Toppdagur.

Dagurinn í dag var fínn,fór fyrst á BK að hitta Dagbjörtu(Mína fyrrverandi)en hún vildi kveðja mig áður en  ég yfigef landið n.k fimmtudag,fengum okkur mat og ræddum málin,hún gaf mér 5000 krónur í jólagjöf og ég kaupi handa henni buxur eða eitthvað fatakins úti handa henni í jólagjöf.

Eftir að við kvöddumst á Hlemmi fór ég í Fjölmennt á jólatónfund skólans og söng eitt lag(Einmanna á jólanótt) og var þetta virkilega skemmtilegur tónfundur.

Síðan fór ég með Ingu Hönnu og Hillý heim til Hillýjar þar sem við héldum áfram að syngja frameftir kvöldi og kjafta saman og eitt og annað(aðallega annað),kom svo heim og hef bara verið að chilla í tölvunni síðan.

Las hörkupistil hjá bloggvini mínjum Valgeiri um um að opna lokaða deild fyrir offitusjúklinga sem væru yfir 45 BMI stig og er ég klárlega í þeim hópi með á milli 50-60 stig og styð ég hann heils hugar í þessu mál,hörkugrein hjá stráknum.

Ámorgunn er það sund í Laugardalslaug,skila Hillý diskunum sem ég brenndi fyrir hana,hljómsveitaræfing og svo Meistaradeildin annaðkvöld.

Það kemur einn sprengjupistill áður en ég fer og þá líka helli ég úr skálum reiði minnar en þar til næst farið vel með ykkur og hafið það gott.

                         KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæll Valgeir:Ég er annar tenór samkvæmt skilgreiningu þeirra sem kenna söng og til væri ég að taka lagið með þér t.d í Ölveri,hefur þú annars ekki áhuga á karókíi?ég hef það er oft þar að syngja.

Já,ef maður hefur ekki nóg fyrir stafni þá getur maður alveg eins lagt upp laupana og látið sig hverfa.

Fer oft á BK því þar er góður matur,góð og lipur þjónusta,maturinn ódýr og gott að slaka á fyrir tónleika eða uppákomur af ýmsu tagi allavega fer ég ætíð ánægður þaðan út.

Farðu vel með þig vinur og stattu þig í baráttunni.

Bestu kveðjur.

Magnús Paul Korntop, 27.11.2007 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 205166

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

244 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband