Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Er að hugsa málið.

Eins og fólk hér á moggablogginu veit þá hefur mikil og hávær umræða verið um hvort vinur minn Emil Ólafsson hafi dreift barnaklámi úr tölvum Háskólans árið 1999,fer þar fremstur í flokki Elías Halldór Ágústson með risa bloggfærslu s.l miðvikudag.

En hvað um það,margir hafa dæmt hann sekan þótt ekki hafi verið dæmt í málinu og er það hinn svokallaði"Dómstóll götunnar"sem það gerir og gerir það í ljósi haturs hans á femínistum og kvenfrelsi.

Þar sem ég hef orðið fyrir aðkasti nafnlausra bloggara á síðu mínni fyrir það eitt að þekkja manninn og vilja vara mig við honum skal bent á að ég kynnist manninum árið 2000 þegar ég vinn hina árlegu söngvakeppni Tipp-Topp og fljótlega uppúr því hefst vinátta okkar sem hefur verið fölskvalaus síðan utan 1 skipti en eins og ég sagði í færslu í gærkvöldi þá ætla ég hvorki að verja hann né ásaka enda ekki í aðstöðu til þess.

Vegna þess að nafnlausir bloggarar eru trekk í trekk að blanda mér í þetta mál sem mér kemur andskotann ekkert við er ég alvarlega að velta fyrir mér að minka bloggið hérna og fara yfir á gamla bloggið mitt á meðan þetta mál er í gangi,vill fólk hrekja mig héðan burt og hafa það á samviskunni?Hvað veit maður svosem?Ég get líka notað mér sjálsagðann rétt minn og eytt út nafnlausum commentum þó þeim sem þau skrifa gangi gott eitt til.

Ég blogga hér um það sem mér finnst skipta máli en tek ekki þátt í málum eins og þeim sem hér geisa og skekja bloggheiminn.

Ég bið bara um að ekki vera að commenta hér um mál Emils og Ísaks,ég er öskureiður yfir því að vera blandað í svona ósóma.
MÉR KEMUR ÞETTA MÁL EKKI VIÐ OG ÞAR HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ.


Það var mikið.

Mikið var ég ánægður með að heyra það að einkadans á súlustöðum heyri brátt sögunni til en hættan er þá bara sú að þessi mjög svo ósmekklega atvinnugrein færist í enn lokaðra samfélag og einnig á þessi sori eftir að færast í auknum mæli inn á heimilin en þessa niðurlægingu gagnvart konum verður að stöðva því svona lagað er viðbjóðslegt.

Jú,vissulega er hórdómur ein elsta atvinnugrein sögunnar en það verður einhvernveginn að stemma stigu við þessum viðbjóði og helst ætti að loka þessum súlustöðum þar sem misbeyting valds á konum þrífst í skjóli nafnleyndar.

En allavegana er ég mjög ánægður með að einkadans á súlustöðum sé bannaður frá og með 1 júlí.

Til hamingju með áfangann konur.

                   KV:Korntop 


Hvað hef ég gert af mér?

Já,þessi spurning hefur leitað á huga minn seinustu daga í kjölfar bloggs Elíasar Halldórs Ágústsonar(Þegar ég ætlaði að kæra barnaklámhring)en þar eru 2 menn óbeint nafngreindir en fólk lagði saman 2+2 og fékk út að hér var um Ísak og Emil að ræða en þeir eiga að hafa dreift barnaklámi árið 1999 gegnum ircisnúmer notanda sem hann þó aldrei notaði,ef um orðavillu er að ræða þá bara leiðrétta mig og ég laga það.

Nú vill svo til að ég þekki þessa menn nokkuð vel og eru þeir báðir góðir vinir mínir og eru auk þess í hópi fjölmargra blogvina hér á síðunni,því hefur nú samt háttað til að ég hef umgengist Emil meira og hefur hann hjálpað mér mikið seinustu 2-3 árin varðandi tölvuna mína og einnig hefur hann dregið mig áfram í sund og æfingar í GYM 80 og á hann heiður skilinn fyrir það,auðvitað á hann sínar dökku hliðar eins og kemur fram á blogginu hans þar sem hann segir sínar skoðanir á femínistum og kvenfrelsi en það er líka til góðar hliðar hjá honum.

Nú vill þannig til að ég er lítt hrifinn af femínistum og þeirra hugmyndafræði en ég tek það skýrt fram að femínistar eiga rétt á sér og örugglega ágætisfólk sem vill vel en leiðir okkar eiga bara ekki saman,ég ber virðingu fyrir femínistum eins og öðrum baráttuhópum og svo sannarlega styð ég kvenfrelsi á Íslandi eins og flestir landsmenn vonandi.

En aftur að þessu umrædda máli sem mikið hefur farið fyrir síðan á miðvikudag  og skekið hefur bloggheiminn þar sem umræddir menn hefur verið sagt til syndanna en hvernig tengist þetta mér eiginlega?

Jú,það hafa nefnilega komið comment þar sem ég á að reyna að koma Emil í skilning um að hætta að rakka niður ýmsa hópa,loka á hann í commentakerfinu því ég yrði rakkaður í svaðið með honum og meira rugl,við þessu vil ég segja þetta:

Ég á ekki að þurfa að líða fyrir vináttu mína við Emil og Ísak enda ræðum við önnur mál þegar við hittumst og ég get fullyrt það hér að umræðuefnið er ekki femínistar og kvenfólk heldur aðrir hlutir,ég er heldur ekki alltaf sammála Emil í skoðunum og allra síst þegar kemur að konum,sum vandamál hefur Emil komið sér í sjálfur og verður hann að koma sér út úr þeim sjálfur.ég tengist þessu máli ekkert og því kemur umrædd spurning oft upp í hugann því ég hef öðrum hnöppum að hneppa heldur en vera bendlaður við þetta óhugnanlega mál því varsla og dreifing barnakláms er sakhæft athæfi þótt það hafi ekki verið það þegar umræddur atburður á að hafa gerst og finnst mér svör Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra alveg út í hött þegar málið var rætt við hann í fréttum stöðvar 2 á föstudag minnir mig.

Ef að þessir alvarlegu ásakanir sannast á þá eiga þeir að sjálfsögðu að taka út sinn dóm en einhversstaðar stendur að maður er saklaus uns sekt er sönnuð.

Að lokum þetta:

Ég frábið mér frekari bendlanir við þetta mál,mér kemur það ekki við og vil helst ekki vita af því aukinheldur ætla ég hvorki að verja þessa menn né ásaka þá því ég er ekki í aðstöðu til þess.


Ég stofnaði þessa síðu hér til að segja mínar skoðanir og hver sem er má commenta ef hann er ekki með skítkast við mig,ég mun umgangast Emil og Ísak hér eftir sem hingað til og vil helst ekki fleiri comment um þetta mál hér,ég geri mér grein fyrir að fólk vilji vara mig við en þess þarf ekki.

Ég vonast til að þessi grein mín verði til þess að ég verði látinn í friði hvað þetta mál varðar enda önnur mál sem ég vil frekar geta átt rökræður við ykkur um bloggvinir og lesendur góðir.

                            KV:Korntop


Fréttir vikunnar.

Nú verður kynntur til leiks nýr Dagskrárliður sem mun bera heitið"Fréttir vikunnar"og fjallar eins og nafnið ber með sér um fréttir vikunnar hverju sinni en tekið skal fram að ekki er um tæmandi fréttir að ræða heldur er þetta svona það sem mér þykir fréttnæmt hverju sinni en byrjum á byrjuninni og njótið vel elskurnar mínar.

Við byrjum á íþróttafréttunum en íþróttir voru mjög fyrirferðamiklar í vikunni sem er að líða enda margt sem gerðist.

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lék 2 mikilvæga leiki í vikunni,þann fyrri á laugardaginn fyrir viku er sterkt lið Frakka mætti hingað til lands en íslensku stelpurnar sigruðu 1-0 og fylgdu því svo eftir með sigri á serum 5-0 og eru þær nú efstar í sínum riðli frábær árangur íslenska kvennalandsliðsins.

Á þjóðhátíðardaginn urðu Serbar líka fyrir barðinu á íslendingum en nú í handbolta þegar ísland sigraði Serbíu 42-40 í seinni leiknum í umspili um að komast á EM í Noregi í janúar á næsta ári.

S.l  föstudag var svo dregið í riðla fyrir umrætt mót og drógumst við í riðil með Frökkum,Slóvökum og Svíum erfiður og krefjandi riðill en ekki óyfirstíganlegur.

Í vikunni var tilkynnt að Jóhanna Sigurðardóttir Félagsmálaráðherra
ætlar að vera með kynjakvóta í ráðuneytisog nefdarstörfum.

Á þriðjudaginn var kvenréttindadagurinn og af því tilefni afhentu femínistar 9 þingmönnum Norðvesturkjördæmis bleika steina og hafði ég lúmskt gaman af.

Í vikunni voru sífelldar fréttir af hraðakstri og er það plága sem engan enda virðist ætla að taka,einnig bárust fréttir af því að Spice girls væru að koma saman aftur.

En á miðvikudag kom svo hvellurinn sem skók ekki bara fréttatíma ljósvakamiðlana heldur fór bloggheimurinn ekki varhluta af því þegar Elía Halldór Ágústson skrifaði grein á bloggsíðu sinni um að hann hafi ætlað að kæra barnaklámhring en talað fyrir daufum eyrum lögreglu en í grein sinni nafngreinir hann óbeint 2 menn sem árið ´99 áttu að hafa dreift barnaklámi útum allt,en í kjölfarið fór af stað hrina hér á mbl blogginu gagnvart þessum 2 mönnum sem jú mikið rétt voru ekki nafngreindir með nafni en fólk virðist hafa lagt saman 2 0g 2 en ljóst er að öll kurl eru ekki komin til grafar í þessu máli.

Í gær kom svo viðtal við mig í mogganum þar sem ég sagði lítillega frá sjálfum mér en gaman var að vinna þetta viðtal með blaðakonunni.

Fleira er ekki í fréttum,fréttalestri er lokið.
                                    KV:Korntop


Leti.

Þá er kominn enn einn dagurinn og ekki vantar hlýindin ha,er að jafna mig í tánni en vinstri táin er bólginn og veit ekki hvað veldur en þetta er afar sársaukafullt og fer til læknis ef þetta lagast ekki fljótlega.

Dagurinn í gær var skemmtilegur í alla staði,byrjaði á því að skoða viðtalið sem kom við mig í Mogganum í gær og þakka ég öllum sem hafa tjáð sig hér um það viðtal.

Fór svo í afmæli til Aileenar vinkonu minnar en hún er þrítug í dag þessi elska og óska ég henni innilega til hamingju með áfangann og af því tilefni tókum við okkur saman 5(Ég,Dagbjört,Hillý,Jón Grétar og Danni) og gáfum henni 790 sænskar krónur en Aileen fer út n.k þriðjudag til Svíþjóðar að hitta vinafólk sitt þar,þetta afmæli einkenndi mikill hiti og sátum við út í garði nær allann tímann,boðið var upp á pylsur á pinnum,flatkökur,afmælisköku,ávexti ofl,á heimleiðinni kom ég við í 10/11 og keypti það sem mig vantaði,síðan var mér ekið heim oghef haft það gott síðan,legið í leti og haft það næs.

Hef ákveðið að byrja aftur með fastann lið á sunnudögum sem heitir"Fréttir vikunnar"en þar verður rifjað upp það helsta úr fréttum liðinnar viku og eru þá bloggfréttir engin undantekning,er stefnt á fyrsta pistil síðar í dag er ég hef viðað að mér nægu efni en nú er mál að linni að sinni.

                               KV:Korntop


Erfiður riðill.

Nú fyrr í kvöld var dregið í riðla fyrir evrópumót landsliða í handknattleik sem fram fer í Noregi 17-27 janúar á næsta ári og dróst íslenska liðið með Frökkum,Slóvökum og Svíum og verður þessi riðill spilaður í Þrándheimi og fara að mig minnir 3 lið uppúr riðlinum en þetta er einhver erfiðasti riðillinn í mótinu en þegar litið er á hina riðlana þá megum við bara nokkuð vel við una held ég.

Undirritaður er þegar farinn að velta því alvarlega fyrir sér að fara til Noregs og styðja íslenska liðið en allt er þetta spurning um pening,ég ætlaði líka á HM sem var í Þýskalandi í byrjun þessa árs en maður sá hvergi auglýstar ferðir en nú verða allir tengiliðir notaðir til að þessi ferð kæmist á koppinn en það yrði mín fyrsta handboltaferð síðan ´93 þegar HM var haldið í Svíþjóð en við sjáum hvað setur.

                                             KV:Korntop

 


Viðtal.

Vil bara minna á að viðtalið við mig í morgunblaðinu birtist á morgunn,þar getið þið bloggvinir og lesendur góðir kynnst mér betur og séð fyrir hvað ég stend hvort sem það sé íþróttafélag,skoðanir eða annað.

                          KV:Korntop


Enn af hraðakstri.

Enn heldur hraðakstursbylgjan áfram og virðist enginn endir ætla að verða á þessari óöld í bráð.

Nú liggja þrjú ungmenni stórslösuð eftir ofsaakstur eftir Geirsgötunni  sem endaði með því 18 ökumaður missti stjórn á bíl sínum og lenti með miklum hvell á Hamborgarabúllu Tómasar.

Vonandi ná þau sér og um leið vona ég að þetta verði öðrum víti til varnaðar og að fólk aki hægar um göturnar en munum að hámarkshraði í þéttbýli er 90 km.

                               KV:Korntop


Kvennalandsliðið í ham.

          5-0
Þá er nýlokið leik Íslendinga og Serba í evrópukeppni kvennalandsliða og unnu íslensku stelpurnar glæstan sigur 5-0 og verð ég að segja að mér fannst hann í minna lagi slíkir voru yfirburðir "stelpnanna okkar" en þessar lokatölur þó aldeilis frábærar og efsta sæti riðilsins staðreynd.

Ég ætla ekki að rekja gang leiksins því íslenska liðið var nánast með boltann allann leikinn og fengu 16 hornspyrnur gegn 3 svo dæmi sé tekið,gaman er að sjá breiddina í íslenskri kvennaknattspyrnu því þær sem komu inná sem varamenn stóðu sig vel og veiktu liðið ekkert svo hár er styrkleiki í íslenskri kvennaknattspyrnu.

Gaman var að sjá hversu margir áhorfendur mættu á þennann leik en áhorfendamet var sett á kvennalandsleik á íslandi en 5976 mættu á leikinn og studdu "stelpurnar okkar"allann leikinn og eins og landsliðsþjálfarinn og Margrét Lára sögðu eftir leikinn þá leið þeim eins og þær væru 2 fleiri og er mikið til í því,gaman var að sjá að íslensku stelpurnar lögðu sig fram og kenndu svolítið karlalandsliðinu hvernig á að leggja sig 100%í leikinn,í kvöld voru hlutirnir gerðir af krafti og ánægju en ekki með hálfum huga eins og oft vill verða hjá karlalandsliðinu því miður,stelpurnar sýndu einnig að með samheldni og áráttu þá er ýmislegt hægt.

Hjá serbneska liðinu var fátt um fína drætti og minnti liðið langtímum saman á villtar beljur á leið til slátrunar,Vanja Stefanovic sem leikur með val hér á landi var skást í serbneska liðinu en nánast allann leikinn virtust þær ekki vita hvaða hlutverk hver hefði innann liðsins.

En semsagt frábær íslenskur sigur og efsta sætið í riðlinum tryggt í bili.
Mörk íslands.Dóra Stefánsd(3),Dóra Marí Lárusd(23),Katrín Jónsd(58),Margrét Lára Viðarsd(81),sjálfsmark(86).

                                    KV:Korntop

 


Heppinn að vera enn á lífi.

Þeir sem sáu Montreal kappaksturinn í kanada sáu bíl pólverjans Robert Kubica þeytast á 250-300 km hraða ag vegriði yfir brautina og á steinvegg hinummeigin og var óhugnanlegt að sjá þetta því eins og gefur að skilja var hraðinn gífurlegur.

Nú hefur komið í ljós að Kubica lifði af 75 falda þyngdaraflshröðun og er það hreint með ólíkindum en hann slapp nær ómeiddur úr þessum hildarleik en þetta sýnir meira en nokkuð annað hversu stórhættuleg þessi íþrótt er.

Robert Kubica ekur fyrir BMW Williams liðið.
                              KV:Korntop


mbl.is Kubica lifði af 75 falda þyngdaraflshröðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 205158

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

248 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband