Búið.

nullÍ gærkvöldi fór fram í Víkinni úrslitaleikur Víkings og ÍR í næstefstudeild í handbolta og dugði heimamönnum í Víkingi jafntefli til að komast upp í N1 deildina að ári en þeir gerðu gott betur og sigruðu okkur ÍR-inga með 5 marka mun 35-30 eftir að staðan í leikhléi var 18-17 Víkingi í vil.

Fyri hálfleikur vafn jafn og spennandi og bæði liðin mjög einbeitt og var munurinn aldrei meiri en 1-2 mörk,í síðari hálfleik skoraði Víkingur hinsvegar4 fyrstu mörkin og í raun kláraðist leikurinn þar því það sem eftir lifði leiks var bara eltingarleikur þar sem Víkingar áttu svör við öllu sem við ÍR-ingar gerðum en betra liðið vann í gærkvöldi og fór upp um deild,við ÍR-ingar verðum hinsvegar að gera betur því ekki gengur að gráta Björn bónda heldur safna liði fyrir næsta tímabil.

Mitt mat er það hinsvegar að Víkingar fari rakleiðis niður aftur og eins hefði farið fyrir ÍR því N1 deildin er það sterk en engan skal samt dæma úr leik fyrirfram.

            Til hamingju Víkingar.

Nú þegar þessu keppnistímabili er lokið er ekki úr vegi að staldra smá við ogstikla aðeins á stóru og gera tímabilið upp.

Þegar tímabilið var komið vel á veg var ekkert annað í kortunum en að ÍR færi beint upp aftur en spilamennskan eftir áramót var afleit og menn héldu víst að þetta væri komið enda var ÍR mest 9 stigum á undan Víkingum rétt fyrir áramót,en ÍR fór illa að ráði sínu í tvígang gegn Selfossi og þar var okkur dýrkeypt.

Nú er Elli víst hættur með liðið og stýrir því ekki gegn FH og vil ég sérstaklega þakka honum frábær störf í þágu félagsins,frábær þjálfari sem hefur kennt mörgum manninum undirstöðuatriði handboltans einnig vil ég þakka Hrafni Margeirsyni(Hrappurinn)fyrir hans ómetanlegu aðstoð og vonast ég til að hann haldi áfram og verði nýjum þjálfara innann handar.

Nú er mikið verið að ræða hvort eiga veri ein deild eða tvær og er það mitt mat að það eigi bara að vera EIN deild með 16 liðum og allavega 4 liða úrslitakeppni því ég vil frekar tapa leik með 10 mörkum og læra eitthvað af því heldur en að vinna með 15 mörkum og læra ekkert á því en eins og staðan er í dag þá erum við í næstefstu deild og lið að koma þar inn eins og Völsungur,Fjölnir og hugsanlega Breiðablik og Fylkir en til þess að við komumst upp þá verða allir að leggjast á eitt um að það takist,ekki bara leikmenn og stjórnarmenn,heldur einnig hinn almenni ÍR-ingur en einnig þurfa fleiri að koma að starfi handknattleiksdeildar og taka ábyrrgð því eins og staðan er í dag þá eru ALLT OF FÁIR AÐILAR að leggja hönd á plóginn.

Að lokum vil ég hvetja alla sanna ÍR-inga til að mæta á lokaleikinn gegn FH í Austurberginu n.k föstudag(2 mai) og hvetja ÍR þó ekki væri nema til að sýna samstöðu.

Ég er stoltur af því að vera ÍR-ingur þó svona hafi farið nú,mikill uppgangur er í gangi í fót,körfu og handbolta auk annarra greina innann ÍR svo ekki þarf að örvænta það,einnig hefur ÍR náð samningum við Hummel sem er til 4gra ára um keppnir og æfingafatnað fyrir allar deildir,gott mál það,hef hugsað mér að opna sérstaka ír síðu hér á mbl ef ég fæ ekki að komast að ÍR síðunni sem hefur verið meira og minna lömuð í 2-3 ár en meira um það síðar.

En nóg í bili-meira frá ÍR síðar,ÁFRAM ÍR.

                                  KV:Korntop

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sá þig í sjónvarpinu um daginn.Þú varst góður

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 11:58

2 identicon

Hvaðan í veröldinni telur þú þig fá upplýsingar um að Fjölnir, Völsungur, Breiðablik og Fylkir ætli sér að vera með lið?

Völsungur er í utandeildinni og hafa því amk mannskap. Fjölnir, Breiðablik og Fylkir hafa ekki mfl. og Breiðablik hefur ekki einu sinni handknattleiksdeild. 

Skil alveg að þið Ír-ingar séuð svekktir - en að breyta fyrirkomulaginu af því að þið félluð er ekki góð hugmynd Magnús.

-- (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 13:50

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Hef heyrt þetta allavega með Fjölni og Völsung,en heyrði hitt í Víkinni í gær,auðvitað erum við svektir en,að breyta fyrirkomulaginu er ekki frá okkur komið eingöngu en samt það sem ég tel best fyrir handboltann.

Magnús Paul Korntop, 26.4.2008 kl. 14:53

4 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Ég held að það sé besta ða vera með tvær deildir. Önnur deildin er fín til að ná samspili, til að menn fái tilfinninguna fyrir liðsheild. Það er sárt að tapa öllum leikjum með tíu tuttugu mörkum. það er hins vegar annað mál með úrslitakeppni. held að það geti verið gott að hafa fjögura liða mót í lokin. En það er líka erfitt að halda í mannskap ef lið kemst ekki upp. Vona að þið ÍR ingar komist upp á næsta ári. Áfram Víkingur!!!

Guðni Már Henningsson, 27.4.2008 kl. 16:13

5 Smámynd: FLOTT PAR

hæ maggi min

 flott siða þin

FLOTT PAR, 29.4.2008 kl. 05:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

270 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband