Húrra fyrir ráðherranum.

Í seinustu viku voru leyfðar veiðar á 40 hrefnum hér við land og er ég mjög hress með þá ákvörðun Einars K Guðfinnsonar sjávarútvegsráðherra sem heimilaði þessar veiðar þrátt fyrir hræðsluáróður ferðasamtaka og hvalaskoðara.

Gerir fólk sér ekki grein fyrir því að maðurinn og hvalurinn eru í harðri samkeppni um fiskinn í sjónum en talið er að einn hvalur innihaldi 1,2 tonn af fiski sem er gígantískt.

Kettlingarsamtök eins og Greenpeace,Sea shepheard og World wide found koma alltaf með sama sönginn þegar þau tala um hvalveiðar, frekar hvimleiður andskoti.

Hér er um að ræða veiðar á 40 hrefnum í vísindaskyni,það er enginn að tala hér um 400 dýr á því er reginmunur en veiðar í atvinnuskyni verða vonandi teknar upp að fullu innann nokkurra ára og þá veitt skynsamlega úr stofninum því stjórnlausar veiðar skila engu,

Ég styð Einar K Guðfinnson í því að nýta okkar eigin fiskimið til að veiða hvali og aðrar tegundir hér við land því það erumvið sem ráðum fiskveiðum hér við land en ekki útlendingar.

                                              KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Hvalurinn er eins og allt annað partur af fæðukeðjunni.. 40 dýr til eða frá skipta ekki miklu máli í heildarsamhenginu.  1.2 milljónir tonna í hvalinn af fiski.. er kannski ofsagt. Megnið af þessu er áta eða svif þótt Hrefnan éti einnig smáfiska.  Hvalurinn er ekki í beinni samkeppni við fiskimenn en svo má spurja hvort fiskimenn séu ekki of ágengir með veiðarfærum sem eyðileggja uppeldisstöðvar á hafsbotni !!

án samtaka eins og Greenpeace væri umhverfisvernd á mjög svo lágu plani.

Óskar Þorkelsson, 29.5.2008 kl. 10:05

2 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Í fiskveiðimálum er ég á móti náttúruverndarsamtökum en með í öðrum málum eins og t.d virkjanabrölti sem er að drepa alla.

Það hefur bara verið sannað að einn hvalur hefur verið með 1,2 tonn af fiski þegar hann hefur verið skorinn í Hvalstöðinni í Hvalfirði.

Magnús Paul Korntop, 29.5.2008 kl. 10:13

3 identicon

Ég er á móti hvalveiðum.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 10:54

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég er á móti berjamó...

Óskar Þorkelsson, 29.5.2008 kl. 11:12

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Magnús minn.

Alveg sammála. Við eigum að hafa jafnvægi í sjónum á milli tegunda. Við eigum ekki að ofveiða einn stofn á kostnað annars og þá kemur ójafnvægi. Hef oft verið atvinnulaus í gegnum tíðina vegna fiskleysis og þá á meðan hafði hvalurinn nóg á éta.

VIÐ EIGUM EKKI AÐ DÝRKA HVAL EN ÞVÍ MIÐUR ER FULLT AF FÓLKI MEIRA AÐ SEGJA HÉR Á ÍSLANDI SEM DÝRKAR HVAL.

Stuðningskveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.5.2008 kl. 13:42

6 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ekki nóg með að hvalurinn skerði okkar hut, heldur er hann einnig að heléta sjófuglana. Pysjan á orðið erfitt uppdráttar. Það verður allt að vera í jafnvægi. 

Kveðjur.

Rúna Guðfinnsdóttir, 29.5.2008 kl. 14:10

7 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Er bara sammála öllum hér fyrir ofan

Svanhildur Karlsdóttir, 29.5.2008 kl. 18:58

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég er á móti Hvalveiðum

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 29.5.2008 kl. 20:18

9 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ég er hlyntur skynsamri nýtingu auðlinda hafsins hvort sem það eru hvalir,þorskur,loðna eða rækja.

Magnús Paul Korntop, 29.5.2008 kl. 20:28

10 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ég er hlynntur skynsamlegri nýtingu náttúrunnar. Hins vegar eru hvalveiðar kvalræði.

Jón Halldór Guðmundsson, 29.5.2008 kl. 22:11

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Skynsemin í stjórnun fiskveiða er málið.

Magnús Paul Korntop, 29.5.2008 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

270 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband