Smá staðreyndir.

Ætla að skella hér inn nokkrum staðreyndum er varða mig og vona ég að fólk dæmi mig ekki of hart né verði með predikanir auk sem ég vona að bloggvinir flýji ekki umvörpum.

Ég er 42 ára gamall maður sem býr í Reykjavík og hefur sterkar skoðanir á hlutunum og ég bakka ekki með þær nema mér sé sýnt fram á annað sbr umræðuna um búsetumál fatlaðra og örorkubótarumræðuna sem dæmi,þar kom ég með mína sýn á ástandið og því voru nær allir sammála sem hér commentuðu enda málefni fatlaðra hrein spurning um mannréttindi,ekkert annað.

Ég hef átt skoðanaskipti við marga hér á blogginu og mörg þeirra ánægjuleg,fólk sem hefur rekist á síðuna hefur komið til mín og talað um hversu góður penni ég sé en ég segi alltaf að það sé ekki rétt enda er ég það ekki en þegar koma upp stórmál er tengjast málefnum fatlaðra hef ég alltaf haft skoðanir og þegar ég segi þær hér þá hef ég þurft að leita að orðum sem passa við hverju sinni en verð um leið að passa mig á því að reiðin nái ekki of miklum tökum á mér því slíkt getur eyðilagt góðan pistil.

En sem sagt:mér finnst ég arfalélegur bloggari og skil stundum ekkert í því hvernig fólk nennir að lesa þessa hundleiðinlegu síðu sem var stofnuð upp á grín og þess vegna hef ég oft verið að velta fyrir mér að loka þessari síðu og hætta þessu eingöngu vegna þess hversu lélegur bloggari ég er,ég er meðlimur í Átaki(Félag fólks með þroskahömlun) og er stoltur þroskahamlaður einstaklingur sem berst af grimmd fyrir bættum hag öryrkja og annara sem minna mega sín.

En svo eru aðrir sem vilja að ég haldi þessu áfram því að þá komast málefni fatlaðra á dagskrá en hvernig á svona ömurlegur bloggari eins og ég að geta haldið úti bloggsíðu þegar sjálfstraust mitt varðandi blogg er ekki meira en þetta?hvað er til ráða?
Einnig finnst mér fólk ekki commenta nægilega hérna og er það partur af þessu þó það verði að viðurkennast að ákveðinn kjarni hefur commentað vel og duglega undanfarið.

Ég er ekki að fara að loka síðunni strax en hef aldrei lagt í að segja ykkur þetta varðandi mig fyrr en nú,vonandi verð ég ekki jarðaður eftir þessa færslu.
                          KV:KorntopFjöryrki

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þín síða á erindi við marga sem hafa gott af því að hlusta. Eins og þú veist sjálfur þá eru kannski ekki allir fatlaðir mjög ritfærir og ýmislegt getur valdið því. Þitt hlutverk er að koma áleiðis því sem þarf að breyta og mér finnst þú standa þig vel í því.

Takk fyrir mig, ég les flest sem þú skrifar og meira að segja íþróttapistlana þína

Ragnheiður , 24.10.2007 kl. 01:22

2 identicon

Það er gaman að lesa síðuna þína oft maggi. Ekki láta þunglyndið ná tökum á þér og haltu áfram að blogga því að þú veist sjálfur að þér finnst það gaman.

kv

tryllirinn     

Emil Ólafsson (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 01:23

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæl ragnheiður:

Þú ert ein af þeim sem hefur commentað hér og kanski verið sú manneskja sem hefur haldið mér við efnið og kann ég þér miklar þakkir fyrir það,það er m.a fyrir þín orð sem ég hef ekki lokað síðunni en ég get ekki að því gert að mér finnst ég ekki góður bloggari en sem betur fer þá er til fólk sem vill sannfæra mig um annað.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 01:26

4 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sæll Tryllir:

Þetta er ekki þunglyndi heldur það sem mér finnst um sjálfan mig.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 01:27

5 identicon

Mér finnst þú frábær með allt það sem þér liggur á hjarta.   OG VEISTU.

Þeir standa STALLI HÆRRA SEM ÞORA,burtséð hvað aðrir halda.Það er alþekkt fyrirbæri, að FÆRUSTU FYRIRLESARAR  koðna niður í ekki neitt EF  ÞEIR ERU BEÐNIR AÐ TALA UM SJÁLFA SIG.Þeir eru bara EKKI ÞJÁLFAÐIR í ÞVÍ.OG það  HEITIR á FAGMÁLI.     FAGMENNSKA.     Nei ,haltu áfram á þessari braut,og þér mun VEL FARNAST.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 01:36

6 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Takk Þórarinn,kanski lagast sjálfstraustiðen þetta sem þú segir að ofan er hárrétt,hef sjálfur orðið vitni að slíku.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 01:48

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ef þú ert lélegur bloggari Magnús þá veit ég ekki hvað á að kalla mig sem bloggara.. ég er ekki hálfdrættingur á við þig.  Þú ert með góð málefni sem fólk hefur áhuga á að heyra og þín rödd er mikilvæg.

Haltu þínu striki Magnús.

Óskar Þorkelsson, 24.10.2007 kl. 08:50

8 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sælir Óskar og Ísak.

Ef ég er með svona góð málefni,hví sé ég þá ekki fleiri skoðanir í commentakerfinu?ég er oft að reyna að skapa umnræður en það gengur tregt,það endar með því að maður rakki einhvern hóp niður í svaðið,segi svona.

Það er ágætt að fólk er ekki sammála mér í því að ég sé ömurlegur bloggari en eins og kemur fram í færslunni þá bakka ég ekki með skoðanir nema haldbær rök komi til og enn og aftur er sjálfstraustið ekki meira en þetta sorrý.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 11:14

9 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Magnús, bloggvinur minn og fjöryrki, ég er tiltölulega nýbúin að finna þig hérna á blogginu og les allt sem þú skrifar. Það er mikilvægt sem þú hefur fram að færa.  Þú ert rödd stórs hóps af fólki, jafnframt því að vera "bara" þú eins frábær og þú ert.  

Þetta með að hafa ekki sjálfstraust og vilja hætta, huhumm ég kannast sko við það og örugglega flestir sem blogga. Þú hefur fleiri heimsóknir en ég og miklu fleiri komment! Svo, nú er að finna Pollýönnuna innra með sér og halda áfram  

Svona dagar líða og nýjir bjartari dagar koma í staðin, ekki satt?

bestu kveðjur, Ragga fjöryrki 

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.10.2007 kl. 11:43

10 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Sæll , þó svo að ég segi ekki mikið eða komenti á eithvað , þá les ér allatf yfir bloggið hjá þér og þú hefur mikið að segja og gefa samfélaginu , og um að gera að halda áfram að setja út þínar skoðanir þó svo að það komi ekki koment þá snertir það allt einhvern og getur jafnvel breitt deiginum hjá þeyrri maneskju .

Eigðu góðan dag vinur kelmm og knús

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 24.10.2007 kl. 13:28

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Sjálfstraust er eitthvað sem öllum þykir gott að hafa og þegar það minnkar eða hverfur þá er ekki mikið og vonandi koma betri tímar og dagar.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 13:49

12 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Alveg er ég undrandi á viðbrögðunum við þessari færslu,ég veit ekki hvað skal segja annað enn takk elskurnar en er þó sömu skoðunnar með hversu lélegur penni ég sé en get ekki breytt annara skoðunum.

Mér finnst alveg fáránlegt þegar maður sér um 100 comment við t.d kantskurð kvenna og rakstur undir höndunum,en svo kem ég kanski með mál sem kemur öllum við og þá commenta kanski 2-3,það er þetta sem pirrar mig mest og fær mann til að missa sjálfstraustið í blogginu.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 16:09

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert bara laaaaaaaaangflottastur! Ætla að verða duglegri að kíkja og kommenta. Knús.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.10.2007 kl. 16:27

14 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Takk Helga það verður áfram bloggað hérna eitthvað.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 16:41

15 Smámynd: Óskar Þorkelsson

það er auðveldara að hafa skoðun á kantskurði kvenna og raðfullnægingum en alverlegum málefnum öryrkja og þeirra sem minna mega sín Magnús, þú ert ötull talsmaður þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu og ert því mikilvægur bloggari.

Óskar Þorkelsson, 24.10.2007 kl. 16:55

16 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Ég hef nú verið með greinar um alvarlegri málefni en öryrkja t.d hraðakstur svo eitthvað sé nefnt en ég ætti kanski að blogga um kantskurð kvenna og raðfullnægingar og sjá hvað gerist.

Magnús Paul Korntop, 24.10.2007 kl. 17:57

17 Smámynd: Ragnheiður

Málið er líka það að þegar fjallað er um ómerkileg mál eins og umræddan kantskurð þá er auðvelt að kommenta á slíkt og bulla bara eitthvað.

Þegar fjallað er um mál sem skiptir máli þá þarf maður að brölta af háa hestinum og hugsa aðeins málið áður en maður kommentar.

Þetta er sumum ofraun held ég.

Ragnheiður , 24.10.2007 kl. 19:02

18 identicon

Þú ert að gera góða hluti á blogginu þínu verðandi mál öryrkja og búsetumál fatlaðra. Þú stendur þig vel. Sjálfstraustið vex smátt og smátt.Gangi þér vel. Það er gaman að kíkja á síðuna þína.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 22:56

19 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Mig langar nú að skrifa um eitthvað meira en bara öryrkja en ég verð greinilega að vera með meira ögrandi hluti til að"hneyksla"ykkur bloggvinir mínir góðir.

Magnús Paul Korntop, 25.10.2007 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 205156

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband