Gengið yfir.

Sæl öll,þá er þessi déskotans magakveisa á enda eftir eins dags pirring,skellti mér á hljómsveitaræfingu áðan og þar var upplýst að bæði Plútó og Hraðakstur bannaður eiga að spila á landsþingi Þroskahjálpar þann 13 október og að sjálfsögðu vonast ég eftir því að sjá sem flestar bloggvinkonur mínar sem eiga fötluð börn á einhverju stigi en þær eru nokkrar,t.d veit ég að Jóna á einhverfann strák og svo er um fleiri bloggvinkonur veit ég en endilega kíkið á þetta ball sem líklega verður á Grandhótel og þið verðið ekki svikin því get ég lofað ykkur.

Svo áfram sé haldið um skemmtanir fatlaðra þá mun Átak(Félag fólks með þroskahömlun)halda diskótek laugardaginn 20 október að Háaleitisbraut 13 og kostar eingöngu 500 krónur inn og er 80´s tímabilið þema kvöldsins og mun ég ásamt Sæþóri sjá um að ykkur leiðist ekki en  ballið stendur frá kl 19´30(hálf 8)-22´30(hálf 11)og vonast ég sem formaður skemmtinefndar til að sjá sem flesta í góðum fílíng.

Ég hef verið að lesa nokkur blogg undanfarið og þar með hjá Jens Guð og þar er m.a fjallað um skoðanakönnun hjá honum þar sem hið geysivinsæla lag Nína var valið mest pirrandi lagið eftir keppni við lögin Villi og Lúlla og Skólaball,hversu lágt geta menn lagst enda mun fleiri lög sem eru meira pirrandi en þessi en þetta kallar á netta könnun um hvert sé leiðinlegasta íslenska lag ever en þau eru mörg og erfitt að velja þau 15 sem á listann komast.

Vonast eftir auknum commentum við færslum mínum svo ég geti séð hverjir eru að lesa það sem ég er að skrifa hverju sinni einnig vil ég hvetja þá sem ekki hafa kosið í könnuninni um hvaða lið fellur úr Landsbankadeild að gera það sem fyrst því hún hættir á laugardaginn eftir seinustu umferð Landsbankadeildar og þá ljóst hverjir falla.

Þar til næst farið vel með ykkur og njótið lífsins.
                            KV:Korntop


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.9.2007 kl. 20:15

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gott að þú ert að þú ert að verða frískur.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.9.2007 kl. 20:51

3 identicon

Kvitt kvitt Magnús, kemst ekki á ballið hjá Þroskahjálp þar sem ég verð erlendis, take care og góða skemmtun.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:53

4 Smámynd: Ólafur fannberg

kvitta fyrir mig

Ólafur fannberg, 26.9.2007 kl. 18:17

5 Smámynd: Bergdís Rósantsdóttir

Gott að heyra að þú sért allur að hressast. 

Bergdís Rósantsdóttir, 26.9.2007 kl. 18:48

6 identicon

Sæll Magnús. Vildi bara kvitta og láta vita að ég er dyggur lesandi síðunnar. Haltu áfram á sömu braut.

Kveðja úr sólinni á Spáni.

Árni Stefánsson

Árni Stef (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 18:50

7 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gott að þér er batnað og vonadi gengur ballið mjög vel.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.9.2007 kl. 21:03

8 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Góður, þetta gekk nú fljótt yfir hjá þér, maður heyrir að fólk er búið að liggja í marga daga. Farðu nú samt vel með þig.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 27.9.2007 kl. 00:14

9 identicon

Blessaður Maggi minn leitt að heyra af magakveisunni, en gott að þú ert að hressat Takk fyrir innlitið og kvittið hjá mér, þarf að fara að koma í heimsókn fljótlega niður í Fjölmennt og heilsa upp á ykkur

Henný (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Korntop

Höfundur

Magnús Paul Korntop
Magnús Paul Korntop

Hér er á ferðinni lífsglaður náungi með sterkar skoðanir og segi ég þær umbúðarlaust,
Mín helstu áhugamál eru sport,söngur en einnig eru mér hugleikin málefni þeirra
sem minna mega sín.

Ég vil taka það fram af gefnu tilefni að ég áskil mér ALLANN RÉTT til að eyða commentum sem innihalda skítkast,eða fjalla ekki um bloggefnið sjálft,verði fólk ekki við þessu verður lokað á commentakerfið.

Spurt er

Hvernig líst þér á komandi vetur?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Nýjustu myndir

  • ...ingurinn_eg
  • Ólafur Stefánson.
  • ...lautur_bill
  • ...ngverjaland
  • ...land_415050

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband