BK alvöru matsölustaður.

Einn er sá matsölustaður í Reykjavík sem margir koma á til að borða en það er BK kjúklingur á Grensásvegi 5.

Ljóst er að þetta er geysivinsæll staður enda þjónustan og lipurðin slík að maður hefur sjaldan orðið vitni að öðru eins.

Á matseðlinum er allt frá kjúkling til nacho´s og kennir ýmissa grasa enda mæta á BK margir af sterkustu mönnum landsins svo sem 4x sterkasti maður heims(Magnús Ver Magnúson)og margir fleiri.

Ég kem þarna oft til að borða og finnst alltaf jafn skemmtilegt að koma þarna,sérstaklega kem ég þarna þegar ég er að búa mig undir tónleika með bandinu mínu og það bregst ekki að ég kem stressaður inn en þegar ég kem út að þá finn ég ekki fyrir stressi svo róandi er þessi staður.

Ég hvet alla til að koma á BK og prófa matinn hjá Halla og félögum og ég garentera að þið verðið ekki svikin af því.
                              KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Kannski madur prófi stadinn.

Benedikt Halldórsson, 26.6.2007 kl. 17:23

2 identicon

Heldurðu að Halli splæsi á þig kókglasi fyrir þessa óbeinu auglýsingu?

gestur (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 17:57

3 Smámynd: Ragnheiður

flott mál ,ég kíki þangað við tækifæri

Ragnheiður , 26.6.2007 kl. 18:19

4 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæll gestur:

Þarf ekki að fá neitt frítt hjá Halla,hvorki kók né annað.

Sæl Hross:

Mikið væri það nú fyndið að þú myndir svo rekast á mig þegar þú kíktir inn.

Magnús Paul Korntop, 26.6.2007 kl. 18:35

5 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég er sammála þér Magnús. Ég hef þó nokkrum sinnum farið á BK og er það fínn staður. Hann er hreinn, þjónustan lipur, maturinn góður og vel útilátinn.

Rúna Guðfinnsdóttir, 26.6.2007 kl. 20:55

6 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sko minn mann - mat-maður.

Vilborg Traustadóttir, 26.6.2007 kl. 23:50

7 Smámynd: Jens Guð

  Sorry,  en mér þykir kjúklingarnir ekkert góðir þarna. Þeir eru leiðinlega harðir að utan.  Á meðan synir mínir voru yngri fórum við oft í BT.  Þeim þótti maturinn þarna góður.  Eftir að synirnir komust á fullorðinsaldur hefur heimsóknum mínum í BT snarfækkað.  Ég hef þó alltaf kunnað vel við þjónustuna.  Og ætli það sé ekki eigandinn,  maður nálægt miðjum aldri,  sem er sérstaklega hress og kátur.   

Jens Guð, 26.6.2007 kl. 23:53

8 identicon

Ekki skrítið að þeir hafi verið harðir að utan hjá þér Jens Guð ef þú fórst í BT að eta.

Berglind (IP-tala skráð) 27.6.2007 kl. 00:06

9 Smámynd: Magnús Paul Korntop

hahahaha,ja,Jens minn,ekki undrar mig að þér hafi þótt þeir harðir að innann ef þú hefur farið í BT,en að öllu gamni slepptu þá eru nú ekki allir hrifnir af BK eða hvernig halda menn/konur að ástandið væri ef fólk væri sammála um alla skapaða hluti?

Magnús Paul Korntop, 27.6.2007 kl. 00:18

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég hef farið  oft á þennan stað.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.6.2007 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband