EVRÓPUSAMBANDIÐ?JÁ TAKK.

Ég er einlægur stuðningsmaður þess að við Íslendingar göngum í ESB og ættum í raun að vera kominn þangað inn fyrir löngu síðan.

Kostir: Vextir lækka,matarverð lækkar,stöðugur gjaldmiðill, kvótakerfið dautt og það sem mestu máli skiptir er að einkavinavæðing sjálfstæðisflokksins væri úr sögunni.

Galli: Sjávarútvegsstefna ESB en hana hlýtur að vera hægt að semja um.

Fullveldið:Við töpum því ekkert.

Sjálfstæðið: Ekki heldur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Hansson

Sæll Magnús.
Ég legg til að þú gefir þér 2 mínútur og 47 sekúndur til að hlýða á ávarpið sem er að finna í þessari færslu.

Þetta snýst um meira en samning um fiskveiðar. Og evran verður ekki bjargvættur okkar í kreppunni, hún mun ekki nema land á Íslandi næstu 10 árin.

Það þarf að skoða allar hliðar; hvað felst í framsali á ríkisvaldi til "yfirþjóðlegrar stjórnar" og hvaða áhrif Lissabon gjörningurinn hefur á stjórn hins breytta ESB eftir gildistöku hans.

Haraldur Hansson, 20.12.2008 kl. 17:36

2 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Þú ert tæknilega gjaldþrota í skoðunum og því verður að fella þær niður - tæknilega auðvitað eins og hjá Milestone!!      Nei, í alvöru, þú getur ekki trúað því að við komumst að einhverjum góðkjarasamningum hjá ESB og að Evran leysi eitthvað.    Jú vextir lækka, í fyrsta lagi eftir 10 ár!     Eru ekki 27 þjóðir í ESB núna, 27 eiginhagsmunagæsluverðir sem ekkert gefa eftir og ganga alltaf út á ystu brún í kröfugerð!     Og þú vilt láta þá hálvita sem nú eru við stjórn um að semja fyrir okkar hönd (ganga strax í ESB).     Það munu allir auðmenn ESB vaða yfir okkur á skítugum skónum svo við verðum að auðmjúkum skósveinum í þessu sambandi, ekki bara er varðar fiskveiðar heldur í öllu tilliti.    Nei, það er vond stefna að ganga í ESB, sérstaklega núna þegar við erum "tæknilega" - nei í raun gjaldþrota þó rikisstjórnin vilji ekki viðurkenna það fremur en skilanefndin viðurkennir ekki gjaldþrot Milestone en treður því upp á íslenskan almenning!

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 20.12.2008 kl. 17:57

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Getur verið að hér tali sjálfstæðismenn sem sjá allt vont við ESB? Svona var þetta líka þegar EES var að verða að veruleika,allt var talað niður en hvað hefur gerst?

Það er allavega ekki EES sem orsakaði hrunið eða kreppuna,þetta er mín skoðun og ég á fullann rétt á henni eins og þið á ykkar.

Skálfstæðismenn og Vinstrigrænir virðast haldin einhverri fóbíu þegar kemur að ESB og hana verður að stöðva.

Ég er ekki "Tæknilega gjaldþrota"

Magnús Paul Korntop, 20.12.2008 kl. 19:43

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður Magnús, stattu á þínu

Ég er fylgjandi því að sótt verði um aðild, svo við fáum að sjá hvað í því felst, síðan á þjóðin að kjósa um það.....mitt mat.

Hlusta ekki lengur á "gallsúra" stjórnmálamenn, sem tala í frösum.

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 20:37

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sammála Sigrún.

Magnús Paul Korntop, 20.12.2008 kl. 20:52

6 Smámynd: Sædís Hafsteinsdóttir

Heill og sæll magnus.bara litil spurning.þegar eg þakka fyrir eða svara einhverjum,geri eg það ekki á minni athugasemd eða,avILTU VERA SVO VÆNN AÐ SKOÐA SIÐUNA MINA OG GAÐ HVORT EG GERI ÞETTA RETT.TAKKTAKK

Sædís Hafsteinsdóttir, 20.12.2008 kl. 22:08

7 identicon

Sæll Magnús!

Kærar þakkir fyrir bloggvináttu!

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 10:58

8 Smámynd: Anna

Saell, hitti Englending a gongu og hann sagdi, farid ekki i ESB tid munid missa allann sjavarutveginn. Vid munum fiska allt. Einnig Spanverja og Frakkar. Finnid adra leid. Almeningur i Bretlandi ser eftir ad hafa gerst adilar.

Anna , 21.12.2008 kl. 11:01

9 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Að mínu mati skiptir ekki máli hverjir veiða fiskinn okkar,ESB þjóðir eða íslenskir kvótakóngar,hann klárast hvort eð er.

Magnús Paul Korntop, 21.12.2008 kl. 11:34

10 Smámynd: Isis

Tjah, ESS samningurinn á nú stóran þátt í því að Ísland varð gjaldþrota. Því ESS samningurinn gerði bönkunum kleift að opna útibú eins og enginn væri morgundagurinn um alla evrópu án þess að eiga innistæður fyrir því.

Það sem klikkaði var að í ESS samninginn vantaði reglur ESB um bankastarfsemi utan síns lands. Þar að auki gengu stóru ESB ríkin algjörlega yfir okkur á skítugumskónum á örlagastundu í sögu þjóðarinnar þegar þeir hreinlega bönnuðu okkur að láta á það reyna fyrir alþjóðadómstólum hvort hinn Íslenski almenningur væri í alvörunni ábyrgur fyrir því að borga skuldir annarra.  Þeir tóku af okkur sjálfsagaðan rétt okkar samkvæmt sínum eigin reglum og sérsamingum (ESS)!

Sögðu að við "yrðum að halda friðin" "mættum ekki vera með læti" því að það kæmi sér svo "illa fyrir ESB"! Við áttum bara að þegja, eins og kúguð kona sem er lamin af kallinum sínum og taka á okkur billjarðaskuldir annarra og gera það brosandi. 

Já, ESB sýndi heldur betur sitt rétta andlit þann daginn, og Bretar síðan kórónuðu gjörningin með því að skella á okkur eins og svo einu stykki hryðjuverkalögum og settu því allt hér algjörlega á hausinn. 

Já nei takk.. ESB má fara til andskotans fyrir mér með sína evru og peningastefnu sem reyndar er engin samstaða um hvernig á að vera innan ESB frekar en eitthvað annað sem þar fer fram. 

Og eins og Anna Björg segir, þá eru mjög margir sem vara okkur við því að ganga inni í þetta reglugerðarhelvíti og eru mjög margir sem ekki eru sáttir við að vera í ESB, sérstaklega í Þýskalandi, Bretlandi og Spáni... 

Isis, 21.12.2008 kl. 11:38

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ég er bara ekki sammála andstæðingum ESB,en allavega á að fara í aðildarviðræður og leyfa svo fólkinu í landinu að taka lokaákvörðun.

Magnús Paul Korntop, 21.12.2008 kl. 12:23

12 Smámynd: Anna

Tetta er ekkert grin og verdur ekki aftur snuid ef vid segju ja. En hugsum okkur vel um first. Ar hvert, hellast hundrudu nyrra reglna yfir Bretland fra ESB. T.d. nu ma ekki hraekja ut a gotu. Tu getur verid handtekin og kaerdur. Mig minnir ad refsikosnadurinn se £100.00 pund.

Ef tu notar F........ordid vid nokkurn mann eda hotar ta er haegt ad handtaka tig og kaera.

Ef tu skilur eftir kuk fra hundi ta er haegt ad handtaka tig og kaera.

Ef tu sest drekka afengi ut a gotu ta er haegt ad handtaka tig og kaera.

Svona er tad ordid i Bretlandi og hef eg verid busett her i 10 ar

Goda stundir.

Kvedja fra Bretlandi.

Anna , 21.12.2008 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

244 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband