjur frá Hyggestuen.

Gudrún Hauksdótttir, 29.1.2009 kl. 08:53

8 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Sæll magnús minn ,hvað segir þú um davið,er hann á förum eða.Þú ert búinn að vera svo sannspár undafarna daga,það er kannski rett að spyrja þig kæri vinur.En annars hef eg tröllatrú á nyju stjórnini

Sædís Hafsteinsdóttir, 29.1.2009 kl. 09:41

9 identicon

má ég spyrja? Hvað sjáið þið svona gott við snjóinn?
Fyrir utan það að vera sífellt blautur í fæturna, má nefna hættuna fyrir eldra fólk. Sem fellur í röðum þessa dagana og beinbrotnar. Og það er ekkert grín fyrir eldra fólk að detta. Einnig eykst slysahætta verulega. Margir ökumenn eru ennþá á sumardekkjum og eru tifandi tímasprengjur í umferðinni. Sérstaklega ef um kvenfólk er um að ræða. Skólabörn gera sér oft að leik að grýta snjóboltum í gluggana hjá manni svo maður hrekkur í kút í hvert skipti. Svo er kostnaður við rúðubrot, snjómokstur osfrv. Einnig er hætt við að snjórinn renni af hallandi þökum beint ofan á hausinn á fólki. Og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Segi því, niður með snjóinn.

Aðalsteinn Grímsson (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 10:46

10 identicon

Í sambandi við snjóinn þá er ég hjaranlega sammanála honum Aðalsteini hér að ofan , snjórinn er ekkert annað en peninga útlát fyrir okkur skattborgarana, eins og við höfum efni á því í dag eftir allt sem undan hefur gengið því segji ég BURT MEÐ SNJÓINN eins og skot

Bjössi (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 14:07

11 identicon

Isak ég gleymdi að minnast á það hér á undan ég er líka sammála þér í sambandi við Davíð

Bjössi (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 14:22

12 Smámynd: Solla Guðjóns

 Snjórinn gerir allt svo bjart og falllegt

Solla Guðjóns, 30.1.2009 kl. 08:41

13 identicon

Já hann er bjartur en stórhættulegur og dýr fyrir þjóðfélagið , get ekki séð neitt fallegt allt í slabbi - salti og sandi  sorrý 

Bjössi (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 09:28

14 identicon

Eitt get ég bara ekki skilið að það er verið að hrópa vanhæf ríkisstjórn og svo situr bara helmingurinn áfram, og vinstri grænir koma inn en 85% þjóðarinnar vill þá ekki í ríkisstjórn. Ég hefði viðjað þjóðstjórn, svo er framsókn eithvað að draga lappirnar svo að stjórnarmyndun dregst eithvað. En annars er ég ánægð með þetta.

Erna (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

243 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband